„Delta-faraldurinn“ kallar á hertar aðgerðir í Ísrael

For­sæt­is­ráð­herra Ísraels úti­lokar ekki að útgöngu­bann verði sett á að nýju ef milljón landa hans láti ekki bólu­setja sig. Grímu­skylda inn­an­dyra verður tekin upp enda bendir ný rann­sókn til að bólu­efni Pfizer veiti um 40 pró­sent vörn gegn sýk­ingu.

Naftali Bennett, forsætisráðherra Ísraels.
Naftali Bennett, for­sæt­is­ráð­herra Ísraels. Mynd: EPA

„Heims­byggðin er nú í auga storms­ins sem delta-afbrigðið hefur valdið,“ sagði Naftali Bennett, for­sæt­is­ráð­herra Ísraels, í sjón­varps­ávarpi í gær þar sem hann hamr­aði á því marg­sinnis að fólk ætti að láta bólu­setja sig. Ein milljón Ísraela sem boð­aðir hafa verið í bólu­setn­ingu, hafa ekki enn þegið hana.

Bennett fór í ávarp­inu yfir hversu miklu meira smit­andi delta-afbrigðið væri í sam­an­burði við önnur og sagði veiru­magn þeirra sem af því smit­ast geta verið þús­und­falt á við það sem áður þekkt­ist. Því væru varnir ísra­el­skra stjórn­valda í „delta-far­aldr­inum“ eins og hann kall­aði hann, nú fram­settar í þremur lögum. Í fyrsta lagi bólu­setn­ingu og allir eldri en tólf ára eru hvattir til að láta bólu­setja sig. Þeir sem neiti eru að sögn for­sæt­is­ráð­herr­ans að stefna sinni heilsu og ann­arra í mikla hættu. Hann var­aði við því að til útgöngu­banns gæti komið á ný ef fram haldi sem horfi í þróun far­ald­urs­ins. Útgöngu­bann í fyrri bylgjum varði í sam­tals 200 daga. Um níu millj­ónir manna búa í Ísrael.

Fólk verður ekki skyldað í bólu­setn­ingu en hins vegar verður frá 8. ágúst tekið fyrir aðgang þeirra að marg­vís­legri dægradvöl svo sem kvik­mynda­húsum, bæna­húsum og íþrótta­leik­vöngum eða hvar þar sem yfir 100 manns eða fleiri geta komið saman, hvort sem er inn­an­dyra eða utan. Til að kom­ast inn á slíkar sam­komur verða óbólu­settir að fram­vísa nei­kvæðu COVID-prófi og prófið verður á þeirra eigin kostnað, ekki skatt­greið­enda.

[adspot]

Í öðru lagi snúa varn­irnar að eldra fólki sem er hvatt til að hitta aðeins barna­börnin utandyra á næst­unni og þá með grímu fyrir vitum. „Við viljum hafa landið okkar opið og öruggt,“ sagði hann.

Þriðja lag varn­anna er grímu­skylda sem verður aftur leidd í lög inn­an­dyra. Minnti Bennett á að rann­sóknir sýndu að grímur dragi gríð­ar­lega úr smit­hættu, um allt að 98 pró­sent.

„Látið bólu­setja ykkur,“ sagði hann og end­ur­tók þessa brýn­ingu: „Látið bólu­setja ykkur“. Vísindin sýndu að bólu­efnin væru að virka, vel á yngra fólk en ekki eins vel á það eldra.

Enn góð vörn gegn alvarlegum einkennum

Heil­brigð­is­ráðu­neyti Ísraels greindi frá því í gær að bólu­efni Pfizer-BioNTech veitti, sam­kvæmt nýrri rann­sókn, um 40 pró­sent vörn gegn sýk­ingu og mildum ein­kennum COVID-19. Nið­ur­staðan er unnin út frá gögnum sem safnað hefur verið síð­ast­lið­inn mánuð eða frá því delta-afbrigðið hóf að dreifast í land­inu.

Sýna­tök­urnar sem rann­sóknin byggir á gefa þó ekki rétta mynd af virkni bólu­efn­is­ins almennt því þær voru flestar gerðar í tengslum við hóp­sýk­ingar og meðal eldra fólks. Aðeins lít­ill hluti gagn­anna eru úr skimunum meðal yngra og bólu­setts fólks. Sér­fræð­ingar telja því ekki hægt að draga almennar álykt­anir út frá nið­ur­stöð­unum. Samkvæmt sömu gögnum er vörn bólu­efna gegn alvar­legum ein­kennum og sjúkra­húsinn­lögnum en mikil eða á bil­inu 88-91 pró­sent.

Tæplega 10 þús­und manns eru með COVID-19 í Ísrael og hefur fjöldi til­fella að und­an­förnu verið um og yfir 900 dag hvern.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár