Framsóknarflokkur sagður horfa til samstarfs með öðrum en Sjálfstæðisflokki í Mosfellsbæ

Samkvæmt heim­ildum Kjarnans telur Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn í Mos­fellsbæ nið­ur­stöður kosn­ing­anna ákall frá kjós­endum um að binda enda á stjórn­ar­tíð Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Þetta er í fyrsta sinn í rúm 50 ár sem flokk­ur­inn er ekki sá stærsti í bænum.

Framsóknarflokkurinn í Mosfellsbæ fékk fjóra bæjarfulltrúa kjörna í svietarstjórnakosningum um helgina og er í lykilstöðu við myndun meirihluta.
Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn í Mos­fellsbæ fékk fjóra bæj­ar­full­trúa kjörna í sviet­ar­stjórna­kosn­ingum um helg­ina og er í lyk­il­stöðu við myndun meiri­hluta.

Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn í Mos­fellsbæ er í lyk­il­stöðu í meiri­hluta­við­ræðum í bænum eftir að meiri­hluti Sjálf­stæð­is­flokks og Vinstri grænna féll í sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ing­unum um helg­ina.

Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn hefur rætt við alla flokka, óform­lega þó. Halla Karen Krist­jáns­dóttir, odd­viti Fram­sókn­ar­flokks­ins í Mos­fells­bæ, segir í sam­tali við RÚV að hún skynji að bæj­ar­búum hafi fund­ist vera kom­inn tími á breyt­ingar.

Samkvæmt heim­ildum Kjarnans metur flokk­ur­inn það svo að nið­ur­stöður kosn­ing­anna sýni skýrt ákall frá kjós­endum að binda enda á stjórn­ar­tíð Sjálf­stæð­is­flokks­ins í bænum og því sé horft til að mynda meiri­hluta með öðrum en flokknum.

[links]Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn fékk 27,3 pró­sent atkvæða og fjóra full­trúa kjörna en tap­aði um tólf pró­sent fylgi frá síð­ustu kosn­ingum. Sam­starfs­flokkur þeirra í meiri­hluta, Vinstri græn, náðu ekki manni inn. Framsókn bætti við sig gríð­ar­legu fylgi, fékk 32,3 pró­sent atkvæða og fjóra menn kjörna í bæj­ar­stjórn. Flokk­ur­inn hefur ekki átt mann í bæj­ar­stjórn Mos­fells­bæjar frá árinu 2010. Á kjör­tíma­bil­inu á und­an, árin 2006-2010, hafði hann einn full­trúa. Í síð­ustu kosn­ingum fékk flokk­ur­inn aðeins 2,9 pró­sent atkvæða.

Vinir Mos­fells­bæjar fengu 13 pró­sent atkvæða og einn mann kjör­inn, sem og Sam­fylk­ing og Viðreisn, sem voru þó með örlítið minna fylgi eða níu pró­sent og 7,8 pró­sent.

Samkvæmt heim­ildum Kjarnans búast margir við til­kynn­ingu frá Fram­sókn­ar­flokknum í Mos­fellsbæ síðar í dag eða á morgun um hvaða flokkar taki þátt í form­legum meiri­hluta­við­ræðum. Lík­leg­ast er talið að Framsókn myndi meiri­hluta með Sam­fylk­ingu og Viðreisn en einnig kemur til greina að bjóða Vinum Mos­fells­bæjar að taka þátt í meiri­hluta­myndun.

Halla Karen segir í athuga­semd sem send var til Kjarnans síð­degis í dag að Framsókn hafi ekki úti­lokað neinn flokk varð­andi mögu­legt meiri­hluta­sam­starf. „Allur orðrómur og frétta­flutn­ingur sem heldur öðru fram er því bein­línis rangur.“

Sterkt stjórnmálafl í áratugi

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hefur um langan tíma verið mjög sterkt stjórn­mála­afl í Mos­fellsbæ, áður í Mos­fells­sveit. Sem dæmi hlaut hann tæp 64 pró­sent atkvæða í kosn­ing­unum árið 1990. Hann bauð fyrst fram árið 1970. Þá varð Jón M. Guð­munds­son, bóndi á Reykjum, odd­viti hrepps­ins líkt og hann hafði verið frá árinu 1962 og átti eftir að vera til árs­ins 1981. Hann var svo hrepp­stjóri til 1990. Í þessi 52 ár hefur Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hlotið flest atkvæði allra fram­boða í sveit­ar­fé­lag­inu og nokkrum sinnum hreinan meiri­hluta. Það gerð­ist t.d. árin 1982, 1986, 1990 og árin 2002. Síðan þá hefur hann reyndar tvisvar sinnum verið mjög nálægt hreinum meiri­hluta atkvæða, árin 2010 (49,8%) og 2014 (48,7%) en bæði þess ár hlaut hann engu að síður meiri­hluta bæj­ar­full­trúa

Í kosn­ing­unum árið 2006 mynd­aði Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn stjórn með Vinstri grænum og hefur það sam­starf haldið síðan. Í síð­ustu kosn­ingum hlutu sjálf­stæð­is­menn 39,2 pró­sent atkvæða og mynd­aði meiri­hluta með Vinstri grænum sem fékk 9,6 pró­sent fylgi. Haraldur Sverr­is­son, sem verið hefur bæj­ar­stjóri frá árinu 2007 bauð sig ekki fram í kosn­ing­unum nú og því ljóst að nýr bæj­ar­stjóri mun taka við bráð­lega við.

Verði Framsókn, Viðreisn og Sam­fylk­ing í nýjum meiri­hluta mun hann sam­an­standa af sex bæj­ar­full­trúum sem er naumur meiri­hluti þar sem bæj­ar­full­trúum var fjölgað úr níu í ell­efu fyrir kosn­ing­arnar. Verði Vinir Mos­fells­bæjar með í meiri­hluta verður hann skip­aður sjö bæj­ar­full­trúum og Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn verður einn eftir í minni­hluta.

Fréttin hefur verið upp­færð eftir að athuga­semd barst frá odd­vita Fram­sókn­ar­flokks­ins í Mos­fellbæ.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2022

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár