Íslensk fjárfestingafélög keyptu fyrir milljarða í Arion banka í síðustu viku

Erlendir vog­un­ar­sjóðir hafa verið að minnka hlut sinn í Arion banka hratt síð­ustu mán­uði. Íslenskir líf­eyr­is­sjóðir hafa keypt stærstan hluta af þeim bréfum sem þeir hafa losað um og aðrir fag­fjár­festar hafa líka bætt við sig.

Á meðal þeirra sem keyptu hluta­bréf í Arion banka af banda­ríska vog­un­ar­sjóðnum Taconic Capital í síð­ustu viku eru íslensku fjár­fest­inga­fé­lögin Mótás, Hvalur, Stálskip og Sjáv­ar­sýn. Hvalur sem átti fyrir 1,5 pró­sent hlut, stækk­aði sig upp í 2,13 pró­sent með því að kaupa bréf fyrir um millj­arð króna. Mótás, sem nýverið keypti sig inn í Stoðir, stærsta inn­lenda einka­fjár­fest­inn í Arion banka, keypti 0,6 pró­sent hlut fyrir tæp­lega 800 millj­ónir króna. Fjár­fest­inga­fé­lagið Stálskip, í eigu eigu hjón­anna Guðrúnar Lár­us­dóttur og Ágústs Sig­urðs­sonar og þriggja barna þeirra, keypti fyrir 300 millj­ónir króna og Sjáv­ar­sýn, í eigu Bjarna Ármanns­sonar, for­stjóra Iceland Seafood og fyrr­ver­andi banka­stjóra Glitnis, keypti fyrir 200 millj­ónir króna.

Frá þessu er greint í Frétta­blað­inu í dag.

Mótás er í eigu Berg­þórs Jóns­sonar og Fritz Hend­riks Berndsen. Félagið keypti stærstan hluta þess 12,1 pró­senta eign­ar­hluts Lands­bank­ans í fjár­fest­inga­fé­lag­inu Stoðum sem seldur var í des­em­ber fyrir 3,3 millj­arða króna. Það félag keypti bréf fyrir rúman millj­arð króna. Stoðir eiga 4,99 pró­sent hlut í Arion banka og er líka stærsti ein­staki eig­andi í TM og Kviku banka, sem verið er að sam­eina í eitt fjár­mála­fyr­ir­tæki. Á meðal ann­arra fjár­festa sem keyptu hlut í Stoðum af Lands­bank­anum í des­em­ber sam­hliða Mótás var eign­ar­halds­fé­lagið P1211 ehf., sem er í eigu Lárusar Welding, fyrr­ver­andi banka­stjóra Glitn­is, og Ágústu Mar­grétar Ólafs­dótt­ur, eig­in­konu hans. Þau keyptu um eitt pró­sent hlut.

[adspot]Hvalur er eitt umsvifa­mesta fjár­fest­inga­fé­lag á Íslandi í dag. Félagið er að stærstum hluta í eigu Krist­jáns Lofts­sonar og fjöl­skyldu hans en á meðal ann­arra eig­anda í Hvali eru félög í eigu Einars Sveins­sonar, bróður hans Ingi­mundar Sveins­sonar og sonar hans Bene­dikts Ein­ars­sonar. Einar er auk þess stjórn­ar­for­maður Hvals en Kristján er fram­kvæmda­stjóri. Eigið fé Hvals var 25 millj­arðar króna í lok sept­em­ber 2019. Auk fjár­fest­inga í Arion banka á Hvalur hluti í Hamp­iðj­unni, Origo og Marel.

Lífeyrissjóðir hafa stækkað um 60 prósent á rúmu ári

Kjarninn greindi frá því í gær í frétta­skýr­ingu að mikið breyt­ing hafi átt sér stað á hlut­hafa­hópi Arion banka á síð­ustu mán­uðum. Frá því í lok sept­em­ber í fyrra, fyrir fjórum mán­uðum síðan, hafa tveir stærstu eig­endur bank­ans á und­an­förnum árum selt sam­tals 13,92 pró­sent hlut í honum. Um er að ræða vog­un­ar­sjóð­ina Taconic Capital Advisors og Sculptor Capital Mana­gement. Mark­aðsvirði þess hlutar sem þeir hafa selt, að mestu á allra síð­ustu vikum, er yfir 23 millj­arðar króna.

[links]Fleiri vog­un­ar­sjóðir, sem komu inn í eig­enda­hóp Arion banka eftir að hafa til­heyrt kröfu­hafa­hópi Kaup­þings,hafa líka verið að selja sig niður að und­an­förnum.

Inn­lendir fag­fjár­festar hafa keypt stærstan hluta þess sem vog­un­ar­sjóð­irnir hafa selt. Þeir eru að mestu íslenskir líf­eyr­is­sjóðir. Á síð­ustu fjórum mán­uðum hafa þrír stærstu líf­eyr­is­sjóðir lands­ins: Gildi, Líf­eyr­is­sjóður verzlunarmanna og Líf­eyr­is­sjóður starfs­manna rík­is­ins (LSR) bætt við sig sam­an­lagt 4,61 pró­sent hlut í Arion banka. Mark­aðsvirði þess hlutar í dag er um 7,7 millj­arðar króna.

Fleiri líf­eyr­is­sjóðir: Stapi, Birta, Frjálsi líf­eyr­is­sjóð­ur­inn og Lífsverk hafa allir líka bætt við sig í Arion banka á síð­ustu mán­uðum.

Sam­an­lagður eign­ar­hluti þeirra líf­eyr­is­sjóða sem birt­ast á lista yfir 20 stærstu eig­endur bank­ans var 22,42 pró­sent í byrjun síð­asta árs. Í lok sept­em­ber 2020 hafði hann auk­ist í 29,17 pró­sent og síð­ustu fjóra mán­uði hefur hann farið upp í 36,29 pró­sent. Á rúmu ári hefur hlutur sjóð­anna því stækkað um rúm­lega 60 pró­sent. Það þýðir að fjár­fest­ing þeirra átta líf­eyr­is­sjóða sem eru á meðal 20 stærstu hlut­hafa í Arion banka er nú um 60 millj­arða króna virði.

Bankar taka meira

Þorri þess sem út af stendur hefur verið keypt af sjóð- og eigna­stýr­ing­ar­fyr­ir­tækjum banka eða ein­fald­lega í nafni ann­arra banka.

Sjóðir í stýr­ingu Stefnis, sjóð­stýr­ing­ar­fyr­ir­tæki Arion banka, hafa aukið veru­lega við hlut sinn í móð­ur­bank­anum. Þeir áttu 1,7 pró­sent hlut í honum í sept­em­ber­lok en eiga nú 2,55 pró­sent. Sjóðir innan Kviku eigna­stýr­ingar hafa einnig bætt vel við sig. Þeir áttu 0,72 pró­sent hlut fyrir fjórum mán­uðum en fara nú með 2,55 pró­sent hlut. Vert er að taka fram að líf­eyr­is­sjóðir eru að jafn­aði á meðal stærstu fjár­festa í þeim sjóðum sem sjóð­stýr­ing­ar­fyr­ir­tækin stýra. Þeir eiga því óbeint við­bót­ar­hlut í gegnum hlut­deild­ar­skír­teini sín í þessum sjóðum.

Þá hafa eign­ar­hlutir sem skráðir eru í eigu hinna þriggja bank­anna á íslenska mark­aðnum líka auk­ist. Þar er í flestum til­vikum lík­leg­ast um að ræða fram­virka samn­inga sem þeir hafa gert við við­skipta­vini sína, en ekki við­skipti fyrir eigin bók. Eitthvað er þó hluti af veltu­bók bank­anna.

Kvika er nú skráður með 1,68 pró­sent hlut í Arion banka, Íslands­banki með 1,44 pró­sent hlut og Lands­bank­inn með 1,09 pró­sent hlut.

Það sem upp á vantar var svo keypt af áður­nefndum einka­fjár­festum, sam­kvæmt gögnum sem Frétta­blaðið hefur undir höndum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár