Borgaryfirvöld gera ráð fyrir færri starfsmönnum á leikskóla á næsta ári en í ár

A-hluti borg­ar­sjóðs verður rek­inn með 15,3 millj­arða halla í ár og 6 millj­arða halla á því næsta, en árið 2024 á afkoman að vera orðin jákvæð, með hag­ræð­ingu og leið­rétt­ingu á fram­lögum rík­is­ins til vel­ferð­ar­mála, sam­kvæmt áætl­unum borg­ar­innar.

Dagur B. Eggertsson borgarstjóri Reykjavíkur.
Dagur B. Egg­erts­son borg­ar­stjóri Reykja­víkur. Mynd: Bára Huld Beck

Reykja­vík­ur­borg sér fram á að rekstr­ar­halli A-hluta borg­ar­sjóðs, þess hluta sem rek­inn er fyrir skatt­tekjur, verði tæpir 15,3 millj­arðar króna á þessu ári og tæpir 6 millj­arða á því næsta. Árið 2024 sér borgin hins vegar fyrir sér að rekstr­ar­nið­ur­staðan A-hlut­ans verði orðin jákvæð, sam­kvæmt fjár­mála­stefnu og áætl­unum borg­ar­innar.

Í áætl­unum borg­ar­innar, sem kynntar voru með til­kynn­ingu til Kaup­hallar í morgun og voru til umræðu á borg­ar­stjórn­ar­fundi í dag, er gert ráð fyrir því að frá og með árinu 2024 hafi fram­lög rík­is­ins til mála­flokks fatl­aðs fólks verið leið­rétt sem nemi hluta af þeim halla sem þegar sé við að eiga, og að halli af þeim rekstri auk­ist ekki á næstu fimm árum.

Einnig eru lagðar eru fram áætl­anir um tölu­verða hag­ræð­ingu á ýmsum sviðum borg­ar­innar, þar með talið eitt pró­sent árleg hag­ræð­ing­ar­krafa á launa­kostnað á nær öllum starfs­stöðvum borg­ar­innar á árunum 2023 til 2025, auk hag­ræð­ingar ann­ars rekstr­ar­kostn­aðar.

[adspot]

Auk þess­ara aðgerða boð­aði Dagur B. Egg­erts­son borg­ar­stjóri, í kynn­ingu sinni í borg­ar­stjórn í dag, að aðgerðir til eins millj­arðs króna árlegrar hag­ræð­ingar til við­bótar yrðu lagðar fram áður en fjár­hags­á­ætl­anir borg­ar­innar verða teknar aftur til umræðu á fundi í borg­ar­stjórn í byrjun des­em­ber.

Gengið út frá því að færri starfi á leikskólum á næsta ári en þessu

Samkvæmt áætl­unum borg­ar­innar nær hag­ræð­ing­ar­krafa næstu ára á launa­kostnað einnig til leik- og grunn­skóla borg­ar­innar. Í fram­settum áætl­unum um rekstur skóla- og frí­stunda­sviðs er þannig gengið út frá því að starfs­mönnum á leik­skólum fækki um alls 75 á milli ára, úr 1.775 á þessu ári niður í 1.700 á því næsta, á sama tíma og verið er að gera áætl­anir um að fjölga leik­skóla­plássum.

Einnig er gengið út frá því að starfs­fólki grunn­skóla í borg­inni fækki um 41 á milli ára, úr 2.295 niður í 2.254 og þess er vænst í áætl­unum borg­ar­innar að fjöldi barna sem nýti sér þjón­ustu frí­stunda­heim­ila drag­ist saman um 22 á milli ára.

Hildur Björns­dóttir odd­viti Sjálf­stæð­is­flokks­ins sagði í umræðum á fundi borg­ar­stjórnar í dag að þessar tölur vektu upp áhyggjur og ekki síður það að í áætl­unum borg­ar­innar væri ekki gengið út frá því að hlut­fall fag­mennt­aðra leik­skóla­kenn­ara hækk­aði umfram það sem það er í dag.

„Það verður auð­vitað að vera þannig að áætl­anir borg­ar­innar þær verða að taka mið af þjón­ustu­þörf­inni. Við erum ekki að fara að stytta biðlista á leik­skólum eða frí­stunda­heim­ilum með því að fækka starfs­fólki og van­á­ætla pláss í áætl­unum, það gengur ekki upp,“ sagði Hildur.

Gert ráð fyrir 3,4 milljarða halla sem stefnir í 15,3 milljarða

Þegar fjár­hags­á­ætlun borg­ar­innar fyrir árið 2022 var sam­þykkt undir lok síð­asta árs var gert ráð fyrir því að halli á A-hluta borg­ar­sjóðs yrði 3,4 millj­arðar á þessu ári, en nú er útlit fyrir 15,3 millj­arða halla sem áður segir. Þetta segir borgin í til­kynn­ingu að skýrist „einkum af verð­bólgu og van­fjár­mögnun [rík­is­ins] á rekstri mála­flokks fatl­aðs fólks“.

„Vandinn er mik­ill,“ sagði Einar Þor­steins­son for­maður borg­ar­ráðs og odd­viti Fram­sókn­ar­flokks í umræðum í borg­ar­stjórn í dag.

Hann sagði í ræðu sinni að honum hefði ekki grunað að staðan yrði svona þung er hann ákvað að fara í fram­boð fyrr á árinu, þrátt fyrir að honum hefði grunað að fjár­hags­staða sveit­ar­fé­laga væri þröng.

Hvatti hann borg­ar­full­trúa til þess að vinna saman að úrlausn mála. Sagði Einar þannig að horfa mætti með opnum huga á til­lögur sem bornar voru á borð af Hildi Björns­dóttur odd­vita sjálf­stæð­is­manna, bæði varð­andi breyt­ingar á rekstri Fjöl­skyldu- og hús­dýra­garðs­ins og útboð á rekstri bíla­stæða­húsa í eigu borg­ar­innar til einka­að­ila.

Í áætl­unum borg­ar­innar er gert ráð fyrir því að sam­an­lögð rekstr­ar­nið­ur­staða A- og B-hluta borg­ar­innar verði jákvæð um 8,1 millj­arð króna á næsta ári, og jákvæð um 15,4 millj­arða króna á árinu sem er að líða.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár