„And-Gréta“ komin fram í Þýskalandi og á leiðinni til Bandaríkjanna

Nítján ára þýsk stúlka sem afneitar lofts­lags­breyt­ingum og seg­ist vera lofts­lags-rea­listi hefur verið ráðin af hug­veitu sem fjár­mögnuð er af stór­fyr­ir­tækjum.

„And-Gréta“ komin fram í Þýskalandi og á leiðinni til Bandaríkjanna

Banda­ríska hug­veitan The Heartland Institute, sem hefur lengi dreift boð­skap um afneitun lofts­lags­breyt­inga af manna­völdum þvert gegn vís­inda­legum ráð­legg­ingum, hefur ráðið til sín nítján ára, þýska stúlku sem and­svar við við­vör­unum sænsku ung­lings­stúlkunnar Grétu Thunberg um afleið­ingar ham­fara­hlýn­unar. Stúlkan, Naomi Seibt, hefur verið kölluð „And-Gréta“ í fjöl­miðlum, vegna þess.

Naomi Seibt segir að áhyggjur af lofts­lags­breyt­ingum „haldi okkur í gísl­ingu í okkar eigin heila“. Þá gengur hún út frá því að and­staða við efa­semdir um lofts­lags­breyt­ingar jafn­gildi hömlum á tján­ing­ar­frels­inu. Hún hefur verið fengin til þess að halda ræðu á ráð­stefnu banda­ríska Repúblikana­flokks­ins í Washington í næstu viku.

Í mynd­böndum sem birt eru á Youtube talar Naomi Seibt fyrir efa­semdum um að lofts­lags­breyt­ingar af manna­völdum séu alvar­legt vanda­mál, á launum frá The Heartland Institute. „Við hjá Heartland Institute viljum dreifa sann­leik­anum um vís­indin á bak­við lofts­lags-real­isma,“ útskýrir hún í einu mynd­band­anna.

And-GrétaMynd­bandið er kostað af stofnun sem hefur mark­visst sáð efa­semdum um lofts­lags­breyt­ingar af manna­völdum, sem vís­inda­menn eru þó í yfir­gnæf­andi mæli sam­mála um að eigi sér stað.

Í umfjöllun Washington Post er greint frá því að Heartland Institute sé í eins konar banda­lagi með rík­is­stjórn Donalds Trump Banda­ríkja­for­seta. Stofn­unin hefur meðal ann­ars áður lið­sinnt tóbaks­fyr­ir­tækjum í almanna­tengsla­her­ferð til að draga úr trú á skað­semi reyk­inga. Almennt veitir stofn­unin hags­munum stór­fyr­ir­tækja virkan stuðn­ing og nýtur fjár­hags­legs stuðn­ings frá þeim.

Þýska rann­sókn­ar­blaða­mennskuteymið Correctiv sýndi meðal ann­ars nýlega fram á að Heartland Institute þáði boð um hálfa milljón evra og vann í kjöl­farið grein­ingu sem nota átti gegn lög­gjöf um minnkun útblást­urs gróð­ur­húsa­loft­teg­unda í Þýska­landi. Umfjöllun Correctiv má sjá hér. 

Heartland Institute birtir nú hvert mynd­bandið á fætur öðru á Youtube þar sem Naomi Seibt gerir lítið úr lofts­lags­breyt­ingum og reynir að sefa áhyggjur með þeim orðum að vís­indin séu hennar megin. 

Greta Thunberg hefur meðal ann­ars haldið ræðu á leið­toga­ráð­stefnu Sam­ein­uðu þjóð­anna um lofts­lags­breyt­ingar, þar sem hún spurði: „Hvernig dirf­ist þið?“

Ræða Gretu Thunberg„Skilaboð mín eru að við munum fylgj­ast með ykkur,“ sagði Greta Thunberg í ræðu sinni í sept­em­ber síð­ast­liðnum.

Um 97% vís­inda­manna á sviði lofts­lags­breyt­inga eru sam­mála því að hlýnun jarðar sé af manna­völdum, með þeim hætti að auk­inn útblástur koltví­sýr­ings og ann­arra gróð­ur­húsa­loft­teg­unda valdi því að meiri varmi frá sól­inni sitji eftir í and­rúms­loft­inu en áður en stór­felld losun þeirra hófst með iðn­væð­ingu.

Heartland Institute hefur hins vegar sent frá sér vill­andi eða afvega­leið­andi upp­lýs­ingar til blaða­manna, sent bækur til kenn­ara og birt mynd­bönd þess efnis að koltví­sýr­ingur sé ekki meng­un­ar­valdur. Til­gang­ur­inn er að sá efa­semdum um að lofts­lags­breyt­ingar af manna­völdum séu raun­veru­legar til að koma í veg fyrir kostn­að­ar­samar aðgerðir gegn þeim.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Loftslagsbreytingar

Mest lesið

Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
3
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
6
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár