Meirihluti forsvarsfólks nýsköpunarfyrirtækja telur krónuna hafa neikvæð áhrif

Í nýrri könnun, sem Gallup fram­kvæmdi fyrir Northstack og Tækni­þró­un­ar­sjóð um umhverfi nýsköp­un­ar­fyr­ir­tækja á Íslandi, kemur fram að 73,5% aðspurðra telji að sér­ís­lenskur gjald­mið­ill hafi nei­kvæð áhrif á rekstur nýsköp­un­ar­fyr­ir­tækja.

Krist­inn Árni L. Hró­bjarts­son, ­stofn­andi Northstack, kynnti niðurstöðurnar í dag.
Krist­inn Árni L. Hró­bjarts­son, ­stofn­andi Northstack, kynnti nið­ur­stöð­urnar í dag. Mynd: Aðsend mynd

Í nýrri könnun sem send var á 735 fyr­ir­tæki eða á alla umsækj­endur um styrk til Tækni­þró­un­ar­sjóðs síð­ustu þrjú ár fyrir sum­arið 2019 kemur fram að 73,5 pró­sent aðspurðra telji að sér­ís­lenskur gjald­mið­ill hafi nei­kvæð áhrif á rekstur nýsköp­un­ar­fyr­ir­tækja.

Gallup fram­kvæmdi könn­un­ina fyrir Northstack og Tækni­þró­un­ar­sjóð um umhverfi nýsköp­un­ar­fyr­ir­tækja á Íslandi og voru nið­ur­stöður hennar kynntar á við­burði skipu­lögðum af Icelandic Startups í dag.

Í könn­un­inni kemur meðal ann­ars fram að svar­endur séu almennt jákvæðir fyrir fram­tíð nýsköp­unar, eða 75,8 pró­sent, og telji almenn­ings­á­litið vera jákvætt í garð nýsköp­unar, eða 75,7 pró­sent.

61% telur að bankaþjónusta á Íslandi henti illa eða mjög illa

Einungis 18,2 pró­sent svar­enda eru sam­mála því að Ísland sé góður staður fyrir fyr­ir­tæki í örum vexti og 18,9 pró­sent eru sam­mála því að landið sé gott fyrir alþjóð­leg nýsköp­un­ar­fyr­ir­tæki.

Misgóð vit­und er um íviln­anir meðal svar­enda. 51,2 pró­sent vissu ekki af íviln­unum fyrir erlenda sér­fræð­inga og 22,8 pró­sent vissu ekki af end­ur­greiðslum vegna rann­sókna- og þró­un­ar­starfs.

Rúmlega helm­ingur, eða 61 pró­sent, telur að banka­þjón­usta á Íslandi henti illa eða mjög illa fyrir nýsköp­un­ar­fyr­ir­tæki.

Könnunin var fram­kvæmd síð­asta sumar og var úrtakið þau 735 fyr­ir­tæki sem höfðu sótt um styrk til Tækni­þró­un­ar­sjóðs þrjú ár fyrir könn­un­ina.

Grunnur til að byggja ofan á

Kristinn Árni L. Hró­bjarts­son, stofn­andi Northstack, segir við til­efnið að ekki hafi verið gerð svo viða­mikil könnun um umhverfi nýsköp­unar á Íslandi, sam­kvæmt hans vit­neskju. „Mark­miðið er að búa til grunn, sem með tím­anum er hægt að byggja ofan á, og von­ast ég eftir því að könn­unin verði end­ur­tekin reglu­lega, til að fylgj­ast með þróun mála,” segir hann.

Umhverfi nýsköp­un­ar­fyr­ir­tækja á Íslandi er sam­starfs­verk­efni Northstack, Gallup og Tækni­þró­un­ar­sjóðs. Markmið verk­efn­is­ins er að kort­leggja við­horf for­svars­fólks nýsköp­un­ar­fyr­ir­tækja til umhverfis nýsköp­unar á Íslandi.

Á vef­síðu verk­efn­is­ins kemur fram að for­svars­menn þess hafi valið að birta gögnin hrá og án túlk­unar á Nýsköp­un­ar­landið.is, til að gefa umhverf­inu og öllum þátt­tak­endum þess aðgang að gögn­unum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár