Svipaðar verðhækkanir hér og í nágrannalöndum

Mikil verð­bólga og þrýst­ingur á fast­eigna­mark­aði eru ekki sér­ís­lensk vanda­mál. Hvort sem litið er til neyslu­verðs eða hús­næð­is­mark­að­ar­ins hafa nýlegar hækk­anir hér á landi verið á pari við það sem er að ger­ast í öðrum OECD-ríkjum.

Húsnæðisverð hér á landi hefur ekki hækkað mikið meira en í öðrum samanburðarríkjum okkar.
Hús­næð­is­verð hér á landi hefur ekki hækkað mikið meira en í öðrum sam­an­burð­ar­ríkjum okkar. Mynd: Bára Huld Beck

Verð­bólga hér á landi á síð­ustu mán­uðum hefur verið jafn­mikil og með­al­verð­bólgan hjá OECD-ríkjum og tölu­vert minni en í Banda­ríkj­unum. Sömu­leiðis hefur hús­næð­is­verð hækkað minna hér­lendis að raun­virði heldur en í Banda­ríkj­unum, Noregi og í öðrum OECD-ríkjum. Þetta kemur fram þegar hag­tölur frá Efnahags- og fram­fara­stofn­un­inni (OECD) og Evr­ópu­sam­band­inu eru skoð­aðar.

Nálægt meðaltali OECD

Í byrjun árs var verð­bólgan hér á landi hærri en í lang­flestum Evr­ópu­löndum og hafði hún hækkað hrað­ast af öllum þeirra eftir að far­ald­ur­inn skall á. Síðan þá hefur hún hins vegar hald­ist nokkuð stöðug hér­lendis, á meðan verð á neyslu­vörum hefur hækkað hratt í nágranna­lönd­unum. [adspot]

Eins og sést á mynd hér að neðan er verð­bólgan nú svipuð og með­al­verð­bólga OECD-ríkja, í fyrsta skipti frá byrjun síð­asta árs. Í síð­asta mán­uði nam árs­hækkun neyslu­verðs­vísi­töl­unnar 4,4 pró­sentum á Íslandi, sem er meiri en 4,1 pró­senta verð­bólgan í Noregi á sama tíma en þó tölu­vert minni en 5,4 pró­senta verð­bólgan í Banda­ríkj­unum.

Ísland kemur enn betur út ef tekið er til­lit til þess að aðferðir til að mæla verð­bólgu eru mis­mun­andi á milli landa. Ef svokölluð sam­ræmd neyslu­verðs­vísi­tala, sem tekur ekki til­lit til breyt­inga á verði eigin hús­næðis, er notuð, mæld­ist verð­bólgan hér á landi 3,7 pró­sent í ágúst, í stað 4,3 pró­senta. Á sama tíma nam með­al­verð­bólgan í aðild­ar­ríkjum OECD 4,3 pró­sentum.

Ekkert frábrugðið við húsnæðismarkaðinn

Svipað er uppi á ten­ingnum þegar hækk­anir í hús­næð­is­verði eru bornar saman á milli landa, þróun síð­ustu mán­aða hér á landi virð­ist vera í takti við það sem er að ger­ast í nágranna­löndum. Líkt og myndin hér að neðan sýnir nam árs­hækkun hús­næð­is­verðs á Íslandi um átta pró­sentum í sumar.

Til sam­an­burðar hækk­aði raun­verð hús­næðis að með­al­tali um 9 pró­sent í OECD-ríkjum á sama tíma­bili, en hækk­unin nam 10 pró­sentum í Noregi og 13 pró­sentum á Íslandi.

Kristín Arna Björg­vins­dóttir, hag­fræð­ingur hjá Seðla­banka Íslands, gerði þróun fast­eigna­verðs að umfjöll­un­ar­efni sínu í viku­rit­inu Vís­bend­ingu í byrjun mán­að­ar­ins. Samkvæmt henni hefur hús­næð­is­verð hækkað með svip­uðum hætti hér­lendis og í nágranna­löndum Íslands, en hækk­unin er lík­lega afleið­ing þess að seðla­bankar ákváðu að lækka vexti í kjöl­far heims­far­ald­urs­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

verðbólga

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár