Kvótaerfingi sýnir skart, seðla og dýra bíla í nýju myndbandi

„Já, þú átt kannski skart, en mitt kostar þús­und­falt,“ rappar Flosi Valgeir, sonur útgerð­ar­manns­ins Jakobs Valgeirs. Í nýju mynd­bandi keyrir hann um á Porsche og Range Rover, og sýnir Gucci-föt.

Nýr rappari „Hvað veist þú um það?“ fjallar að sögn lagahöfundar um að birtingarmynd hans á samfélagsmiðlum geri fólki ekki kleift að þekkja hann.

Sautján ára rapp­ari hefur gefið frá sér nýtt mynd­band. Í mynd­band­inu keyrir hann út úr Skugga­hverf­inu í Reykja­vík á Range Rover skreyttur Gucci-skarti og fötum, telur seðla­búnt og segir: „Já, þú átt kannski skart, en mitt kostar þús­und­falt.“

Rapp­ar­inn, Flosi V, eða Flosi Valgeir, er sonur Jakobs Valgeirs Flosa­sonar, eins auð­ug­asta útgerð­ar­manns lands­ins. Fjöl­skyldu­út­gerðin, sem gerir út frá Bol­ung­ar­vík, hagn­að­ist um tæpa tvo millj­arða króna í fyrra.

„Græða meira en þið“

Tákn um auð­æfi eru áber­andi í mynd­bandi Flosa V, en text­inn bein­ist í þá átt að koma á fram­færi að lista­mað­ur­inn eigi meira en aðrir. 

„Ég elska seðla og ég elska líka að eyða þeim, svo opna budd­una og gef mér þessa seðla,“ segir hann. „Ég er að græða meira en þið,“ bætir hann við. 

Þá vísar hann til þess að hann hafi fengið þetta „svart“ og borgi ekki skatt.

„Þetta er allt svart, pen­ingar og skart,“ segir hann. „Þarf ekki að borga skatt, löggan kom og ég hvarf.“

Lúx­us­bílar eru áber­andi í mynd­band­inu, meðal ann­ars Range Rover með einka­núm­er­inu Flosi V. og svo Porsche Panamera, sem er einn dýr­asti sport­bíll­inn hér á landi.

Seðlabúnt og skart

Straumar í rappi koma gjarnan til Íslands frá Banda­ríkj­unum, þar sem hefur verið áber­andi að rapp­arar sýni fram á yfir­burði sína með til­vísun í efn­is­leg auð­æfi og dýr vöru­merki.

Und­an­farið hafa nokkrir áber­andi rapp­arar gert sér­stak­lega út á að sýna skart og seðla­búnt með rappi um pen­inga.

Rapp­ar­inn Gísli Pálmi blés nýju lífi í rapptón­list­ar­líf á Íslandi árið 2011, með lag­inu Set mig í gang, þar sem hann rappar meðal ann­ars um „seðla í búntum, bunkum“ með „skart­gripi út um allt“. 

Gísli Pálmi er einn af erf­ingjum gamla Hag­kaups­veld­is­ins svo­kall­aða, sonur Sigurðar Gísla Pálma­sonar.

Þá hafa rapp­arar eins og Yung Nigo Drippin veifað seðlum í mynd­böndum og rappað um að vera ríkur. 

Gjaldþrot og auður

Faðir Flosa V, Jakob Valgeir, er þekktur fyrir aðkomu sína að mark­aðs­mis­notk­un­ar­máli Glitnis, Stím-mál­inu svo­kall­aða, en hann var skráður fyrir félag­inu Stím ehf. sem keypti hluta­bréf í Glitni fyrir 19,6 millj­arða króna með láni frá sama banka, í til­raun til þess að við­halda háu gengi Glitnis á hluta­bréfa­mark­aði. Stím ehf. fór í þrot og lauk upp­gjöri vegna þess í sept­em­ber 2013. Aðeins feng­ust greiddar 15,2 millj­ónir króna upp í 24 millj­arða króna kröf­ur. 

Annað félag Jakobs Valgeirs varð gjald­þrota árið 2014 og var 21 millj­arði króna lýst í eign­irnar. Félagið, S44 ehf., sem áður hét JV ehf., hafði þá selt skip og kvóta yfir í annað félag í eigu hans og föður hans, Flosa Valgeirs Jak­obs­sonar eldri.

Fyrr­greind fjöl­skyldu­út­gerð Jakobs Flosa, Jakob Flosi ehf., er í blóm­legum rekstri. Hún gerir upp í evrum og var hagn­að­ur­inn, rúm­lega 14 millj­ónir evra, að mestu til­kom­inn vegna sölu hluta­bréfa.

Misjafnar viðtökur

Áhorf­endur á Youtube hafa brugð­ist mis­jafn­lega við mynd­bandi Flosa Valgeirs. Mörg ummæla undir mynd­band­inu snúa að því að gera grín að verk­inu.

„Tón­listin þín hjálp­aði mer! Hef ekki getað labbað síðan árið 2010 eftir að ég lenti í bíl slysi og lam­að­ist niður frá mitti, en loks­ins eftir öll þessu ár gat ég staðið upp og slökkt af þessi drasli TAKK,“ segir einn.

„Þessi tón­list hjálp­aði mér að hafa sam­band við pabba minn sem að ég er ekki búinn að sjá síðan 2003 hann heyrði að ég var að hlusta á þetta lag og hann pull­aði upp heima hjá mér, sló mig utan undir, slökkti á þessu rusli og henti sim­anum mínum. Síðan dipp­aði hann aftur,“ segir annar.

„Er ég sú eina sem finnst þetta lag gott eða?“ spyr önnur.

Flosi V. hefur hins vegar fengið 27 þús­und hlust­anir á lag sitt á Spotify og tæp­lega 22 þús­und til við­bótar á Youtube.

Sjálfur sagði Flosi Valgeir í sam­tali við DV síð­asta vor að lagið „Hvað veist þú um það“ fjalli um for­dóma fólks gagn­vart honum. „Lagið snýst um að fólk þekkir mig ekki í raun. Það sér mig kannski á net­inu eða eitt­hvað og fær ákveðna ímynd af mér en fólk veit ekk­ert hvernig ég er í alvör­unni og í dag­legu lífi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár