Önnur Norðurlönd glíma einnig við lítið framboð íbúða á sölu

Rétt eins og á Íslandi hefur mik­ill þrýst­ingur verið á fast­eigna­mark­aðnum í Noregi, Svíþjóð og Danmörku á síð­ustu mán­uðum. Hratt hefur gengið á fram­boð á eignum til sölu í lönd­unum þremur, sem er í lág­marki þessa stund­ina.

Riddarahólmurinn í Stokkhólmi í Svíþjóð.
Ridd­ara­hólm­ur­inn í Stokk­hólmi í Svíþjóð. Mynd: Benoît Derrier/Wikimedia Commons.

Fast­eigna­mark­að­ur­inn í Noregi, Svíþjóð og Danmörku hefur sýnt sömu merki eft­ir­spurn­ar­þrýst­ings á síð­ustu mán­uðum. Framboð eigna á sölu mælist nú í met­lægðum í Osló og Stokk­hólmi og í Danmörku hefur það ekki mælst minna. Þrátt fyrir það hefur áhug­inn fyrir íbúða­kaupum ekki gefið eftir og hefur því fast­eigna­verð hækkað hratt.

Mesta velta síðan mælingar hófust

Samkvæmt norska við­skipta­blað­inu Dagens Nær­ingsliv hefur veltan á fast­eigna­mark­aði í aust­ur­hluta lands­ins, þar sem höf­uð­borgin Osló er, auk­ist hratt á síð­ustu miss­erum. Frá miðjum des­em­ber í fyrra hafa þar selst um tvö þús­und íbúðir, en það er mesta veltan á svæð­inu síðan mæl­ingar á henni hófust árið 2003.

Svipaða sögu er að segja frá hinum Norð­ur­lönd­unum, sam­kvæmt sam­an­tekt sænsku síð­unnar Dagens Logistik. Þar segir að fjöldi kaup­samn­inga í Svíþjóð, Noregi, Finn­landi og Danmörku í fyrra hafi verið 15-33 pró­sentum meiri en á árinu 2020.

Í Danmörku seld­ust yfir sjö þús­und íbúðir í síð­ustu mán­uði, en sam­kvæmt Boligsiden, sem heldur utan um töl­fræði um hús­næð­is­mark­að­inn, er það næst­mesta mán­að­ar­lega veltan sem mælst hefur síðan mæl­ingar á henni hófust árið 2010. Síðan bætir við að veltan sé rúm­lega fjórð­ungi meiri en hún var að með­al­tali á sama tíma árs árin 2015-2019.

Íbúðum á sölu fækkar

Á sama tíma og fjöldi keyptra íbúða eykst hefur óseldum íbúðum hins vegar fækkað tölu­vert. Samkvæmt Dagens Nær­ingsliv eru nú rúm­lega 800 íbúðir á sölu í Osló, en þær voru um 1.500 tals­ins áður en far­ald­ur­inn hófst í febr­úar 2020.

Fjöldi íbúða í Danmörku á sölu hefur einnig minnkað, en þær voru alls rúm­lega 22 þús­und tals­ins í byrjun þessa mán­aðar. Fram­boðið minnk­aði um sjö pró­sent frá því í fyrra og er það nú það lægsta sem Boligsiden hefur mælt.

Í Svíþjóð hefur sams konar þróun átt sér stað. Samkvæmt frétt frá fyr­ir­tæk­inu Fastig­hets­byrån hefur fram­boðið á íbúðum til sölu verið ein­stak­lega lágt í Stokk­hólmi, Gauta­borg og Malmö á und­an­förnum mán­uðum. Johan Engström, fram­kvæmda­stjóri fyr­ir­tæk­is­ins, segir eft­ir­spurn­ina samt sem áður mikla og ekki hafa minnkað þrátt fyrir óróa á hluta­bréfa­mark­aði og tal um hækk­andi stýri­vexti.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár