Kemur ekki til greina að gera starfslokasamning við Harald að svo stöddu

Ekki kemur til greina hjá dóms­mála­ráð­herra að gera starfs­loka­samn­ing við Harald Johann­es­sen, rík­is­lög­reglu­stjóra, að svo stöddu.

Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir, dóms­mála­ráð­herra, segir að ekki hafi komið til greina að gera starfs­loka­samn­ing við Harald Johann­es­sen, rík­is­lög­reglu­stjóra, að svo stöddu. Áslaug mun setja af stað vinnu í dóms­mála­ráðu­neyt­inu sem mun fara yfir þær deilur sem nú eiga sér stað innan lög­regl­unnar um starf­semi emb­ættis rík­is­lög­reglu­stjóra og sam­skipta þess við lög­reglu­emb­ætti lands­ins. Þetta kemur fram í við­tali við Áslaugu á frétta­stofu RÚV.

Stjórn­­­sýslu­út­­­tekt í far­vatn­inu

[links]Tölu­verðar deilur hafa verið innan lög­­­regl­unn­­­ar, og þá einkum í garð Rík­­­is­lög­­­reglu­­­stjóra, að und­an­­­förnu, en í fréttum RÚV hefur meðal ann­­­ars komið fram að þær teng­ist fata­málum lög­­­­­reglu og bíla­mál­um, ásamt öðrum mál­u­m.

Fjöl­­­mörg lög­­­­­reglu­emb­ætti í land­inu hafa lýst yfir stuðn­­ingi við stjórn Lands­­­sam­­­bands lög­­­­­reglu­­­manna sem hafa und­an­farið sett þrýst­ing lög­­­­­reglu­­­stjóra lands­ins á að láta fara fram al­hliða stjórn­­­­­sýslu­út­­­­­tekt á emb­ætti rík­­­is­lög­­­reglu­­­stjóra. Ákveðið var að Rík­­is­end­­ur­­skoðun ráð­ist í slíka úttekt í lið­inni viku. [adspot]

Har­aldur sendi frá sér yfir­­­lýs­ingu á fimmt­u­dag þar sem sagði að álykt­­­anir lög­­­­­reglu­­­fé­laga, gegn emb­ætti rík­­­is­lög­­­reglu­­­stjóra, væru ekki til þess fallnar að skapa frið um störf lög­­­­­reglu. Þá sagði að yfir­­­lýs­ingar sem „ali á ótta“ geti verið til þess fallnar að bitna á öryggi almenn­ings og það sé ámæl­is­vert. „Við þetta ástand verður ekki unað enda kastar það rýrð á lög­­­regl­una og störf hennar sem grefur undan því mikla trausti sem almenn­ingur ber til lög­­­regl­unn­­­ar. Á end­­­anum gæti þetta ástand því komið niður á öryggi almenn­ings,“ sagði í yfir­­­lýs­ing­unni.

Ástandið óásættanlegt

Áslaug Arna fund­aði með Haraldi í dóms­mála­ráðu­neyt­inu í dag. Haraldur sagði í við­tali fyrir fund­inn að hann hefði óskað eftir fund­inum en hann seg­ist óska eftir fundi með dóms­mála­ráð­herra í hvert skipti sem nýr ráð­herra tekur við emb­ætt­inu.

Áslaug segir í sam­tali við frétta­stofu RÚV að hún hafi greint Haraldi frá því að henni þætti ástandið óásætt­an­legt á fund­inum. „Ég held að ástandið sé óásætt­an­legt og það gera sér allir grein fyrir því. Ég lýsti þeirri skoðun minni,“ segir Áslaug Arna.

„Ég mun setja af stað vinnu hér í ráðu­neyt­inu sem mun fara yfir málið í sam­ráði við helstu aðila,“ segir dóms­mála­ráð­herra jafn­framt. „Ég vona að það komi eitt­hvað hratt út úr því um hvernig við getum brugð­ist við þess­ari stöðu.“

Hún greindi jafn­framt frá því í við­tal­inu að ekki hafi komið til greina að svo stöddu að gera starfs­loka­samn­ing við Harald.

Segir málefni lögreglunnar nú leyst innan lögreglunnar

Haraldur segir fund­inn með Áslaugu haf verið gagn­legan og góðan í sam­tali við frétta­stofu RÚV. Hann segir hjaðn­inga­víg hafa átt sér stað innan lög­regl­unnar og að þau skili engu nema menn falli. „Ég held að við séum öll sam­mála um að nú verða mál­efni lög­regl­unnar leyst innan lög­reglu með sam­tölum okkar á milli og við reynum að hætta að karpa í fjöl­miðlum,“ segir Haraldur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár