Aðgerðir Eflingar njóta verulegs stuðnings

Um 60 pró­sent lands­manna styðja launa­kröfur stétt­ar­fé­lags­ins Eflingar sam­kvæmt könnun Maskínu. Yfir helm­ingur aðspurðra styður verk­falls­að­gerðir félags­ins.

Aðgerðir Eflingar njóta verulegs stuðnings
Styðja aðgerðir Samkvæmt könnun Maskínu er veru­legur stuðn­ingur við aðgerðir og kröfur Eflingar. Mynd: Heiða Helgadóttir

Kröfur Eflingar gagn­vart Reykja­vík­ur­borg njóta víð­tæks stuðn­ings sé miðað við skoð­ana­könnun Maskínu. Tæplega 60 pró­sent aðspurðra lýstu yfir fullum eða miklum stuðn­ingi við stétt­ar­fé­lagið. Þá njóta verk­falls­að­gerðir Eflingar einnig stuðn­ings yfir helm­ings aðspurðra.

Efling fékk rann­sókna­fyr­ir­tækið Maskínu til að kanna stuðn­ing við aðgerðir félags­ins í borg­inni og fór könn­unin fram dag­ana 14. til 21. febr­úar. Svar­endur voru 871, af öllu land­inu. Ótíma­bundið verk­fall Eflingar hófst 17. febr­úar en áður höfðu tíma­bundin verk­föll verið vik­urnar á undan.

Spurt var um stuðn­ing við Eflingu í launa­deilu stétt­ar­fé­lags­ins við Reykja­vík­ur­borg og kom í ljós að 59 pró­sent þeirra sem svör­uðu sögð­ust styðja kröf­urnar að öllu eða miklu leyti. Fimmt­ungur svar­enda sagð­ist vera styðja kröf­urnar í með­al­lagi en 21 pró­sent studdi kröfur Eflingar að litlu eða engu leyti.

Þá var einnig spurt um stuðn­ing við verk­falls­að­gerðir Eflingar og svör­uðu 56 pró­sent svar­enda því til að þeir væru þeim mjög eða fremur hlynntir. 19 pró­sent sögð­ust vera í með­al­lagi hlynntir verk­falls­að­gerð­unum en fjórð­ungur svar­enda var fremur eða mjög and­vígur verk­falls­að­gerð­unum.

 

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár