Hægt verði að fá hlutdeildarlán fyrir 58,5 milljóna króna íbúð

Drög að reglu­gerð um hlut­deild­ar­lánin hafa verið birt í sam­ráðs­gátt stjórn­valda. Þar er útfært hvaða hús­næði telj­ist „hag­kvæmt hús­næði“ og því láns­hæft. Hægt verður að fá lán fyrir íbúð með einu auka her­bergi, m.v. fjöl­skyldu­stærð.

Íbúðirnar sem falla undir hlutdeildarlánin eiga að vera hannaðar þannig að þær séu „einfaldar að allri gerð“ og „svo hagkvæmar og hóflegar sem frekast er kostur.“ Mynd úr safni.
Íbúð­irnar sem falla undir hlut­deild­ar­lánin eiga að vera hann­aðar þannig að þær séu „ein­faldar að allri gerð“ og „svo hag­kvæmar og hóf­legar sem frekast er kostur.“ Mynd úr safni. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Áætlað er að íbúðir sem tekju­lágir ein­stak­lingar megi kaupa með svoköll­uðum hlut­deild­ar­lánum frá rík­inu megi kosta allt að 58,5 millj­ónir króna, en það er hámarks­verð fyrir íbúð með að lág­marki 4 svefn­her­bergjum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu.[links]

Hámarks­verð fyrir stúd­íó­í­búð á höf­uð­borg­ar­svæð­inu er á móti 32 millj­ónir og aðrar stærðir íbúa fara allan skal­ann þarna á milli, en hámarks­verð láns­hæfs hús­næðis utan höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins er lægra.

Þetta kemur fram í drögum að reglu­gerð um hlut­deild­ar­lánin, sem sam­þykkt voru á Alþingi í lok sum­ars. Þegar lögin voru sam­þykkt var ekki búið að útfæra hvernig nákvæm­lega hið hag­kvæma hús­næði sem ríkið ætlar að lána tekju­lágu fólki vaxta­laust fyrir yrði skil­greint. Það er gert í reglu­gerð­inni, en drög að henni voru í dag birt í sam­ráðs­gátt stjórn­valda.

Aðeins verður lánað til kaupa á nýjum íbúðum sem hafa verið sam­þykktar af Húsnæðis- og mann­virkja­stofnun sem „hag­kvæmar íbúðir“ á grund­velli samn­ings bygg­ing­ar­að­il­ans við stofn­un­ina. Með nýjum íbúðum er átt við íbúðir sem ekki hafa verið seldar til íbúðar áður.

Þó verður, utan höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins, heim­ilt að veita hlut­deild­ar­lán til kaupa á eldri íbúðum „í hús­næði sem hlotið hefur gagn­gerar end­ur­bætur, enda sé ástand íbúðar þannig að jafna megi til ástands nýrrar íbúðar,“ eins og það er orðað í reglu­gerð­ar­drög­unum.

Hagkvæmar íbúðir = „Hóflegar“ og „einfaldar að allri gerð“

„Hag­kvæmar íbúðir“ eru sér­stak­lega skil­greindar í drög­unum. Um þær segir að sá sem byggir skuli „sjá til þess að íbúðir séu svo hag­kvæmar og hóf­legar sem frekast er kostur í því skyni að unnt verði að selja þær á við­ráð­an­legu verði fyrir þá sem eru að kaupa sína fyrstu íbúð.“

[adspot]

Einnig segir að íbúðir skuli vera þannig hann­aðar að „þær séu ein­faldar að allri gerð“ og að stærðir íbúða skuli mið­aðar við fjöl­skyldu­stærðir kaup­enda. Umsækj­anda yrði þannig heim­ilt, sam­kvæmt drög­unum, að festa kaup á íbúð­ar­hús­næði „með einu auka svefn­her­bergi umfram þarfir fjöl­skyld­unnar á umsókn­ar­degi miðað við fjöl­skyldu­stærð.“

Sex úthlutanir á ári og skorið niður ef fjármagn þrýtur

Gert er ráð fyrir því að Húsnæðis- og mann­virkja­stofnun úthluti hlut­deild­ar­lán­unum sex sinnum á ári; 20. febr­úar, 20. apríl, 20. júní, 20. ágúst, 20. októ­ber og 20. des­em­ber ár hvert.

Ef að það fjár­magn sem er til úthlut­unar, sem áætlað er að verði um 4 millj­arðar ár hvert, dugar ekki til þess að anna eft­ir­spurn „skal dregið úr þeim umsækj­endum sem upp­fylla skil­yrði hlut­deild­ar­lána.“

Það yrði gert með þeim hætti að þeir sem hafa sam­þykkt kauptil­boð njóti for­gangs á þá sem ekki hafi sam­þykkt kauptil­boð í íbúð. Einnig skal ávallt tryggt að 20 pró­sent lána að minnsta kosti verði til kaupa á íbúðum utan höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins.

Heimilt að halda eftir „hóflegri bifreið“

Samkvæmt reglu­gerð­ar­drög­unum þurfa umsækj­endur um hlut­deild­ar­lánin að eiga alla­vega 5 pró­sent eigið fé til kaupanna, en svo kemur ríkið með 20 eða 30 pró­sent af íbúð­ar­verð­inu á móti og ger­ist í raun þög­ull með­fjár­festir með íbúð­ar­kaup­and­anum, sem á að greiða lánið til baka annað hvort við sölu fast­eignar eða að 10 árum liðnum (heim­ilt er þó að sækja um fram­leng­ingu láns­tím­ans í fimm ár í senn).

Ef hins vegar umsækj­andi um hlut­deild­ar­lán á meira en 5 pró­sent eigið fé fyrir kaup­unum á það fé að nýt­ast til íbúða­kaupanna en hlut­deild­ar­lánið sem ríkið veitir að lækka á móti.

Á þessu eru þó und­an­þágur. Þannig er sér­stak­lega tekið fram í reglu­gerð­ar­drög­unum að eigið fé sem bundið er í „hóf­legri bif­reið“ komi ekki þarna til lækk­unar og því megi „halda eftir“ slíkri bif­reið. Ekki er tekið fram nákvæm­lega hvernig skil­greina skuli hóf­lega bif­reið.

Einnig má „halda eftir“ sér­út­bú­inni bif­reið sem nauð­syn­leg er vegna fötl­unar eða sjúk­dóma, fjár­munum sem eru nauð­syn­legir til að gera íbúð­ina aðgengi­lega vegna fötl­unar eða sjúk­dóms, allt að 1,5 pró­senti af kaup­verði íbúð­ar­innar til ann­arra ráð­staf­ana og svo einnig allt að 20 pró­sent hlut í íbúð sem umsækj­andi um hlut­deild­ar­lán hefur eign­ast fyrir arf eða á annan hátt, sé sýnt fram á að erfitt sé að selja þann eign­ar­hluta.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

húsnæðismarkaður

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár