Útilokar ekki sértækar aðgerðir ef af loðnubresti verður

Sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra telur fullt til­efni fyrir stjórn­völd að ræða við sveit­ar­fé­lög með hvaða hætti hægt verði að taka á loðnu­bresti ef af honum verður.

Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegsráðherra.
Kristján Þór Júl­í­us­son, sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Kristján Þór Júl­í­us­son, sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra, segir að ef hægt sé að milda með ein­hverjum hætti það högg sem sveit­ar­fé­lög verða fyrir ef af loðnu­brest verður þá sé sjálf­sagt mál að fara yfir það. Þetta kemur fram í svari ráðu­neyt­is­ins við fyr­ir­spurn Kjarnans.

Út er komin skýrsla um stöðu, áhrif og afleið­ingar loðnu­brests 2019 fyrir Vest­manna­eyjar. Skýrslan er unnin að beiðni bæj­ar­stjórnar af Hrafni Sævalds­syni sér­fræð­ingi hjá Þekk­ing­ar­setri Vest­manna­eyja.

Skýrsl­una má finna á vef­síðu Vest­manna­eyja­bæjar en helstu nið­ur­stöð­urnar eru þær að loðnu­brestur hafi bein áhrif á 350 starfs­menn og ígildi 60 árs­verka. Tapaðar launa­tekjur í Vest­manna­eyjum séu að minnsta kosti 1.000 millj­ónir króna. Tekjutap útgerð­ar­fyr­ir­tækja sé um 7.600 millj­ónir króna og ann­arra fyr­ir­tækja um 900 millj­ónir. Vest­manna­eyja­bær og Vest­manna­eyja­höfn verða af um 160 millj­ónum sökum þessa, sam­kvæmt skýrslu­höf­undi.

Íris Róberts­dóttir, bæj­ar­stjóri Vest­manna­eyja­bæjar, kynnti grein­ing­una fyrir sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra fyrr í vik­unni.

[adspot]

Miklir hagsmunir í húfi

Í svari ráð­herra kemur fram að skýrslan sýni svart á hvítu hversu miklir hags­munir séu í húfi fyrir þessi sveit­ar­fé­lög – fyr­ir­tækin, starfs­menn og sam­fé­lagið allt. „Leitin stendur enn yfir og er mjög umfangs­mikil eins og hefur komið fram – nú eru fimm skip við leit­ina. Því miður gefur leitin hingað til ekki miklar vænt­ingar um fram­haldið en von­andi ber leitin árangur, enda miklir hags­munir í húfi fyrir fólk og fyr­ir­tæki, og raunar allt íslenskt sam­fé­lag.“

Þá kemur jafn­framt fram í svar­inu að það yrði mikið högg, meðal ann­ars fyrir þessi sveit­ar­fé­lög, ef loðnu­brestur yrði annað árið í röð en ráð­herra gerði grein fyrir stöð­unni á fundi rík­is­stjórn­ar­innar á þriðju­dag­inn var. „Ef loðnu­brestur annað árið í röð raun­ger­ist þá er fullt til­efni fyrir stjórn­völd að ræða það við þessi sveit­ar­fé­lög með hvaða hætti verður hægt að taka á þeirri stöðu. Aðstæður eru mis­jafnar eftir sveit­ar­fé­lögum en ef það er með ein­hverjum hætti hægt að milda þetta högg þá er sjálf­sagt að fara yfir það.“

Vildu vita við hverju væri að búast

Íris bendir á í sam­tali við Kjarnann að ekki sé enn útséð um að loðna finn­ist en hún segir að staðan líti þó ekki vel út. „Þess vegna létum við gera þessa skýrslu. Svo við vitum við hverju megi búast,“ segir hún. Miklu máli skipti fyrir þetta sam­fé­lag að það séu loðnu­veiðar enda hafi þær áhrif á um 350 starfs­menn í bæj­ar­fé­lag­inu.

Hún seg­ist hafa kynnt skýrsl­una fyrir sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra í vik­unni og að hann hafi sýnt mik­inn skiln­ing. Hún áréttar að í því sam­tali hafi hún ekki farið fram á sér­stakan stuðn­ing heldur hafi hún kynnt skýrsl­una til þess að ræða áhrifin. Hún segir enn fremur að þetta ástand hafi áhrif á fleiri sveit­ar­fé­lög en Vest­manna­eyjar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

sjávarútvegsmál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár