Fjölskylda og vinir Halldórs kostuðu ritun ævisögu hans

Ævisaga Halldórs Ásgríms­sonar, eins umdeildasta stjórn­mála­leið­toga Íslands á seinni hluta 20. aldar og byrjun þeirra 21., var kostuð af fjöl­skyldu hans og vinum. Höf­und­ur­inn Guðjón Frið­riks­son segir að hann hafi notið fulls frelsis við ritun bók­ar­innar. Bókin er ekki mjög gagn­rýnin á póli­tískan feril Halldórs.

Fjölskylda og vinir Halldórs kostuðu ritun ævisögu hans
Ógagn­rýnin mynd Myndin sem dregin er upp af póli­tískum ferli Halldórs Ásgríms­sonar í bók­inni er ógagn­rýnin.

Ævisaga Halldórs Ásgríms­sonar, fyrr­ver­andi for­manns Fram­sókn­ar­flokks­ins og for­sæt­is­ráð­herra, var skrifuð að und­ir­lagi og kostuð af fjöl­skyldu Halldórs sjálfs. Bókin er eftir Guðjón Frið­riks­son og kom hún út hjá Máli og menn­ingu, sem er hluti af For­lag­inu, fyrir jólin og segir sög­una af lífs­hlaupi Halldórs Ásgríms­sonar. Halldór lést árið 2015. 

Þar eru meðal ann­ars sér­stakir kaflar um umdeild og eld­fim póli­tísk mál eins og stór­iðju­fram­kvæmdir við Kára­hnjúka­virkjun, einka­væð­ingu rík­is­fyr­ir­tækja eins og Íslenskra aðal­verk­taka og rík­is­bank­anna í byrjun ald­ar­innar og Íraks­stríðið. Segja má að Halldór Ásgríms­son sé einn allra þekkt­asti stjórn­mála­maður Íslands síð­ast­liðna ára­tugi og einnig einn sá umdeild­asti vegna aðkomu sinnar að umræddum málum meðal ann­ars. 

Í sam­tali við Stundina segir Guðjón að fjöl­skylda og vinir Halldórs hafi stofnað félag utan um útgáfu bók­ar­innar og að hann hafi svo fengið greitt fyrir vinnu sínu frá umræddu félagi. „Það var stofnað félag sem greiddi mér, það voru fjöl­skylda hans og …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
4
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár