Kristján Þór telur hæfi sitt óskert í makrílmálinu þrátt fyrir Samherjaskjölin

Kristján Þór Júl­í­us­son sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra telur sig hafa verið hæfan til að koma að und­ir­bún­ingi og leggja fram laga­frum­varp um kvóta­setn­ingu á mak­ríl í fyrra. Segir frum­varpið almenns en sér­tæks eðlis og að hæf­is­reglur stjórn­sýslu­laga nái ekki til laga­frum­varpa.

Kristján Þór telur hæfi sitt óskert í makrílmálinu þrátt fyrir Samherjaskjölin
Mál sem er almenns eðlis Kristján Þór Júl­í­us­son segir að kvóta­setn­ingin á mak­ríl sé mál sem er almenns eðlis en sér­tæks og að hæf­is­reglur stjórn­sýslu­laga nái ekki til und­ir­bún­ings laga­frum­varpa. Mynd: Pressphotos.biz - (GeiriX)

Kristján Þór Júl­í­us­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins og sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra, telur ekki að hann hefði átt að láta ógert að koma að því leggja fram og mæla fyrir frum­varpi um kvóta­setn­ingu á mak­ríl í fyrra­sumar þrátt fyrir tengsl sín við útgerð­ar­fé­lagið Samherja, einn helsta hags­mun­að­ila máls­ins, og for­svars­menn þess félags.

Þetta kemur fram í svörum frá Krist­jáni Þór Júl­í­us­syni við spurn­ingum Stund­ar­innar um laga­frum­varpið um kvóta­setn­ingu á mak­ríl og stefnu félags mak­ríl­veiði­manna gegn íslenska rík­inu sem öðrum þræði bein­ist gegn sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra þar sem hann er í stefn­unni sagður hafa hyglað stór­út­gerðum. Í stefn­unni segir orð­rétt: „Und­ir­liggj­andi mark­mið með þessum lögum, að mati stefn­anda [Félags mak­ríl­veiði­manna], var bein­línis að auka hlut stærri upp­sjáv­ar­út­gerða í kvót­anum með því að hand­velja þau við­mið­un­arár sem þjón­uðu því mark­miði, fremur en því almenna sjón­ar­miði sem verið hefur við lýði í lögum allt aftur til árs­ins 1983 að miða við stuttan afla­reynslu­tíma.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Samherjaskjölin

„Tími á að íslensk stjórnvöld axli siðferðislega ábyrgð á Samherja“
FréttirSamherjaskjölin

„Tími á að íslensk stjórn­völd axli sið­ferð­is­lega ábyrgð á Samherja“

Leiðtogi namibísku stjón­ar­and­stöð­unnar segir landa sína undr­ast þögn íslenskra stjórn­valda um þá stað­reynd að stærsta spill­ing­ar­mál í sögu Namibíu hafi orðið til fyrir til­stilli íslensks fyr­ir­tækis. Spyr hvort hund­rað millj­óna styrkur Orku­sjóðs sé rík­is­styrkt spill­ing og sendir for­sæt­is­ráð­herra opið bréf og óskar lið­sinnis hennar við að fá Samherja til að greiða bætur og svara til saka.
Samherji sakaður um stórfelld skattalaga- og gjaldeyrisbrot í Namibíu og framsalskrafa væntanleg
RannsóknirSamherjaskjölin

Samherji sak­aður um stór­felld skatta­laga- og gjald­eyr­is­brot í Namibíu og fram­sal­skrafa vænt­an­leg

Rík­is­sak­sókn­ari Namibíu er enn ákveð­inn í því að óska eftir fram­sali þriggja stjórn­enda Sam­herj­a­fé­laga í Namibíu og segir brot á skatta- og gjald­eyr­is­lögum muni mögu­lega bæt­ast við sak­ar­efnin á hendur þeim. Stór­felld skatta­laga­brot Sam­herj­a­fé­laga sögð til rann­sóknar. Sam­herj­a­maður segir íslensk yfir­völd þegar hafa neitað að fram­selja sig.
Íslandsvinkona svo gott sem orðin forseti Namibíu
FréttirSamherjaskjölin

Íslands­vin­kona svo gott sem orðin for­seti Namibíu

Netumbo Nandi-Ndaitwah, utan­rík­is­ráð­herra Namibíu, sem kom hingað til lands í júní og ræddi Sam­herj­a­málið við íslenska ráð­herra og aðstoð­ar­mann eins þeirra, er nú svo gott sem búin að tryggja sér for­seta­emb­ættið í Namibíu. Hún var í morgun kjörin arf­taki for­manns flokks­ins, sitj­andi for­seta sem hyggst setj­ast í helgan stein. Flokk­ur­inn nýtur slíks yfir­burð­ar­fylgis að inn­an­flokks­kosn­ingin er sögð raun­veru­legt for­seta­kjör.
„Þetta eru glæpamenn og hegða sér eftir því“
ViðtalSamherjaskjölin

„Þetta eru glæpa­menn og hegða sér eftir því“

Jóhannes Stef­áns­son, upp­ljóstr­ari í Sam­herj­a­mál­inu, er sáttur við gang rann­sókn­ar­innar hér á landi og segir að fátt geti komið í veg fyrir að málið endi með dómi. Hann gagn­rýnir þó aðgerð­ar­leysi yfir­valda við því þegar Sam­herj­a­menn hafa áreitt, njósnað um eða reynt að hræða hann frá því að bera vitni. Fátt í við­brögðum Sam­herj­a­fólks hafi þó komið honum á óvart, enda fái þau að ganga mun lengra en öðrum lið­ist.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár