Vinnumálastofnun spáir því að atvinnuleysi gæti aukist á ný í nóvember

Atvinnu­leysi dróst lít­il­lega saman milli mán­aða og er nú á svip­uðum stað og fyrir far­aldur, þegar það mæld­ist meira en það hafði gert í átta ár. Yfir sjö þús­und manns fá hluta launa sinna frá rík­inu vegna tíma­bund­ins ráðn­inga­styrks.

Unnur Sverrisdóttir er forstjóri Vinnumálastofnunar.
Unnur Sverr­is­dóttir er for­stjóri Vinnu­mála­stofn­unar. Mynd: Almannavarnir

Atvinnu­leysi dróst lít­il­lega saman í síð­asta mán­uði og mæld­ist 4,9 pró­sent, en var slétt fimm pró­sent mán­uð­inn á undan. Þetta er minnsti sam­dráttur í atvinnu­leysi sem mælst hefur milli mán­aða frá því að það tók að hjaðna í upp­hafi árs.

Fjöldi þeirra sem er að öllu leyti án atvinnu hefur rúm­lega helm­ing­ast frá því mars þegar alls 21.019 voru í þeim hópi. Þeir voru 10.083 í lok nýlið­ins októ­ber.

Þetta kemur fram í nýrri mán­aða­skýrslu Vinnu­mála­stofn­unar um vinnu­mark­að­inn á Íslandi í lok síð­asta mán­aðar.

Hlut­falls­lega er atvinnu­leysið nú á nán­ast sama stað og það var fyrir kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn en það mæld­ist fimm pró­sent í lok febr­úar 2020. Það var hæsta atvinnu­leysi sem mælst hafði hér­lendis í næstum átta ár, eða frá því í apríl 2012. Helsta orsakir þess voru gjald­þrot flug­fé­lags­ins WOW air og áhrif þess á ferða­þjón­ustu og loðnu­brestur, sem saman leiddu til mik­ils sam­dráttar í hag­vexti.

Vinnu­mála­stofnun spáir því að atvinnu­leysi muni annað hvort lítið breyt­ast eða aukast lít­ils háttar í nóv­em­ber vegna árs­tíða­sveiflu og verði á bil­inu fimm til 5,3 pró­sent.

Langtímaatvinnulausir mun fleiri en þeir voru fyrir faraldur

Lang­tíma­at­vinnu­lausir, þeir sem hafa verið án atvinnu í meira en eitt ár, voru 4.252 í lok síð­asta mán­aðar. Þeim fækk­aði frá því í sept­em­ber en eru mun fleiri en þeir voru áður en kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn skall á.

[adspot]Í febr­úar 2020 voru 9.162 manns atvinnu­lausir hér­lend­is. Af þeim höfðu 1.893 verið án atvinnu í meira en 12 mán­uði sem voru 1.137 fleiri en höfðu verið án atvinnu í ár eða lengur í lok febr­úar 2019. Því voru um 21 pró­sent atvinnu­lausra í febr­úar 2020 flokk­aðir sem lang­tíma­at­vinnu­laus­ir.

Hlut­fall atvinnu­lausra sem hafði verið án starfs í ár eða lengur í lok októ­ber var 42 pró­sent og fjöldi lang­tíma­at­vinnu­lausra er 124 pró­sent meiri en hann var áður en kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn skall á.

Þeim sem hafa verið atvinnu­lausir í sex til tólf mán­uði fækk­aði á milli mán­aða en þeir voru 2.053. Í skýrslu Vinnu­mála­stofn­unar kemur fram að þeir hafi verið 5.49i fyrir ári síðan og því hefur fækkað veru­lega í þessum hópi frá því að atvinnu­leysið var sem mest vegna far­ald­urs­ins.

Pólverjar helmingur atvinnulausra erlendra borgara

Atvinnu­leysið er mun meira hjá erlendum rík­is­borg­urum sem hér búa en öðrum, en í lok sept­em­ber bjuggu 54.410 erlendir rík­is­borg­arar hér­lendis sem þýðir að þeir voru þá 14,4 pró­sent allra íbúa.

[links]Þeim hefur fjölgað á Íslandi frá því að efna­hags­sam­dráttur vegna kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins hófst.

Í jan­úar síð­ast­liðnum var atvinnu­leysi á meðal þeirra 24 pró­sent og í lok októ­ber mæld­ist það enn 11 pró­sent, eða langt umfram almennt atvinnu­leysi. Um 40 pró­sent allra atvinnu­lausra til­heyra hópi erlendra atvinnu­leit­enda.

Flestir þeirra, alls 48 pró­sent allra erlendra rík­is­borg­ara á atvinnu­leys­is­skrá, koma frá Póllandi. Því næst koma Litháar, Lettar, Rúmenar og Spán­verjar en færri af öðrum þjóð­ernum.

Ríkið greiðir hluta launa hjá sjö þúsund manns

Sem stendur eru enn í gildi svo­­kall­aðir ráðn­­inga­­styrkir, sem greiddir eru út í tengslum við atvinnu­átakið Hefjum störf. Það snýst um að rík­­is­­sjóður greiði þorra launa nýrra starfs­­manna fyr­ir­tækja tíma­bund­ið, en þeir renna flestir út á næstu vik­­um. Í síð­­asta mán­uði voru 79 pró­­sent aug­lýstra starfa átaks­verk­efni eða reynslu­ráðn­­ingar og mörg þús­und manns eru ráðin á þessum ráðn­­ing­­ar­­styrkj­u­m.

Sam­kvæmt mæla­borði Vinnu­mála­stofn­unar hafa 7.063 ráðn­ingar átt sér stað á grund­velli átaks­ins frá 1. mars, en tæp­lega 300 ráðn­ingar voru gerðar undir hatti þess í októ­ber. Því má rekja um 70 pró­sent af þeirri fækkun sem varð á atvinnu­leys­is­skrá í síð­asta mán­uði til átaks­ins.

Um 75 pró­sent þeirra ráðn­inga hafa verið á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og á Suð­ur­nesj­um. Lang­flest störfin sem ráðið hefur verið í á grund­velli ráðn­inga­styrks tengj­ast ferða­þjón­ustu eða tengdum grein­um.

Í ljósi þess að störfum í og í kringum ferða­þjón­ustu fjölgar iðu­lega mikið yfir sum­ar­tím­ann, þegar háanna­tími er í geir­an­um, má gera ráð fyrir því að störfum í geir­anum fækki með vetr­inum þegar ferða­menn verða færri. Vöxtur kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins og hertar tak­mark­anir vegna vegna hans, sem tóku að fullu gildi í vik­unni, gætu líka haft nei­kvæð áhrif á geir­ann þar sem dregið getur úr ferða­vilja.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár