Lítið mat lagt á losun gróðurhúsalofttegunda í framkvæmdum hins opinbera

Í svari umhverfis-, orku- og lofts­lags­ráð­herra við fyr­ir­spurn þing­manns Pírata segir að ekki sé tekið til­lit til los­unar gróð­ur­húsa­loft­teg­unda við val­kosta­grein­ingu Fram­kvæmda­sýsl­unnar. Upp­bygg­ing nýs Land­spít­ala er ekki kolefn­is­jöfnuð með „beinum hætti“.

Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, og Björn Leví Gunnarsson, þingmaður Pírata.
Guð­laugur Þór Þórð­ar­son, umhverfis-, orku- og lofts­lags­ráð­herra, og Björn Leví Gunn­ars­son, þing­maður Pírata. Mynd: Samsett/Kjarninn

Ekki var lagt mat á losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda vegna fram­kvæmda við gerð gild­andi sam­göngu­á­ætl­unar og ekki hefur verið lagt mat á losun vegna bygg­ingar nýs Land­spít­ala við Hring­braut. Þetta kemur fram í svari Guðlaugs Þórs Þórð­ar­sonar, umhverfis-, orku- og lofts­lags­ráð­herra við fyr­ir­spurn frá Birni Leví Gunn­ars­syni, þing­manni Pírata. Í svar­inu segir að ávinn­ingur eftir að fram­kvæmdir sam­göngu­á­ætl­unar eru teknar í notkun hafi verið met­inn og að nú sé unnið að svo­kall­aðri LCA-grein­ingu en með henni fæst útreikn­ingur á kolefn­is­spori bygg­inga.

Fyr­ir­spurn Björns var í fimm liðum og í þeim fyrsta er spurt: „Hefur losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda áhrif við mat á fram­kvæmda­kostum við opin­berar fram­kvæmdir?“ Í svari umhverf­is­ráð­herra er vísað til upp­lýs­inga frá fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyti sem segja að ekki sé „tekið til­lit til los­unar gróð­ur­húsa­loft­teg­unda við val­kosta­grein­ingu Fram­kvæmda­sýsl­unnar – Rík­is­eigna.“

Engu að síður þurfi allar fram­kvæmdir sem kosta yfir hálfan millj­arð að fara í umhverf­is­vott­un­ar­ferli. Í ferl­inu eru gerðar „miklar kröfur til þess að valdar séu umhverf­is­vænar lausnir og að við fram­kvæmd­ina sé losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda lág­mörkuð eins og hægt er,“ eins og það er orðað í svar­inu. Engin sér­stök við­mið um umfang los­unar eru nefnd önnur en þau að los­unin skuli lág­mörkuð.

Unnið að vistferilsgreiningu fyrir nýjan Landspítala

Líkt og áður segir liggur ekki fyrir mat á losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda vegna bygg­ingar nýs Land­spít­ala. Nú sé unnið að svo­kall­aðri LCA-grein­ingu sem meti los­un­ina. Á vef verk­fræði­stof­unnar Eflu segir að til­gangur LCA-grein­ingar sé að reikna heildar umhverf­is­á­hrif sem verða vegna fram­leiðslu, notk­unar og förg­unar á vöru eða þjón­ustu. Með slíkri grein­ingu megi meta umhverf­is­á­hrif og kolefn­is­spor vöru eða þjón­ustu.

Í svar­inu segir enn fremur að nýlega hafi verk­efnið fengið lokaum­hverf­is­vottun í hinu alþjóð­lega BREEAM-vott­un­ar­k­ef­inu og að unnið sé að umhverf­is­vottun ann­arra nýbygg­inga við Hring­braut.

Losun vegna hvers kílómeters malbiks 332 tonn

Björn spurði einnig út í áætl­aða losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda vegna fram­kvæmda sam­kvæmt gild­andi sam­göngu­á­ætlun til fimm ára. „Samkvæmt upp­lýs­ingum frá inn­við­a­ráðu­neyt­inu var ekki lagt mat á losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda vegna fram­kvæmda við gerð gild­andi sam­göngu­á­ætl­unar, ein­göngu á ávinn­ing­inn eftir að fram­kvæmd­irnar eru teknar í notkun,“ segir í svari umhverf­is­ráð­herra.

Þar er tekið fram að Vega­gerðin meti hve mikið vot­lendi raskast við ein­stakar fram­kvæmdir og í kjöl­farið end­ur­heimtir Vega­gerðin jafn­mikið á móti í sam­starfi við sér­fræði­stofn­anir. Þannig hafi Vega­gerðin end­ur­heimt 360 hekt­ara vot­lendis frá árinu 2002. Að auki á Vega­gerðin í sam­starfi við skóg­rækt­ar­fé­lög við end­ur­heimt skóga sem raskast við fram­kvæmdir og í sam­starfi við Land­græðsl­una um end­ur­heimt ann­arra vist­kerfa.

„Nokkrar vist­fer­ils­grein­ingar hafa verið gerðar fyrir fram­kvæmdir Vega­gerð­ar­innar fyrir m.a. brýr og 1+1 stofn­vegi. Miðað við þær vist­fer­ils­grein­ingar er losun vegna bygg­ingar 1 km 1+1 þjóð­vegar um 332 t CO2 ígildi. Kolefn­is­spor bygg­ingar á brúm eru 1,0 –2,4 tonn á nýt­an­lega fer­metra brú­ar­g­ólfs. Rétt er að taka fram að inni í þessum tölum er líka losun vegna fram­leiðslu og flutn­ings hrá­efna en ekki ein­ungis losun á verk­stað,“ segir í svari umhverf­is­ráð­herra um losun vegna vega­fram­kvæmda.

Framkvæmdir ekki kolefnisjafnaðar

Að lokum er sjónum beint að kolefn­is­jöfnun í fyr­ir­spurn Björns Levís en hann spyr hvort og þá hvernig verk­efnin sem um ræðir eru kolefn­is­jöfnuð. Fram­kvæmdir við nýjan Land­spít­ala eru ekki kolefn­is­jafn­aðar, í það minnsta ekki „með beinum hætti“ sam­kvæmt upp­lýs­ingum frá fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyti.

Ekki hefur verið farið í form­lega kolefn­is­jöfnun í verk­efnum Vega­gerð­ar­innar en minnst er á áður­nefnda end­ur­heimt vot­lendis, skóga og vist­kerfa í svari umhverf­is­ráð­herra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár