Rafmagn tekið af íbúðahúsi Sturlu

Fjórfalt hærri veð hvíla á fasteignum á Suðureyri en kaup­verðið sem Sturla Sighvatsson greiddi Íbúða­lánasjóði fyrir rúmum þremur árum.

Íbúðahúsið við Sætún
Íbúða­húsið við Sætún Fram­kvæmdir stöðv­uð­ust síð­asta vor, sam­kvæmt heim­ildum Stund­ar­innar.

Rafmagn var tekið af sameign íbúðahúss á Suðureyri í eigu félags Sturlu Sighvats­sonar fjár­festis í fyrri hluta febrúar. Hefur einn íbúanna flutt út vegna málsins, samkvæmt heimildum Stundarinnar.

Stundin hefur áður fjallað um viðskipti Sturlu, en tugir fjöl­skyldna biðu í eitt og hálft ár eftir afhendingu íbúða í Mosfellsbæ frá félagi hans, Gerplu­stræti 2-4 ehf. Ásgeir Kolbeinsson athafna­maður sagði sig úr stjórn félagsins í desember, en hann hafði tekið við af Sturlu sem stjórnar­formaður og beðið kaupendur um loka­greiðslu til að tryggja að íbúðirnar fengjust afhentar. Þá sætti Sturla gagnrýni vorið 2018 þegar eldur kom upp í einni fasteigna hans við Óðinsgötu 14a eftir að hústöku­fólk hafði komið sér þar fyrir.

Íbúða­húsið stendur við Sætún á Suðureyri og eru í því átta íbúðir. Félag Sturlu, Fletir fjár­festinga­félag ehf., keypti það haustið 2016 af Íbúða­lánasjóði fyrir 30,5 milljónir króna, en í dag hvíla á því upp á 133 …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár