Fimmta hvert heimili á leigumarkaði undir lágtekjumörkum

Rúmlega 31 þús­und ein­stak­lingar voru undir lág­tekju­mörkum í fyrra eða um 9 pró­sent íbúa á Íslandi. Hlutfall leigj­enda undir lág­tekju­mörkum er mun hærra en á meðal þeirra sem eiga hús­næði.

Lág­tekju­hlut­fall meðal leigj­enda er hærra en á meðal fólks sem býr í eigin hús­næði og hefur verið svo frá því að mæl­ingar hófust. Í fyrra voru 20 pró­sent heim­ila á leigu­mark­aði undir lág­tekju­mörkum en 6 pró­sent heim­ila í eigin hús­næði. Þetta kemur fram í nið­ur­stöðum lífs­kjara­rann­sóknar Hagstofu Íslands.

Einn af hverjum tíu undir lágtekjumörkum

Alls voru 31.400 ein­stak­lingar undir lág­tekju­mörkum í fyrra eða um 9 pró­sent íbúa á Íslandi. Það eru mun lægra hlut­fall en á hinum Norð­ur­lönd­unum en þar er hlut­fallið á bil­inu 16 til 18 pró­sent.

Þessir rúm­lega 31 þús­und ein­stak­lingar bjuggu á um 16 þús­und heim­ilum í fyrra. Mikill meiri­hluti þeirra heim­ila var á leigu­mark­aði. Á þeim fimmtán árum sem Hag­stofan hefur mælt lág­tekju­hlut­fall þá hefur hlut­fall leigj­enda undir lág­tekju­mörkum verið 25 pró­sent að með­al­tali.

Hæst fór hlut­fallið í 32 pró­sent en lægst í 20 pró­sent árin 2014 og í fyrra. Þá hefur hlut­fall eig­enda undir lág­tekju­mörkum farið hæst í 11 pró­sent árið 2007 en var lægst árin 2011 og 2012 þegar það var um 5 pró­sent. [adspot]

Helmingur leigjenda telur sig ekki búa við húsnæðisöryggi

[links]Alls voru 17,5 pró­sent full­orð­inna ein­stak­linga 18 ára og eldri á leigu­mark­aði hér á land­i í sept­em­ber síð­ast­liðnum og 19 pró­sent full­orð­inna á höf­uð­borg­ar­svæð­inu.

Í við­horfskönnun Íbúða­lána­sjóðs frá því í júní á þessu ári kemur fram að ­meiri­hluti þjóð­­ar­innar telur óhag­­stætt að leigja eða alls 92 pró­­sent. Þá kemur fram í sömu könnun að ein­ungis 51 pró­­sent leigj­enda telji sig búa við hús­næð­is­ör­ygg­i. Al­­geng­asta á­­stæða þess að fólk telur sig ekki búa við hús­næð­is­ör­yggi er vegna þess að fólk hefur ekki efni á leigu eða verð of hátt.

Í önn­un­innikom jafn­framt að fjár­­hags­­staða heim­il­is­ins er ­­mark­tækt verri hjá leigj­endum en hjá þeim sem búa í eigin hús­næði. Yfir 20 pró­­sent þeirra sem eru á leig­u­­mark­aði segj­­ast safna skuldum eða nota sparifé til þess að ná endum saman sam­an­­borið við ein­ungis 7 pró­­sent þeirra sem búa í eigin hús­næði.

Færri búa við skort

Í nið­ur­stöðum Hag­stof­unnar kemur jafn­framt fram að þegar litið er til skorts á efn­is­legum gæðum reynd­ust 4 pró­sent ein­stak­linga búa við skort og 0,7 pró­sent búa við veru­legan skort hér á landi árið 2018. Það er þó lækkun frá árinu 2016 þegar 6,1 pró­sent bjuggu við skort og 1,9 pró­sent við veru­legan skort efn­is­legra gæða.

Hlut­falls­lega fáir búa við skort á Íslandi í evr­ópskum sam­an­burði og á það einnig við um hin Norð­ur­löndin. Að með­al­tali bjuggu 15 pró­sent við skort á efn­is­legum gæðum í ríkjum Evr­ópu­sam­bands­ins árið 2017, hlut­falls­lega fæstir í Svíþjóð 4 pró­sent en flestir í Búlgaríu 44 pró­sent.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár