Mynd: Heiða Helgadóttir

Bar leyndarmál með sér allt frá æsku

Veiga Grét­ars­dóttir átti sér strax í æsku leynd­ar­mál sem hún þorði ekki að nefna við nokkurn mann. Fyrir nokkrum árum upp­lifði hún sjálfs­vígs­hugs­anir, föst í röngum lík­ama og fór í kyn­leið­rétt­ingu, sem kost­aði hana fjöl­skyld­una. „Ég vildi frekar deyja sem kona en að lifa sem karl­maður.“

Hún fædd­ist á Ísafirði í árs­byrjun 1976 og fékk nafnið Grétar Veigar Grét­ars­son. Í dag er hún kven­lega klædd, í háhæl­uðum skóm, með langar neglur og farða. Hún segir frá því hvernig lífið breytt­ist. 

Allt frá æsku átti hún leynd­ar­mál, sem hún þorði ekki fyrir sitt litla líf að nefna við nokkurn mann.

Hún var strák­ur­inn sem hékk úti í bíl­skúr með föður sínum, en sótti jafn mikið í að sitja hjá móður sinni í sauma­klúbb að prjóna. „Ég var mjög ung þegar ég byrj­aði að fara á skak með afa sem bjó í Bol­ung­ar­vík. Hann átti trillu þar sem var veitt með hand­færum.“ Í kringum ferm­ingu var hún komin í sum­ar­vinnu þar sem hún vann fyrir fyr­ir­tæki sem fram­leiddi flokk­ara, tölvu­vogir og fleira, þar sem hún bjó meðal ann­ars til snúrur, lóð­aði á prent­plötur og lærði eitt og annað í stál­smíði. 

„Ég teik­aði bíla og gerði …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár