Haraldur hættir sem ríkislögreglustjóri

Haraldur Johann­es­sen ætlar að hætta sem rík­is­lög­reglu­stjóri um næstu ára­mót.

Haraldur Johannessen
Haraldur Johann­es­sen Mynd: Birgir Þór Harðarson

Haraldur Johann­es­sen ætlar að hætta sem rík­is­lög­reglu­stjóri um ára­mót. Hann hefur óskað eftir því við Áslaugu Örnu Sig­ur­björns­dóttur dóms­mála­ráð­herra að fá að láta af emb­ætti frá og með næstu ára­mótum. Haraldur sendi sam­starfs­fé­lögum sínum bréf þess efnis nú í morgun. Frá þessu er greint á RÚV í dag.

Samkvæmt frétt RÚV óskaði Haraldur jafn­framt eftir því að hann tæki að sér sér­staka ráð­gjöf við ráð­herra á sviði lög­gæslu­mála eftir að hann hættir sem lög­reglu­stjóri, sem meðal ann­ars lýti að fram­tíð­ar­skipu­lagi lög­gæsl­unnar.

„Haraldur seg­ist stíga sáttur frá borði eftir að hafa gegnt þessu ábyrgð­ar­mikla starfi í 22 ár. Nú þegar boð­aðar eru breyt­ingar á yfir­stjórn lög­reglu­mála í land­inu telji hann rétt að hleypa að nýju fólki og segir að það sé sér ljúft og skylt að vera ráð­herra í fram­hald­inu til ráð­gjafar um fram­tíð­ar­skipu­lag lög­gæsl­unnar,“ segir í frétt­inni.

[adspot]

Í sept­em­ber síð­ast­liðnum lýstu átta af níu lög­reglu­stjórum lands­ins og for­manna­fundur Lands­sam­bands lög­reglu­manna yfir van­trausti á Harald. Þeir báru við­tal sem hann fór við í Morg­un­blað­inu fyrr í þeim mán­uði fyrir sig sem lyk­ilá­stæðu þeirrar ákvörð­unar.

[links]Í við­tal­inu sagði Haraldur meðal ann­ars að verið væri að reyna að hrekja hann úr emb­ætti með því að dreifa vís­vit­andi rang­færslum og róg­burði um hann. Þeir sem væru að gera það væru lög­reglu­menn sem teldu sig eiga harma að hefna gegn honum, meðal ann­ars vegna þess að hann hafi gripið inn í vegna starfs­hátta eða fram­komu þeirra eða vegna þess að þeir hafi ekki fengið stöður sem þeir sótt­ust eftir. Ef til starfs­loka hans kæmi myndi það kalla á enn ítar­legri umfjöllun af hans hálfu um valda­bar­átt­una bak við tjöldin.

Dóms­mála­ráð­herra hefur boðað til blaða­manna­fundar í Ráð­herra­bú­staðnum við Tjarn­ar­götu í Reykja­vík í dag klukkan 13:00 þar sem hún ætlar að fjalla um mál­efni lög­regl­unnar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár