„Ég er orðin 36 ára gömul og bý með móður minni“

Oddný Ófeigs­dóttir er 36 ára gömul, vinnur við umönnun hjá Reykja­vík­ur­borg og býr hjá móður sinni sem hún deilir kostn­aði með. Hún segir að skjól­stæð­ingar hennar þoli ekki skerta þjón­ustu um lengri tíma og undr­ast sinnu­leysi borg­ar­innar í kjara­deil­unni sem nú stendur.

„Ég er orðin 36 ára gömul og bý með móður minni“
Deilir kostn­aði með móður sinni Oddný segir að hún geti lifað af laun­unum sínum vegna þess að hún búi með móður sinni. Mynd: Heiða Helgadóttir

Oddný Ófeigs­dóttir er starfs­maður á Vel­ferð­ar­sviði Reykja­vík­ur­borgar en hún vinnur við umönnun í Selja­hlíð, hjúkr­un­ar­heim­ili og þjón­ustu­kjarna fyrir aldr­aða, á vöktum allan sól­ar­hring­inn. Vakt er allan sól­ar­hring­inn og því gengur starfs­fólk vaktir, alla daga árs­ins. „Það lokar aldrei, hvort sem það er mánu­dagur í febr­úar eða aðfangas­dags­kvöld.“ Oddný fær ekki að vinna meira en 84 pró­sent vinnu og fyrir það fær hún í grunn­laun 294 þús­und krónur á mán­uði.

Oddný byrj­aði í sum­ar­vinnu í Selja­hlíð árið 2005, vann svo í hluta­starfi með námi en hefur und­an­farin mörg ár unnið í því sem kallað er full vinna. „Það er hins vegar ekki nema 84 pró­sent vinna í mínu til­viki. Til­fellið er að eng­inn starfs­maður hér vinnur meira en 90 pró­sent og lang­flestir starfs­menn vinna um 80 pró­sent vinnu.“ Ástæðan er sú að vegna þess að um vakta­vinnu er að ræða þá sé talið að það væri of slít­andi að vinna fullt …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár