Katrín segir enn ótímabært að ræða skipun rannsóknarnefndar

For­sæt­is­ráð­herra vill að stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd fari yfir efn­is­at­riði skýrslu Rík­is­end­ur­skoð­unar áður en ákvörðun verði tekin um hvort skipa eigi rann­sókn­ar­nefnd um sölu­ferli á hlut í Íslands­banka.

Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra.
Katrín Jak­obs­dóttir, for­sæt­is­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Katrín Jak­obs­dóttir, for­sæt­is­ráð­herra og for­maður Vinstri hreyf­ing­ar­innar – græns fram­boðs, telur ekki ástæðu til að meta hvort skipa eigi rann­sókn­ar­nefnd Alþingis til að fara yfir sölu­ferli á hlut í Íslands­banka fyrr en stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd hefur fjallað um skýrsl­una.

Þrír þing­menn stjórn­ar­and­stöð­unnar kröfðu for­sæt­is­ráð­herra um svör hvort hún sé þeirrar skoð­unar að skipa eigi rann­sókn­ar­nefnd til að fara yfir sölu­ferlið. Slík nefnd hefur víð­tæk­ari heim­ildir en Rík­is­end­ur­skoðun.

Skýrsla Rík­is­end­ur­skoð­unar á sölu íslenska rík­is­ins á 22,5 pró­sent hlut í Íslands­banka í mars síð­ast­liðn­um var birt í morgun, sjö mán­uðum og sjö dögum eftir að Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, óskaði eftir því skrif­lega að Rík­is­end­ur­skoðun myndi gera úttekt á útboði og sölu rík­is­ins á hlutnum í Íslands­banka. Beiðnin beind­ist að því hvort ferlið hafi sam­rýmst lögum og góðum stjórn­sýslu­háttum.

Í skýrsl­unni er sölu­ferlið á Íslands­banka gagn­rýnt harka­lega. Rík­is­end­ur­skoðun segir fjöl­þætta ann­marka hafa verið á söl­unni. Í nið­ur­stöðu hennar segir að standa hefði átt betur að söl­unni og hægt hefði verið að fá hærra verð fyrir hlut­inn í bank­an­um. Ákveðið var að selja á und­ir­verði til að ná fram öðrum mark­miðum en lög­bundn­um. Hug­lægt mat réð því hvernig fjár­festar voru flokk­aðir og orð­spors­á­hætta af sölu­ferl­inu var van­met­in.

Rík­is­end­ur­skoðun metur sem svo að stjórn­­­sýslu­út­­­tektin sem stofn­unin fram­kvæmdi sé ekki tæm­andi rann­­sókn á söl­unni á Íslands­­­banka. Þar er til að mynda ekki tekin afstaða til þess hvort rétt­­mætt hafi verið að selja hlut rík­­is­ins í bank­­anum á þeim tíma sem það var gert eða til þeirra 207 aðila sem fengu að kaupa. Það heyrir ein­fald­lega ekki undir Rík­is­end­ur­skoðun að rann­saka slíkt.

Fjöl­margir stjórn­­­ar­and­­stöð­u­­þing­­menn köll­uðu eftir því að skipuð yrði rann­­sókn­­ar­­nefnd Alþingis til að fara yfir sölu­­ferlið, en slík nefnd hefur víð­tæk­­ari heim­ild­ir en Rík­is­end­ur­skoð­un. Því var hafnað af stjórn­­­ar­­flokk­un­um, meðal ann­ars með þeim rökum að vinna þyrfti verkið hratt og því væri Rík­is­end­ur­skoðun betur til þess fallin að sinna því en rann­sókn­ar­nefnd.

Þungur áfellisdómur yfir vinnubrögðum fjármálaráðherra

Kristrún Frosta­dóttir, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, sagði að það hvernig rík­is­stjórnin muni taka á „Íslands­banka­mál­inu“ muni skipta sköpum í því hvernig íslenskt sam­fé­lag mun kom­ast út úr þeirri traust­skrísu sem ríkt hefur síð­ast­liðin 14 ár þegar kemur að fjár­mála­kerf­inu og stjórn­málum.

Kristrún sagði skýrsl­una þungan áfell­is­dóm yfir vinnu­brögðum fjár­mála­ráð­herra „og stað­festir að sala á tug­millj­arða rík­is­eign var á sjálf­stýr­ingu, að ráð­herra hirti ekki um að sinna eft­ir­liti og sölu­ráð­gjafar fengu frítt spil í sölu­ferl­inu“.

Katrín sagði það mik­il­vægt hvernig hugað er að trausti á fjár­mála­kerfið en ekki síður trausti á stjórn­sýsl­una og stjórn­málin. „Það er mik­il­vægt. Í þeirri skýrslu sem nú hefur verið birt kemur fram gagn­rýni, bent er á ann­marka á sölu á þessum hlut í Íslands­banka, sem við eigum að taka alvar­lega. Við eigum að taka þessa gagn­rýni alvar­lega og við eigum að bregð­ast við henni. Þar hygg ég að við séum í öllu falli mörg hver sam­mála hér á þing­inu,“ sagði for­sæt­is­ráð­herra.

Kristrún spurði for­sæt­is­ráð­herra einnig hvort hún væri enn þeirrar skoð­unar eftir lestur skýrsl­unnar að Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, hafi upp­fyllt skyldur sínar við söl­una á Íslands­banka?

Kristrún sagði það alvar­legt að bæði for­sæt­is­ráð­herra og fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra væru marg­saga um sölu­ferli Íslands­banka. „Því liggur auð­vitað bein­ast við að við munum ekki ljúka þessu máli og það verði ekki leitt til lykta nema sett verði á fót rann­sókn­ar­nefnd og rann­sókn­ar­skýrsla fari yfir þessa atburða­rás, því að við getum við ekki setið undir þessu og þjóðin getur ekki setið undir þessum útskýr­ingum,“ sagði Kristrún, sem spurði for­sæt­is­ráð­herra því næst hvort hún muni beita sér fyrir því að rann­sókn­ar­nefnd verði skipuð um málið „svo að við séum ekki svona marg­saga um það hér í þing­inu?“

[adspot]For­sæt­is­ráð­herra svar­aði því ekki beint en sagði skýrsl­una góða og að hún gefi góða mynd af ferl­inu og þeim ann­mörkum sem þar voru.

„Varð ég fyrir von­brigðum með þessa fram­kvæmd? Já,“ sagði Katrín. Margt í skýrsl­unni olli henni von­brigðum. „En það er ekki hægt að segja neitt annað en að stjórn­völd hafi beitt sér fyrir því að þetta mál sé allt uppi á borðum hér á þingi þannig að okkur gef­ist færi á að fara yfir það frá A til Ö.“

Ótal spurningum enn ósvarað

Halldóra Mogensen, þing­maður Pírata, sagði ótal spurn­ingum enn ósvarað. „Við spyrjum okkur enn að því hver eigi að axla ábyrgð á þeim fjöl­mörgu og fjöl­þættu ann­mörkum sem aug­ljós­lega voru á und­ir­bún­ingi og fram­kvæmd söl­unnar. Við spyrjum okkur enn að því hvort fjár­mála­ráð­herra hafi verið skylt að fara yfir til­boðs­bók­ina sem Banka­sýslan færði honum til sam­þykkis. Við spyrjum okkur enn að því hvort fjár­mála­ráð­herra beri enga ábyrgð á að hafa sam­þykkt kauptil­boð frá föður sínum. Og við spyrjum okkur enn að því hvort hæstv. fjár­mála­ráð­herra hafi upp­fyllt eft­ir­lits­skyldur sínar með sölu­ferl­inu og sömu­leiðis hvort hann hafi yfir höfuð staðið lög­lega og rétt að söl­unni“ sagði Halldóra í óund­ir­búnum fyr­ir­spurn­ar­tíma á Alþingi í dag þar sem hún beindi fyr­ir­spurn sinni til for­sæt­is­ráð­herra.

Rétt eins og Kristrún spurði Halldóra hvort for­sæt­is­ráð­herra styðji nú að rann­sókn­ar­nefnd á vegum þings­ins verði falið að rann­saka sölu­ferlið og aðra þætti sem út af standa „í þessu risa­vaxna hags­muna­máli fyrir almenn­ingi“?

Katrín svar­aði á þá leið að það væri kúnstugt að þing­menn vildu strax fara í aðra rann­sókn, áður en stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd gefst kostur á að fjalla um skýrsl­una. Nefndin kom saman á fundi klukkan 16 til að ræða efni skýrsl­unnar.

„Það segir mér kannski að ein­hverjir séu búnir að gefa sér nið­ur­stöð­una áður en vinn­unni er lokið,“ sagði for­sæt­is­ráð­herra.

Halldóra sagði að þó skýrslan svari ekki mörgum spurn­ingum sýni hún svart á hvítu fram á stór­fellt gáleysi gagn­vart hags­munum og eignum almenn­ings, ekki aðeins af hálfu Banka­sýsl­unnar heldur líka fjár­mála­ráð­herra. „Í raun er furðu­legt að hann skuli enn þá sitja sem fjár­mála­ráð­herra á meðan verið er að rann­saka þetta stór­kost­lega gáleysi,“ sagði Halldóra.

„Klúður“

Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir, for­maður Við­reisnar, benti for­sæt­is­ráð­herra á að í stjórn­sýslu­út­tekt Rík­is­end­ur­skoð­unar komi fram að stofn­unin telji sjálf að úttektin sé ekki tæm­andi rann­sókn á söl­unni.

„Það voru fjöl­margir ann­markar á sölu rík­is­stjórn­ar­innar á Íslands­banka. Með öðrum orðum nokkuð klúður,“ sagði Þor­gerður Katrín, sem spurði for­sæt­is­ráð­herra hvað þurfi að gera til þess að rík­is­stjórnin byggi upp traust og trú­verð­ug­leika þannig að hægt sé að stíga nauð­syn­leg skref í því að selja frek­ari rík­is­eignir?

Katrín svar­aði því ekki beint og sagði Þor­gerður það ekki koma henni á óvart að for­sæt­is­ráð­herra seg­ist ekki bera ábyrgð á neinu.

„Það er bara bent á Banka­sýsl­una, það eigi að leggja niður Banka­sýsl­una og þá séum við í góðum málum. Það er engin ábyrgð tekin á þessu klúðri sem kemur fram í vand­aðri skýrslu Rík­is­end­ur­skoð­unar.“

Katrín sak­aði Þorgerði um að leggja henni orð í munn. „Ég sagði: Hér erum við komin með góða skýrslu, vand­aða skýrslu og að sjálf­sögðu þarf að gera eitt­hvað með það. Það þarf að fara yfir þetta.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár