Flóttafólkið frá Lesbos enn ekki komið til Íslands

Rík­is­stjórnin til­kynnti í sept­em­ber að allt að 15 manns, flótta­fólk frá Lesbos, myndi bæt­ast í hóp þeirra 85 sem rík­is­stjórnin hyggð­ist taka á móti á þessu ári. Flótta­manna­nefnd útfærir verk­efnið en unnið er að því í sam­starfi við m.a. grísk stjórn­völd.

Flóttafólk mótmælti í febrúar á síðasta ári.
Flótta­fólk mót­mælti í febr­úar á síð­asta ári. Mynd: Bára Huld Beck

Enn sem komið er hefur eng­inn flótta­maður verið fluttir til Íslands af þeim fimmtán auka­lega sem eiga að koma á þessu ári en rík­is­stjórn Íslands sam­þykkti þann 25. sept­em­ber síð­ast­lið­inn að Ísland tæki á móti flótta­fólki frá Lesbos á Grikk­landi, með áherslu á sýr­lenskar fjöl­skyldur í við­kvæmri stöðu. Fram kom í til­kynn­ingu á vef Stjórn­ar­ráðs­ins að fjöl­skyld­urnar hefðu áður búið í flótta­manna­búð­unum Moria sem eyðilögð­ust í elds­voða fyrr í mán­uð­inum.

Þetta kemur fram í svari for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins við fyr­ir­spurn Kjarnans en í því segir að það komi í hlut grískra stjórn­valda ásamt Flótta­manna­stofnun Sam­ein­uðu þjóð­anna (UNHCR) að koma með til­lögur um hvaða ein­stak­lingar séu í mestri þörf á að flytj­ast á milli landa.

Unnið sé í sam­starfi við Alþjóð­legu fólks­flutn­inga­stofnun Sam­ein­uðu þjóð­anna (IOM) og Flótta­manna­stofnun Sam­ein­uðu þjóð­anna (UNHCR), Evr­ópu­sam­bandið og grísk stjórn­völd varð­andi flutn­ing á fjöl­skyldum. „Flótta­manna­nefnd var falið að útfæra verk­efnið og er unnið að því núna í sam­starfi við fyrr­nefnda sam­starfs­að­ila,“ segir í svar­inu.

Búast við því að allt að 15 manns bætist við

Í til­kynn­ingu stjórn­valda frá því í sept­em­ber sagði að flótta­fólkið frá Lesbos, sem yrði allt að 15 manns, myndi bæt­ast í hóp þeirra 85 sem rík­is­stjórnin hygð­ist taka á móti á þessu ári og væri það lang­fjöl­menn­asta mót­taka flótta­fólks á einu ári hingað til lands.

„Flótta­manna­nefnd mun ann­ast und­ir­bún­ing á mót­töku fjöl­skyldn­anna og verður mót­taka þeirra unnin í sam­vinnu við Evr­ópu­sam­bandið og grísk stjórn­völd. Evr­ópu­sam­bandið hafði áður sent frá sér ákall um nauð­syn á flutn­ingi barna og barna­fjöl­skyldna vegna bruna Moria flótta­manna­búð­anna. Þá mun Flótta­manna­stofnun Sam­ein­uðu þjóð­anna vera íslenskum stjórn­völdum innan handar varð­andi það hvernig best verður staðið að því að koma fjöl­skyld­unum til lands­ins,“ sagði í til­kynn­ing­unni.

Flótta­manna­nefnd heyrir undir félags- og barna­mála­ráð­herra en í nefnd­inni sitja full­trúar frá dóms­mála­ráðu­neyt­inu, félags­mála­ráðu­neyt­inu og utan­rík­is­ráðu­neyt­inu. Þá hafa Rauði kross­inn á Íslandi, Samband íslenskra sveit­ar­fé­laga og Útlend­inga­stofnun áheyrn­ar­full­trúa í nefnd­inni.

Vildu bregðast við ákalli um að taka á móti fólki á flótta frá Lesbos

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra sagði á sínum tíma að rík­is­stjórnin vildi bregð­ast við ákalli því sem borist hefði um að taka á móti fólki á flótta frá Lesbos. „Hér á landi hefur skap­ast umfangs­mikil og dýr­mæt þekk­ing þegar kemur að mót­töku sýr­lenskra fjöl­skyldna og sú reynsla okkar kemur að góðum notum. Það er stefna rík­is­stjórn­ar­innar að taka á móti fleira flótta­fólki í sam­starfi við Flótta­manna­stofnun Sam­ein­uðu þjóð­anna sem lýst hefur ánægju með mót­töku flótta­fólks hér á landi.“

Á síð­asta ári var tekið á móti 74 flótta­mönnum á Íslandi, en fram kom fréttum í lok síð­asta árs að íslensk stjórn­völd myndu bjóð­ast til að taka á móti 85 manns. Einkum væri um að ræða Sýr­lend­inga og hópa við­kvæmra flótta­manna vegna kyn­ferðis eða fjöl­kyldu­að­stæðna frá Kenía. Árið 2021 er áætlað að taka við enn fleirum eða 100 flótta­mönnum í sam­vinnu við Flótta­manna­stofnun Sam­ein­uðu þjóð­anna en ekki liggur fyrir hvaðan þeir munu koma.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár