Kjölfestan er ekki farin

Þrátt fyrir háa verð­bólgu á und­an­förnum mán­uðum eru vænt­ingar um verð­bólgu til langs tíma ekki langt fyrir ofan mark­mið Seðla­bank­ans, sam­kvæmt útreikn­ingum sjóðs­stjóra hjá Kviku eigna­stýr­ingu.

Kjöl­festa verð­bólgu­vænt­inga hefur ekki enn hækkað fram úr öllu ráði, þrátt fyrir að verð­bólga hafi ekki mælst hærri í níu ár, en fjár­festar búast við að hún hald­ist nálægt mark­miði Seðla­bank­ans að fimm árum liðnum. Þetta kemur fram í Twitter-færslu frá Agnari Tómasi Möller, sjóðs­stjóra hjá Kviku eigna­stýr­ingu.

Í færsl­unni sýnir Agnar verð­bólgu­vænt­ingar fjár­festa eftir fimm ár til fimm ára, sem hann metur út frá verð­bólgu­á­lagi á skulda­bréfa­mark­aði. Samkvæmt þeim útreikn­ingum telja fjár­festar að með­al­verð­bólgan verði í kringum þrjú pró­sent eftir fimm til tíu ár, þótt þeir búist við að verð­lag hækki nokkuð hraðar í náinni fram­tíð.

Fylgst með væntingum

Seðla­banka víða um heim fylgj­ast nú grannt með verð­bólgu­vænt­ingum til langs tíma, þar sem mögu­legt er að hækka þurfi vexti hraðar en ella ef þær fara að hækka vegna yfir­stand­andi verð­bólgu­skots. Í síð­ustu viku gaf Jerome Powell, seðla­banka­stjóri Banda­ríkj­anna, til kynna að bank­inn væri með augun á því hvort vænt­ingar mark­aðs­að­ila væru að aukast, þar sem slík aukn­ing gæti sjálf­krafa leitt til hærri verð­bólgu.

Enn sem komið er hafa verð­bólgu­vænt­ingar skulda­bréfa­mark­aða vest­an­hafs ekki vaxið úr öllu valdi, fram­tíðar verð­bólgu­vænt­ingar eru þar í dag um 2,4% - frá­vik frá verð­bólgu­mark­miði í Banda­ríkj­unum (2,0%) og Íslandi (2,5%) er því svipað þessa dag­ana, eða um hálft pró­sent.

Ekki séríslenskt vandamál

Líkt og Kjarninn hefur greint frá er verð­bólgan hér­lendis svipað stór og með­al­verð­bólgan á öðrum Vest­ur­löndum. Í byrjun árs var verð­bólgan hér á landi þó hærri en í lang­flestum Evr­ópu­löndum og hafði hún hækkað hrað­ast af öllum þeirra eftir að far­ald­ur­inn skall á. Síðan þá hefur aftur á móti hald­ist nokkuð stöðug hér­lend­is, á meðan verð á neyslu­vörum hefur hækkað hratt í nágranna­lönd­un­um.

Samkvæmt nýj­ustu tölum frá Hagstofu verð­bólgan 4,5 pró­sentum hér­lendis í þessum mán­uði og hefur hún ekki mælst hærri í níu ár. Ef hús­næði er hins vegar tekið úr verð­vísi­töl­unni mælist verð­bólgan þó ein­ungis þrjú pró­sent þessa stund­ina.

Til sam­an­burðar nam verð­bólgan í Banda­ríkj­unum 5,4 pró­sentum í síð­asta mán­uði, en 4,1 pró­sent í Noregi.

Of snemmt að segja til að mati SÍ

Við síð­ustu vaxta­á­kvörðun pen­inga­stefnu­nefndar Seðla­bank­ans sagði hún það vera áhyggju­efni að verð­bólgu­vænt­ingar virð­ast hafa tekið að hækka á ný. Of snemmt sé þó að segja til um hvort kjöl­festa þeirra við verð­bólgu­mark­mið sé að veikj­ast.

Bankinn gefur sjálfur út verð­bólgu­vænt­ingar á mis­mun­andi mæli­kvarða, en þær byggja á skoð­ana­könnun sem var fram­kvæmd í ágúst og sept­em­ber. Samkvæmt henni er búist við að verð­bólga muni nema rúm­lega þrjú pró­sent til langs tíma, en þær vænt­ingar hafa hald­ist óbreyttar frá því í vor.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

verðbólga

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár