„Þrátt fyrir að ég vilji fá handritin heim vil ég fá dönsku fjölmiðlastefnuna“

Lilja Alfreðs­dóttir ráð­herra menn­ingar og við­skipta ætlar sér að taka RÚV af aug­lýs­inga­mark­aði og lýsir því yfir að hún vilji fara „dönsku leið­ina“ í mál­efnum fjöl­miðla hér á landi.

Lilja Dögg Alfreðsdóttir ráðherra fjölmiðla vill taka RÚV af auglýsingamarkaði og innleiða fjölmiðlastefnu að danskri fyrirmynd á Íslandi.
Lilja Dögg Alfreðs­dóttir ráð­herra fjöl­miðla vill taka RÚV af aug­lýs­inga­mark­aði og inn­leiða fjöl­miðla­stefnu að danskri fyr­ir­mynd á Íslandi. Mynd: Bára Huld Beck

Lilja Dögg Alfreðs­dóttir menn­ingar- og við­skipta­ráð­herra seg­ist ætla að beita sér fyrir því að RÚV fari af aug­lýs­inga­mark­aði og vill horfa til Dan­merkur sem fyr­ir­myndar fyrir íslenska fjöl­miðla­mark­að­inn – fara „dönsku leið­ina“ í mál­efnum fjöl­miðla.

„Þrátt fyrir að ég vilji fá hand­ritin heim vil ég fá dönsku fjöl­miðla­stefn­una,“ sagði Lilja meðal ann­ars í ávarpi sínu á mál­þingi sem Blaða­manna­fé­lag Íslands og Rann­sókna­setur um fjöl­miðlun og boð­skipti við Háskóla Íslands standa fyrir í húsa­kynnum Blaða­manna­fé­lags­ins síð­degis í dag.

Lilja segir að í hennar nýja ráðu­neyti menn­ingar- og við­skipta, þar sem fjöl­miðlar eru til húsa, verði rýnt „gríð­ar­lega vel“ í danska laga­texta um mál­efni fjöl­miðla og halda áfram á þeirri veg­ferð sem hófst í upp­hafi árs 2018.

Í Danmörku er DR ekki á aug­lýs­inga­mark­aði og stutt er við einka­rekna fjöl­miðla með nokkrum mis­mun­andi leiðum með það að mark­miði að tryggja fjöl­ræði á fjöl­miðla­mark­aði.

Auglýsingar á RÚV trufli markaðinn

Lilja var hörð á því í ræðu sinni að hún myndi beita sér fyrir því að RÚV fari af aug­lýs­inga­mark­aði. Hún segir að með því verði ekki tryggt að aug­lýs­ing­arnar sem í dag eru á RÚV fær­ist yfir á aðra ljós­vaka­miðla og að hún hafi skiln­ing á þeim sjón­ar­miðum að það sé þjón­usta við neyt­endur að Rík­is­út­varpið selji aug­lýs­ingar.

„Ég tel hins vegar og það er mín póli­tíska sýn að þetta trufli mark­að­inn. Og ég mun halda áfram þar,“ sagði Lilja. Hún sagði að styrkja þyrfti við íslenska fjöl­miðla, sem væru nokkuð sterkir þrátt fyrir að umgjörð þeirra væri veik í dag.

[adspot]

Nefndi hún fyrir því þau rök að fjöl­miðlar veittu nauð­syn­legt aðhald í sam­fé­lag­inu og að án þeirra væri hætta á að lesskiln­ingi ungs fólk myndi hraka. Í ræðu sinni nefndi Lilja einnig að hún vildi auka sann­girni í skatt­lagn­ingu á milli íslenskra fjöl­miðla og erlendra stór­fyr­ir­tækja sem selja aug­lýs­ingar á net­inu.

Átök við þingmenn og fjölmiðla

Ráðherra fjall­aði einnig um þau átök sem hafa verið um það opin­bera styrkja­kerfi við einka­rekna fjöl­miðla sem tekið var upp á síð­asta kjör­tíma­bili.

Lilja sagði málið hafa verið sér erfitt sem ráð­herra, átök hafi verið á milli stjórn­ar­flokk­anna og við ein­staka þing­menn og einnig ákveðna fjöl­miðla. Sagðist hún hafa orðið fyrir von­brigðum með það hvernig sumir fjöl­miðlar nálg­uð­ust umræð­una um fjöl­miðla­styrki. Þar nefndi Lilja sér­stak­lega bæði Símann og Sýn.

Hún sagði að Sýn hefði lagst „alfarið gegn þessu“ og að hún hafi vitað að það „myndi ger­ast því það er svo­lítið í DNA-inu á þessum aðilum og það á líka við um Símann, þeir voru of fínir fyrir þetta. Og þá segi ég bara, ef þið eruð of fínir fyrir þetta, getið þið þá ekki bara vin­sam­leg­ast skilað þessum pen­ingum í rík­is­sjóð svo litlu og með­al­stóru fjöl­miðl­arnir fái þetta, sem hafa ekki jafn sterka bak­hjarla og þið,“ sagði Lilja meðal ann­ars, í ræðu sinni.

Síminn rekur ekki frétta­þjón­ustu og upp­fyllti ekki skil­yrði fyrir styrkj­unum. Félagið fékk því enga styrki og getur ekki skilað þeim. Það skil­aði hins vegar umsögn um frum­varp Lilju um styrki til fjöl­miðla þar sem lagst var gegn því. Þess í stað vildi Síminn að Alþingi myndi leggja áherslu á að beina rík­is­stuðn­ingi í þá veru að styrkja fjöl­miðla sem sinna þýð­ingum á efni. Á meðal þeirra sem það gera er Síminn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár