FÍB segir Sjóvá hafa rift samningi í hefndarskyni

Félag íslenskra bif­reiða­eig­anda telur Sjóvá hafa rift samn­ingi um vega­að­stoð í hefnd­ar­skyni eftir að FÍB gagn­rýndi trygg­inga­fé­lagið fyrir fimm millj­arða króna greiðslur til hlut­hafa.

„Ekki er hægt að álykta annað en að stjórnendur Sjóvár hafi sagt viðskiptunum upp til að refsa FÍB fyrir gagnrýni á fimm milljarða króna greiðslur til hluthafa tryggingafélagsins,“ segir í tilkynningu FÍB.
„Ekki er hægt að álykta annað en að stjórn­endur Sjóvár hafi sagt við­skipt­unum upp til að refsa FÍB fyrir gagn­rýni á fimm millj­arða króna greiðslur til hlut­hafa trygg­inga­fé­lags­ins,“ segir í til­kynn­ingu FÍB. Mynd: Birgir Þór Harðarson

FÍB-aðstoð, vega­þjón­usta sem stendur félags­mönnum í Félagi íslenskra bif­reiða­eig­enda (FÍB) til boða alla daga árs­ins, hefur ann­ast Vega­að­stoð Sjóvár síðan 2007. Í til­kynn­ingu FÍB vegna upp­sagn­ar­innar segir að engar skýr­ingar hafi fylgt fyr­ir­vara­lausri upp­sögn­inni. „Ekki er hægt að álykta annað en að stjórn­endur Sjóvár hafi sagt við­skipt­unum upp til að refsa FÍB fyrir gagn­rýni á fimm millj­arða króna greiðslur til hlut­hafa trygg­inga­fé­lags­ins,“ segir í til­kynn­ingu FÍB.

Upp­sögnin barst í lok októ­ber, fjórum vikum eftir að FÍB birti áskorun til Sjóvár um að skila ofteknum iðgjöldum til við­skipta­vina frekar en láta þau renna í vasa hlut­hafa. Sjóvá greiddi fasta upp­hæð mán­að­ar­lega til FÍB-aðstoðar fyrir að sjá um Vega­að­stoð fyrir félaga í Stofni.

„Afar gott sam­starf hefur verið við starfs­fólk Sjóvár um þessa þjón­ustu. Tíma­setn­ing upp­sagn­ar­innar sýnir ofur­við­kvæmni stjórn­enda Sjóvár fyrir heil­brigðu aðhaldi hags­muna­sam­taka neyt­enda. Hvernig staðið var að upp­sögn­inni stað­festir þá ályktun FÍB. Í samn­ingnum eru ákvæði um að aðilar hans skuli leit­ast við að ná sam­komu­lagi ef þörf krefur. Ekkert slíkt var reynt af hálfu Sjóvár, aðeins ein­föld upp­sögn á almennt net­fang FÍB,“ segir í til­kynn­ingu FÍB, þar sem einnig kemur fram að þrátt fyrir að félagið hafi í ára­tugi gagn­rýnt óeðli­lega há iðgjöld öku­tækja­trygg­inga og sam­keppn­is­skort á trygg­inga­mark­aðnum hafi það ekki truflað sam­starfið um vega­að­stoð­ina, enda um óskyld verk­efni að ræða.

FÍB gagnrýndi áform um fimm milljarða króna hluthafagreiðslur

Í umræddri áskorun FÍB til Sjóvár, sem send var 29. sept­em­ber, sagði meðal ann­ars:

„Sjóvá hefur kynnt áform um að greiða hlut­höfum 2,5 millj­arða króna í tengslum við hluta­fjár­lækkun félags­ins. Þessi fjár­hæð kemur til við­bótar við 2,65 millj­arða króna arð­greiðslu árs­ins. Samtals ætlar Sjóvá því að greiða hlut­höfum rúm­lega 5 millj­arða króna. Ástæðu greiðsl­unnar til hlut­hafa segir Sjóvá vera þá að geta félags­ins til að greiða tjón sé „fyrir ofan efri mörk við­miða.“ Það er vægt til orða tekið. Sjóvá liggur á gríð­ar­legum fjár­munum sem félagið hefur sankað að sér með ofteknum iðgjöldum, ekki síst af bíla­trygg­ingum. Hlut­hafar Sjóvá eiga ekki þessi „efri mörk við­miða“, heldur trygg­inga­takar. Með réttu á Sjóvá að skila þessum 2,5 millj­örðum króna til við­skipta­vina sinna.“

FÍB skor­aði í kjöl­farið á stjórn Sjóvá að leggja til við hlut­hafa­fund félags­ins að hluta­fjár­lækk­unin gangi til við­skipta­vina. Stjórn Sjóvár varð ekki við þeirri áskorun. Á hlut­hafa­fundi Sjóvá 19. októ­ber var sam­þykkt að greiða hlut­höfum félags­ins 2,5 millj­arða króna til að „laga fjár­magns­skipan félags­ins“ eins og segir í fund­ar­gerð­inni. „Á mæltu máli þýddi þetta orða­lag að Sjóvá hafði safnað mun meiri fjár­munum í sjóði sína en þurfti til að standa undir trygg­inga­starf­sem­inni. FÍB taldi aftur á móti eðli­legra að skila þessum ofteknu fjár­munum til við­skipta­vina félags­ins,“ segir í til­kynn­ingu FÍB.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

FÍB

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár