Kvennaathvarfið að hefja byggingu leiguhúsnæðis

Konur sem hafa dvalið í Kvenna­at­hvarf­inu geta leigt á við­ráð­an­legu verði meðan þær koma undir sig fót­unum. Sér­stak­lega er hugað að örygg­is­þáttum og byggt í nágrenni við lög­reglu­stöð auk þess sem lög­regla mun veita kon­unum sér­staka vernd.

Kvennaathvarfið að hefja byggingu leiguhúsnæðis
Hefja fram­kvæmdir á Val­ent­ínus­ar­dag­inn Sig­þrúður segir að það sé kannski á ein­hvern hátt við­eig­andi að hefja bygg­ingu húss­ins þann dag. Mynd: Heiða Helgadóttir

Stefnt er að því að hefja bygg­ingu fjöl­býl­is­húss sem ætlað er skjól­stæð­ingum Kvenna­at­hvarfs­ins föstu­dag­inn næsta, 14. febr­úar. Konum sem hafa komið til dvalar í Kvenna­at­hvarf­inu mun bjóð­ast að leigja íbúð­irnar á við­ráð­an­legu verði á meðan þær koma undir sig fót­unum. Við hönnun húss­ins var sér­stak­lega horft til örygg­is­þátta enda kon­urnar sem þar munu búa í tals­verðri hættu á að verða fyrir ofbeldi. Húsinu hefur verið val­inn staður nálægt lög­reglu­stöð og hefur verið rætt sér­stak­lega við lög­regl­una um að veita kon­unum aukna vernd.

Stuðningur Á allra vörum skipti sköpum

Átján litlar íbúðir verða í hús­inu, ætl­aðar konum sem dvalið hafa í Kvenna­at­hvarf­inu, en hug­myndin er að koma í veg fyrir að konur og fjöl­skyldur þeirra þurfi að dvelja þar svo mán­uðum skiptir enda Kvenna­at­hvarfið hugsað sem neyð­ar­at­hvarf. Ljóst er að mikil þörf er fyrir úrræði fyrir skjól­stæð­inga Kvenna­at­hvarfs­ins enda aðeins 13 pró­sent kvenna sem þangað komu í fyrra sem fóru þaðan í nýtt hús­næði hér á landi. Sig­þrúður Guð­munds­dóttir, fram­kvæmda­stýra Kvenna­at­hvarfs­ins, segir að hús­næð­is­mál séu eitt helsta ljónið í veg­inum fyrir konur sem hafa leitað á náðir athvarfs­ins þegar þær ætla sér að hefja nýtt líf.

„Eygló sagði mér að fara heim og lesa frum­varp um ný hús­næð­is­lög, ég gæti svo bara byggt hús!“

„Í raun­inni má segja að verk­efnið hafi farið af stað fyrir alvöru árið 2017. Þá var hald­inn söfn­un­ar­þáttur átaks­ins Á allra vörum en snill­ing­arnar sem eru með það átak höfðu valið að styðja okkur í það skipti. Hug­myndin kom nú eig­in­lega fyrst til á skrif­stofu Eyglóar Harð­ar­dóttur, þegar hún var félags- og hús­næð­is­mála­ráð­herra. Ég hafði verið að ræða við hana um þessa stöðu, að konur fest­ust í athvarf­inu og kæmust ekki burtu þaðan. Eygló sagði mér að fara heim og lesa frum­varp um ný hús­næð­is­lög, ég gæti svo bara byggt hús! Ég hafði nú aldrei heyrt neitt eins heimsku­legt en svo bara varð þetta að veru­leika. Eygló hefur átt gríð­ar­lega mik­inn þátt í þessu því eftir að hún lét af ráð­herra­emb­ætti bauð hún sig fram til að skoða þennan mögu­leika með okkur,“ segir Sig­þrúður.

Konurnar nýti það skjól sem þeim gefst

Sig­þrúður segir að hug­myndin sé að bjóða konum, sem hafa ekki tök á að leigja á almennum leigu­mark­aði, upp á tryggt hús­næði í nægi­lega langan tíma til að þær geti komið sér aftur á fæt­urna og byggt upp nýtt líf fyrir sig og börnin sín. Hönnun húss­ins tekur þannig mið af því að kon­urnar geti átt sitt eigið heim­ili en einnig er sam­eig­in­legt rými í því þar sem þær geti notið félags­skapar hverrar ann­arrar og börnin einnig. „Þegar þær flytja inn verður gerður samn­ingur við þær um það hvernig þær nýta þetta færi sem þær hafa á meðan þær leigja þar, til að byggja sig upp. Við erum bjart­sýnar á að kon­urnar geti fundið sér vinnu, jafn­vel lokið námi, á meðan þær eru þarna í skjóli,“ segir Sig­þrúður og bætir við að starfs­konur Kvenna­at­hvarfs­ins muni sinni stuðn­ingi og eft­ir­fylgni við kon­urnar sem þarna muni búa.

Ofbeldi lýkur ekki eftir sambandsslit

Húsið er verður stað­sett mið­svæðis, í nálægð við Kvenna­at­hvarfið sjálft, nálægt skóla, almenn­ings­sam­göngum og þjón­ustu. Í því verða sem fyrr segir átján litlar íbúðir, þar af ein sem sér­stak­lega er útbúin fyrir konur í hjóla­stólum. Stefnt er að því að bygg­ing­ar­tími verði sextán mán­uðir og hægt verði að bjóða fyrstu kon­unum að flytja inn síð­sum­ars árið 2021.

„Konurnar sem þarna munu dvelja eru konur sem eru áfram í hættu á að vera beittar ofbeldi“

Lögð var áhersla á að finna hús­inu stað nærri lög­reglu­stöð og fannst slík lóð mið­svæðis í börg­inni. Sig­þrúður segir að  fundað hafa verið með lög­reglu­stjór­anum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, Sigríði Björk Guð­jóns­dóttur, þar sem rætt hafi verið um sam­starf við lög­reglu um sér­staka vernd kvenn­anna og fjöl­skyldn­anna sem búa muni í hús­inu. „Við erum ekki búin að form­gera það sam­starf en við vitum að lög­regla mun vera í góðu sam­starfi við okkur, eins og ævin­lega er. Húsið er þá sér­stak­lega hannað þannig að meira er hugað að örygg­is­þáttum en í venju­legum húsum. Það verða ákveðnar örygg­is­stýr­ingar og mörg hólf sem þarf að fara í gegnum til þess að kom­ast inn í íbúðir, enda á eng­inn að kom­ast þar inn nema bara að vera hleypt inn. Konurnar sem þarna munu dvelja eru konur sem eru áfram í hættu á að vera beittar ofbeldi, því ofbeldi líkur síður en svo eftir að sam­bandi þeirra við ofbeld­is­menn­ina líkur. Þannig að það er mjög mik­il­vægt að hugsa fyrir öryggi og þá ekki síður til að kon­urnar sem þarna munu búa finni fyrir öryggi á heim­ili sínu.“

 

 

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár