„Við vitum hins vegar ekki hve lengi vinstri slagsíða hægrimanna endist“

Formaður Sam­fylk­ing­ar­innar segir að hann hafi þá trú að traust á stjórn­málum muni aukast með víð­tæk­ari sam­vinnu stjórn­mála­hreyf­inga. Rík­is­stjórnin hafi hins vegar ekki treyst sér í það sam­starf.

Logi Einarsson, formaður Samfylkingarinnar.
Logi Ein­ars­son, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar. Mynd: Birgir Þór Harðarson

„Við vitum að við erum í betri færum en mörg lönd til að bregð­ast við, þar sem við höfum þrátt fyrir allt borið gæfu til, að hafa mikla sam­neyslu, með öfl­ugu opin­beru heil­brigð­is­kerfi, góðum skólum og vel­ferð­ar­þjón­ustu – þótt vissu­lega þurfi að gera enn betur. Við vitum líka að jafn­vel hægri­s­inn­að­asta fólk áttar sig á þessu og vill að rík­is­valdið komi nú atvinnu­líf­inu til bjargar – og það þarf vissu­lega að gera það. Veita skjóta og skil­virka aðstoð sem þarf þó í rík­ara mæli að ná til fólks­ins sjálfs og heim­ila þess. Við vitum hins vegar ekki hve lengi vinstri slag­síða hægri­manna end­ist – þótt okkur gruni það.“

[links]Þetta er meðal þess sem Logi Ein­ars­son, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, sagði í ræðu sinni eftir að for­sæt­is­ráð­herra flutti munn­lega skýrslu um áhrif COVID-19 far­ald­urs­ins og um við­brögð stjórn­valda við þeim áhrifum.

Logi sagði í ræðu sinni að það þyrfti að gera mun meira en þegar hefði verið gert. Styðja þyrfti betur við ýmsa hópa, til dæmis lítil fyr­ir­tæki sem bannað hefur verið að veita þjón­ustu, heim­ila, leigj­enda, atvinnu­lausra og náms­manna.

[adspot]Hann sagð­ist hafa þá trú að traust á stjórn­málum myndi aukast með víð­tæk­ari sam­vinnu stjórn­mála­hreyf­inga á þessum furðu­legu tímum. „Því þykir mér það miður, að rík­is­stjórnin hafi ekki treyst sér í nán­ara sam­starf allra flokka um aðgerða­pakka til handa atvinnu­lífi og almenn­ingi. Flest okkar nágranna­ríki hafa farið þá leið.“

Vill áherslu á jöfnuð og fjölbreytni

Logi sagði að í augna­blik­inu væri verið að slökkva elda en í fram­hald­inu þyrfti að hafa kjark og fram­sýni til að ráð­ast í breyt­ingar á skatt­kerf­inu; deila gæðum jafnar og tryggja að auð­lindir lands­ins skili almenn­ingi sann­gjörnum arði. „Óhjá­kvæmi­legt er að þau sem eiga meira að borga meira, og þeim sem eiga minna sé hlíft. Og þó sam­staða, sam­á­byrgð og æðru­leysi almenn­ings vegi vissu­lega mjög þungt, þegar við siglum okkur hægt og rólega út úr þess­ari krísu, hafa síð­ustu vikur líka sýnt okkur nauð­syn þess að leggja í sam­eig­in­lega sjóði sem geta tryggt öfl­ugt opin­bert heil­brigð­is­kerfi, vel­ferð­ar­þjón­ustu og örygg­is­net þegar á þarf að halda. Þess vegna er einmitt ágætur tími núna til að minna sig á skatt­greiðslur eru vafa­laust besta fjár­fest­ing sem nán­ast hvert og eitt okkar ræðst í yfir ævina.“

Til fram­tíðar þyrfti að skjóta styrk­ari stoðum undir fjöl­breytt­ara atvinnu­líf og skapa fleiri störf sem byggi á hug­viti. „Til þess þurfum við þó að ráð­ast í bylt­ing­ar­kennda sókn í mennta­málum. Það kann að virka nokkuð bratt að horfa lengra fram í tím­ann nokkra daga við þessar aðstæður, en við höfum ein­fald­lega ekki efni á öðru.

Tvö orð þurfa að verða leið­ar­stef í leið­angrinum framundan: Jöfnuður og fjöl­breytni.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár