Launafólk í verri stöðu en fyrir ári síðan

Þrátt fyrir mik­inn hag­vöxt í fyrra hefur fjár­hags­staða og and­leg heilsa launa­fólks versnað tölu­vert á milli ára, sam­kvæmt nýrri skoð­ana­könnun frá Vörðu. Tæpur helm­ingur inn­flytj­enda seg­ist nú eiga erfitt með að ná endum saman.

Fjár­hags­staða og and­leg heilsa launa­fólks í ASÍ og BSRB versn­aði tölu­vert á síð­asta ári. Þetta kemur fram í nið­ur­stöðum skoð­ana­könn­unar frá Vörðu – Rann­sókn­ar­stofnun vinnu­mark­að­ar­ins, sem kynntar voru á veffundi í dag.

Innflytjendur verst úti

Samkvæmt skoð­ana­könn­un­inni áttu þrír af hverjum tíu svar­endum erfitt með að ná endum saman undir lok síð­asta árs. Þetta er nokkuð hærra hlut­fall en mæld­ist í annarri skoð­ana­könnun á vegum Vörðu fyrir ári síðan, þar sem 27 pró­sent þeirra sagð­ist vera í fjár­hagskröggum.

Mest hefur staðan versnað hjá inn­flytj­endum, en 46 pró­sent þeirra sögð­ust eiga erfitt með að ná endum saman við síð­ustu árs­lok. Sam­bæri­legt hlut­fall nam 35 pró­sentum í lok árs­ins 2020.

Skoð­ana­könn­unin mældi einnig efn­is­legan skort við­mæl­enda meðal ann­ars með því að spyrja þá hvort þeir ættu efni á ýmsum heim­il­is­tækjum, bíl og árlegt frí með fjöl­skyldu. Í öllum þeim níu þáttum sem efn­is­legur skortur var mældur var hann meiri á meðal inn­flytj­enda.

Mestur var aðstöðu­mun­ur­inn í mögu­leik­anum að eiga frí með fjöl­skyld­unni, þar sem tæp­lega þrír af hverjum tíu inn­flytj­endum töldu sig ekki eiga efni á því. Til sam­an­burðar sögð­ust um 18 pró­sent inn­fæddra ekki eiga efni á árlegu fríi.

Andleg heilsa verri

Til við­bótar við lak­ari fjár­hags­lega stöðu bendir könn­unin til að and­legri heilsu laun­þega hér­lendis hafi hrakað á síð­asta ári. Fleiri við­mæl­endur finna nú nán­ast dag­lega fyrir nei­kvæðum and­legum ein­kennum líkt og dep­urð, sinnu­leysi og lágt sjálfs­á­lit.

Sem fyrr er staðan verri á meðal inn­flytj­enda, en í kringum 40 pró­sent þeirra bjuggu við slæma and­lega heilsu sam­kvæmt svoköll­uðum PHQ-9 skala undir lok síð­asta árs. Um 25 pró­sent inn­fæddra voru í sömu stöðu, sam­kvæmt könn­un­inni.

Einnig er nokkur munur á and­legri heilsu á milli kynja, en fleiri konur virð­ast búa við slæma and­lega heilsu heldur en karlar. Þó hefur körlum sem hugsa um ein­hvers konar sjálfs­skaða fjölgað tölu­vert á milli ára.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár