Nær helmingur atvinnulausra er undir 35 ára

Atvinnu­leysi yngri ald­urs­hópa er tölu­vert meira en þeirra eldri, sam­kvæmt tölum Vinnu­mála­stofn­unar og Hagstofu. Munurinn er enn meiri þegar tekið er til­lit til atvinnu­lausra náms­manna.

Af þeim 18 þús­und sem fengu atvinnu­leys­is­bætur í sept­em­ber­mán­uði var tæpur helm­ingur þeirra yngri en 35 ára, eða um 8,500 manns, sam­kvæmt nýj­ustu mán­að­ar­skýrslu Vinnu­mála­stofn­unar. Atvinnu­leysi ungra gæti þó verið mun hærra, þar sem atvinnu­lausir náms­menn eru ekki inni í tölum stofn­un­ar­innar.

Ungir jafn­að­ar­menn bentu á bága stöðu ungs fólks á vinnu­mark­aði í umsögn um fjár­laga­frum­varp rík­is­stjórn­ar­innar sem birt­ist í gær, en þar var vitnað í tölur Vinnu­mála­stofn­unar. Í umsögn­inni er „fálæti“ rík­is­stjórn­ar­innar gagn­vart stöðu ungs fólks á vinnu­mark­aði gagn­rýnt, auk þess sem kallað er eftir skýrri áætlun um fjölgun starfa og hækkun bóta.

[adspot]

Ald­urs­dreif­ing atvinnu­leys­is­bóta­þega sést vel ef tölur Vinnu­mála­stofn­unar eru not­aðar sam­hliða tölum Hagstofu um þá sem eru starf­andi eftir ald­urs­hópum. Dreif­ing­una má sjá á mynd hér að neðan, en sam­kvæmt henni er hlut­fall atvinnu­leys­is­bóta­þega nær tvö­falt hærra á meðal fólks á aldr­inum 25-34 ára, heldur en á meðal þeirra sem eru á ald­urs­bil­inu 40-69 ára. Í fyrr­nefnda ald­urs­hópnum nær hlut­fallið 13 pró­sentum, en í þeim síð­ar­nefnda eru ein­ungis sjö pró­sent vinnu­mark­að­ar­ins á atvinnu­leys­is­bótum.

Námsmenn ekki í myndinni

Ójöfn ald­urs­dreif­ing á vinnu­mark­aði sést svo enn betur ef tekið er til­lit til atvinnu­lausra náms­manna, en þeir koma ekki fram í tölum Vinnu­mála­stofn­unar þar sem þeir eiga ekki rétt á bótum.

Jóna Þórey Pét­urs­dóttir, fyrrum for­seti Stúd­enta­ráðs Háskóla Íslands, benti á að 69 pró­sent Íslend­inga vinni venju­lega með námi í nýlegum skoð­anapistli á Vísi. Atvinnu­leysi á meðal þeirra er einnig tölu­vert, sam­kvæmt árs­fjórð­ungs­tölum Hagstofu.

Eins og sést á mynd­inni hér að neðan munar miklu hvort atvinnu­leysi náms­manna sé tekið með í reikn­ing­inn eða ekki. Þar sem ell­efu pró­sent af þeim sem voru undir 25 ára aldri á vinnu­mark­aðnum þáðu atvinnu­leys­is­bætur á öðrum fjórð­ungi þessa árs, miðað við 15 pró­sent þeirra sem voru 25 ára eða eldri mætti áætla að atvinnu­leysið hefði verið hærri í síð­ar­nefnda hópnum.

Hins vegar, ef atvinnu­lausir náms­menn eru taldir með á vinnu­mark­aði blasir við önnur nið­ur­staða. Þar sést að atvinnu­leysi þeirra sem eru yngri en 25 ára er rúm­lega helm­ingi meira en hjá þeim sem eru 25 ára eða eldri, eða um 24 pró­sent á móti 15. Rétt er að taka það fram þó að þessar tölur eru ein­ungis til við­mið­unar, þar sem ald­urs­flokkar Vinnu­mála­stofn­unar og Hagstofu eru ekki nákvæm­lega eins.

Uppfært kl: 09:43. Tölur í seinna graf­inu voru upp­færðar

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár