Er Tesla í miðri hlutabréfabólu?

Hluta­bréfa­verð hjá raf­bíla­fram­leið­and­anum Tesla hækk­aði um nær 700 pró­sent á síð­asta ári og er mark­aðsvirði hans nú lang­mest allra bíla­fram­leið­enda heims­ins. Hvað veldur þess­ari miklu hækkun?

Elon Musk, forstjóri Tesla
Elon Musk, for­stjóri Tesla Mynd: EPA

Á einu ári hefur ásókn fjár­festa í fyr­ir­tækið Tesla, sem þekkt­ast er fyrir raf­bíla­fram­leiðslu sína, auk­ist gríð­ar­lega og gert það að lang­verð­mætasta bíla­fram­leið­anda heims­ins.

Þrátt fyrir það eru sölu­tölur fyr­ir­tæk­is­ins agn­arsmáar miðað við helstu keppi­nauta þess, en miklar vonir eru bundnar við hraðan vöxt bíla­fram­leið­and­ans á næstu miss­erum. Aftur á móti er óvíst hversu lengi rekstur fyr­ir­tæk­is­ins geti verið arð­bær, en grein­ing­ar­að­ilum greinir á hvort það sé í miðri hluta­bréfa­bólu eða ekki.

Á heima­síð­unni companiesmarketcap.com er listi yfir verð­mæt­ustu bíla­fram­leið­endur heims­ins, sam­kvæmt mark­aðsvirði þeirra í kaup­höllum heims­ins. Þar er Tesla langefst með mark­aðsvirði sem nemur tæpum 700 millj­örðum Banda­ríkja­dala.

Í öðru sæti kemur Toyota, en mark­aðsvirði þess nær ekki einum þriðja af virði raf­bíla­fram­leið­and­ans. Raunar er virði Tesla meira en sam­an­lagt virði allra sjö bíla­fram­leið­anda sem eru í öðru til átt­unda sæti list­ans, þ.e. Toyota, Volkswagen, BYD, NIO, Daimler, General Motors, Ferrari og BMW.

Mikil aukning í sölu

Háu mark­aðsvirði fyr­ir­tæk­is­ins má að hluta til rekja til jákvæðrar rekstr­ar­nið­ur­stöðu þess á und­an­förnum miss­erum. Á síð­asta árs­fjórð­ungi náði Tesla að selja um 180 þús­und bíla, en með því sló fyr­ir­tækið eigið sölu­met sem náð­ist á árs­fjórð­ungnum þar á undan með sölu tæp­lega 140 þús­und bíla. Til sam­an­burðar seldi fyr­ir­tækið aðeins um 20 þús­und bíla á hverjum árs­fjórð­ungi árin 2016 og 2017, eins og sjá má á mynd hér að neðan.

Hins vegar eru sölu­tölur Tesla ekki ýkja stórar ef þær eru mið­aðar við aðra stóra bíla­fram­leið­endur. Til að mynda seldi Volkswagen 2,6 millj­ónir bíla á þriðja fjórð­ungi síð­asta árs, sem er tæp­lega 19 sinnum meira en Tesla gerði á sama tíma­bili.

Samkvæmt umfjöllun The Detroit News um málið binda fjár­festar fyr­ir­tæk­is­ins miklar vonir við fram­tíð­ar­horfur þess, en hluta­bréfa­verð Tesla hefur hækkað all­hratt á síð­ustu mán­uðum. Nú stendur virði hluta­bréf­anna í 738 Banda­ríkja­dölum á hlut og er það rúm­lega sjö­falt meira en í byrjun síð­asta árs.

Til við­bótar við mikla sölu­aukn­ingu á síð­ustu miss­erum telur mið­ill­inn upp aðra þætti sem gætu haft áhrif á fram­tíð­ar­vænt­ingar fyr­ir­tæk­is­ins, líkt og gott upp­gjör fimm árs­fjórð­unga í röð, auk þess sem það sé leið­andi í þróun raf­hlaðna og stýri­kerfa fyrir raf­bíla á heims­vísu. Þar að auki er bent á að áhugi fjár­festa á fyr­ir­tæk­inu hafi auk­ist eftir að ákveðið var að lækka nafn­verð hluta­bréfa þess með því að fjölga hlutum í ágúst síð­ast­liðnum.

Mengunarkvótar bjarga rekstrinum

Hins vegar er óvíst hversu lengi rekstr­ar­nið­ur­staða Tesla hald­ist jafn jákvæð og hún hefur gert síð­ustu miss­eri, en sam­kvæmt Detroit News gengur fyr­ir­tæk­inu illa að skila hagn­aði á sölum bif­reiða þess.

Fyr­ir­tækið myndi myndi skila tap­rekstri ef ekki væri fyrir sér­stakan meng­un­ar­kvóta sem það fram­selur öðrum bíla­fram­leið­endum, en fram­leið­end­urnir þurfa að kaupa slíkan kvóta ef þeir ná ekki yfir­lýstum mark­miðum banda­rískra stjórn­valda um fram­leiðslu á raf­bílum.

Í við­tali við Detroit News segir Erik Gordon, pró­fessor við Michigan-háskóla, að þessi tekju­lind muni minnka í fram­tíð­inni, þar sem raf­bíla­fram­leiðsla sé að aukast hjá öðrum bíla­fram­leið­endum. „ Á ein­hverjum tíma­punkti mun Tesla þurfa að sanna sig sem fyr­ir­tæki, ekki bara sem fyr­ir­bæris á hluta­bréfa­mark­aðnum,“ segir Gordon.

Bóla eða ekki bóla?

Hröð og mikil verð­hækkun Tesla á hluta­bréfa­mark­aði hefur vakið umtal í banda­rísku kaup­höll­inni á Wall Street og eru sumir grein­ing­ar­að­ilar vissir um að núver­andi hluta­bréfa­verð sé stór­lega ofmetið. Meðal þeirra er fjár­mála­fyr­ir­tækið JPMorgan, sem taldi virði fyr­ir­tæk­is­ins vera ein­ungis 13 pró­sent af mark­aðsvirði þess í síð­asta mán­uði. Fyr­ir­tækið RBC Capital Markets telur einnig að Tesla sé í miðri hluta­bréfa­bólu, en verð­mat þess á bíla­fram­leið­and­ann var helm­ingi lægra en núver­andi mark­aðsvirði.

Hins vegar eru aðrir ekki sam­mála. Goldman Sachs telur fyr­ir­tækið vera nokkuð rétt verð­lagt, þar sem bank­inn býst við að raf­bíla­notkun muni aukast hraðar í náinni fram­tíð en áður var búist við. Sömu sögu er að segja um fyr­ir­tækin Wedbush Securities og CFRA Research, sem hvorug hvetja við­skipta­vini sína til að selja hluta­bréf í Tesla.

For­stjóri Tesla, Elon Musk, sagði sjálfur að hann teldi hluta­bréfa­verð í Tesla vera of hátt í Twitter-færslu í maí­byrjun síð­asta árs. Frá því að færslan, sem sjá má hér að ofan, birt­ist, hefur mark­aðsvirði fyr­ir­tæk­is­ins svo nær fimm­fald­ast. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár