Heilbrigðisráðuneytið: Öllum á að vera ljóst að tveggja metra reglan er mikilvæg

Heil­brigð­is­ráðu­neytið segir að öllum ætti að vera að ljóst að tveggja metra reglan sé mjög mik­il­væg sótt­varna­að­gerð, en einnig að hún sé ekki ótví­ræð skylda á milli ein­stak­linga af mis­mun­andi heim­ilum, sam­kvæmt gild­andi aug­lýs­ingu um tak­mörkun á sam­komum.

Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra.
Svandís Svav­ars­dóttir heil­brigð­is­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Öllum ætti að vera að ljóst að tveggja metra reglan var sett fram sem hluti af mik­il­vægum sótt­varna­ráð­stöf­unum sem snúa beint að ábyrgð ein­stak­linga, rétt eins og það að gæta að reglu­bundnum hand­þvotti, spritta hendur og að fara ekki til vinnu eða á manna­mót finni fólk fyrir ein­kennum sem gætu tengst COVID-19.

Ekki er þó kveðið á um ótví­ræða skyldu ein­stak­linga til að halda tveggja metra fjar­lægð við þá sem búa á öðrum heim­ilum í gild­andi aug­lýs­ingu um tak­mark­anir á sam­komum.

Þetta segir í svari heil­brigð­is­ráðu­neyt­is­ins við fyr­ir­spurn Kjarnans um tveggja metra regl­una og þann mis­skiln­ing um hvernig beri að fylgja henni, sem virð­ist vera ansi útbreiddur í sam­fé­lag­inu.[links]

Sumir hafa túlkað orð ráða­manna og til­mæli stjórn­valda frá því að hert var á tak­mörk­unum á ný, með þeim hætti að tveggja metra reglan væri nú algjör skylda á milli fólks sem býr ekki á sama heim­ili. Orð­send­ingu þess efnis hefur m.a. verið beint að almenn­ingi á vefnum covid.is, en nú stendur reyndar til að breyta því, sam­kvæmt því sem Víðir Reyn­is­son segir við RÚV.

Vin­konu­hitt­ingur Þórdísar Kol­brúnar Reyk­fjörð Gylfa­dóttur ráð­herra á laug­ar­dag hefur verið í kast­ljós­inu frá því í gær, enda birt­ust myndir þaðan í fjöl­miðlum sem sýndu glögg­lega að tveggja metra reglan var ekki virt þeirra á milli.

Þórdís Kolbrún, sem sjálf skrif­aði nýlega að mestu skipti í bar­átt­unni við veiruna að hvert og eitt okkar gæti að sótt­vörnum í okkar dag­lega lífi, sagði að hún hefði setið með vin­konum sínum á borði „eins og vinir gera sem borða saman.“

[adspot]

Kjarninn beindi fyr­ir­spurn til heil­brigð­is­ráðu­neyt­is­ins í dag vegna máls­ins og spurði ein­fald­lega hvort að það væri svo að fólk mætti velja sér vini til þess að hitta án þess að virða tveggja metra regl­una.

Á ábyrgð hvers og eins

Svarið var sem áður segir á þá leið að öllum ætti að vera ljóst að tveggja metra reglan væri mik­il­væg sótt­varna­að­gerð, rétt eins og hand­þvottur og annað sem brýnt hefur verið fyrir almenn­ingi. En hún er þó ekki fest í neinar útgefnar reglur hvað ein­stak­linga varðar.

„Gildandi aug­lýs­ing um tak­mark­anir á sam­komum kveður þannig ekki á um ótví­ræða skyldu ein­stak­linga til að halda tveggja metra fjar­lægð við aðra en þá sem það deilir með heim­ili,“ segir í svari ráðu­neyt­is­ins, sem vísar í 3. grein aug­lýs­ing­ar­innar þar sem segir að hvar sem fólk komi saman skuli tryggja að hægt sé að hafa a.m.k. 2 metra á milli ein­stak­linga sem ekki deila heim­ili.

„Eins og fram kom hjá sótt­varna­lækni á upp­lýs­inga­fund­inum kl. 14 í dag þá kveður þetta ákvæði á um skyldur rekstr­ar­að­ila til að haga málum þannig að þeir sem ekki deila heim­ili geti haft a.m.k. tvo metra á milli sín. Í skólum gildir annað, þ.e. eins metra regla og síðan er sér­stakt ákvæði um starf­semi þar sem ekki er hægt að tryggja 2 metra reglu vegna eðlis starf­sem­innar en við þær aðstæður er kveðið á um grímur,“ segir í svari ráðu­neyt­is­ins.

Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir sagði á upp­lýs­inga­fundi almanna­varna í dag að fólk þyrfti að bera ábyrgð á sínum athöfnum og að tveggja metra reglan ætti aðal­lega við um umgengni við ein­stak­linga sem maður þekkti engin deili á.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár