Börnum ekki bjóðandi að flakka á milli landa

Vel­ferð­ar­ríki eins og Íslandi ber að tryggja vernd og rétt­indi barna á flótta og veita þeim tæki­færi til að alast upp í öruggu umhverfi, að því er fram kemur í yfir­lýs­ingu frá Félags­ráð­gjafa­fé­lagi Íslands.

Ísland hefur getu til að taka á móti börnum á flótta og veita þeim tæki­færi til mennt­unar, aðgengi að heil­brigð­is­kerfi og annan stuðn­ing. Börnum er ekki bjóð­andi að flakka á milli landa. Vel­ferð­ar­ríki eins og Íslandi ber að tryggja vernd og rétt­indi barna á flótta og veita þeim tæki­færi til að alast upp í öruggu umhverfi.

Þetta kemur fram í yfir­lýs­ingu frá Félags­ráð­gjafa­fé­lagi Íslands sem send var á fjöl­miðla í morgun.

Tilefnið er yfir­vof­andi brott­vísun egyp­skar fjöl­skyldu sem fjallað hefur verið um í fjöl­miðlum und­an­farna daga. Til stendur að vísa sex manna fjöl­skyldu úr landi á morgun, mið­viku­dag, en hún hefur dvalið hér á landi í yfir tvö ár.

Í yfir­lýs­ing­unni segir að lag­ara­mmin sé skýr en end­ur­skoða þurfi verk­lag svo það end­ur­spegli fram­kvæmd sem virðir Barna­sátt­mál­ann og tryggir að honum sé fram­fylgt þannig að rétt­indi barna á flótta séu ávallt tryggð. Félags­ráð­gjafa­fé­lag Íslands skorar á dóms­mála­ráð­herra að láta málið til sín taka.

[adspot]

[links]„Brott­vís­anir barna á flótta hafa ítrekað verið til umfjöll­unar hér á landi síð­ustu miss­eri og dæmi um að almennir borg­arar mót­mæli þeim mann­rétt­inda­brotum sem slíkar nið­ur­stöður geta falið í sér. Vert er að hafa í huga að Barna­sátt­mál­inn var lög­festur hér á landi árið 2013 og hefur því sama gildi og hver önnur lög og bera stjórn­völd þá skyldu að fram­fylgja þeim jafnt öðrum lögum. Barna­sátt­mál­inn leggur þær skyldur á aðild­ar­ríki að virða og tryggja hverju barni innan lög­sögu sinnar þau rétt­indi sem kveðið er á um í samn­ingnum og láta það sem barni er fyrir bestu hafa for­gang þegar gerðar eru ráð­staf­anir sem varða börn​. Lög um útlend­inga nr. 80/2016 end­ur­spegla ákvæði Barna­sátt­mál­ans en við mat skv. 1. og 2. mgr. 37. greinar lag­ana ber stjórn­völdum að hafa það sem barni er fyrir bestu að leið­ar­ljósi í málum sem varða börn, fylgd­ar­laus sem önnur.

Við mat á því hvað barni er fyrir bestu ber Útlend­inga­stofnun að líta til öryggis barns, vel­ferðar og félags­legs þroska auk þess að taka til­lit til skoð­ana barns­ins í sam­ræmi við aldur þess og þroska. Jafn­framt ber Útlend­inga­stofnun að taka skrif­lega afstöðu til fram­an­greindra atriða sam­kvæmt grein­inni við ákvörðun í máli er varðar hags­muni barns auk þess að eiga sam­ráð við barna­vernd­ar­yf­ir­völd. Í 6. mgr. 37. gr. lag­ana er sú skylda lögð á stjórn­vald að taka til skoð­unar að eigin frum­kvæði hvort veita eigi dval­ar­leyfi á grund­velli mann­úð­ar­sjón­ar­miða skv. 74. gr. ef stjórn­vald kemst að því að ákvæði 1. eða 2. mgr. eigi ekki við,“ segir í yfir­lýs­ingu frá Félags­ráð­gjafa­fé­lagi Íslands.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hælisleitendur

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár