Femínísk kvikmyndahátíð skapar nýjar fyrirmyndir

Aðstand­endur nýrrar fem­inískrar kvik­mynda­há­tíðar syrgja hand­ritin sem aldrei urðu kvik­myndir vegna þess að höf­und­arnir voru konur.

Femínísk kvikmyndahátíð skapar nýjar fyrirmyndir
Trúar á kraft kvenna Lea Ævars, stjórn­andi RFFF, er full­viss um að til séu mörg æðis­leg hand­rit að kvik­myndum eftir íslenskar konur sem safna ryki. Hún vill vald­efla konur til að koma hug­myndum sínum og sjón­ar­hornum að. Mynd: Heiða Helgadóttir

Ný fem­inísk kvik­mynda­há­tíð hefur göngu sína í jan­úar, en hún berst fyrir auknu jafn­rétti í kvik­mynda­geir­anum. Stjórn­andi hátíð­ar­innar seg­ist syrgja allar góðu kvik­mynd­irnar sem urðu aldrei til því hug­myndin að þeim kom frá konu.

Konur á uppleið

Í byrjun árs keppt­ust íslenskir fjöl­miðlar við að fagna sigri Hildar Guðna­dóttur á Gull­hnatt­ar­verð­launa­há­tíð­inni, en hún varð fyrsta kven­kyns tón­skáldið til að hljóta verð­launin ein síns liðs. Hún var önnur konan í 77 ára sögu þessa verð­launa til að vinna verð­launin, en hún sigr­aði aðra jötna á borð við frænd­urna Thomas og Randy Newman sem voru einnig til­nefndir í ár.

Í sögu Gull­hnatt­anna hefur aðeins einn kven­kyns leik­stjóri sigrað, Barbara Streisand fyrir Yentl árið 1984. Sömu­leiðis hefur aðeins einn kven­kyns leik­stjóri unnið Ósk­arsverð­launin, Kathryn Bigelow fyrir The Hurt Locker 2010.

Þrátt fyrir skort á við­ur­kenn­ingu fer kven­kyns leik­stjórum fjölg­andi; sam­kvæmt grein New York Times var rúm­lega tíu pró­sent af topp 100 myndum 2019 …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár