Helmingur leigjenda telur sig búa við húsnæðisöryggi

Einungis 51 pró­sent leigj­enda telja sig búa við hús­næð­is­ör­yggi sam­an­borið við 94 pró­sent hús­næð­is­eig­enda. Helstu ástæður þess eru að fólk hefur ekki efni á leigu, leigu­verð er of hátt og tíma­bundnir leigu­samn­ingar.

Heilt yfir virð­ist hús­næð­is­ör­yggi vera nokkuð mikið hér á landi en 85 pró­sent lands­manna telja sig búa við það. Það er þó ólíkt eftir því hvort að fólki búi í eigin hús­næði eða leigu­hús­næði en ein­ungis 51 pró­sent leigj­enda telja sig búa við hús­næð­is­ör­yggi. Algeng­asta ástæða þess að fólk telur sig ekki búa við hús­næð­is­ör­yggi er vegna þess að fólk hefur ekki efni á leigu eða verð of hátt. Þetta kemur fram í nýrri við­horfskönnun Íbúða­lána­sjóðs.

Öryrkjar búa við minni húsnæðisöryggi

Í nýrri könnun Íbúða­lána­sjóðs voru svar­endur beðnir um að leggja mat á hversu sam­mála eða ósam­mála þeir væru full­yrð­ing­unni: „Ég tel mig búa við hús­næð­is­ör­yggi.“ Í ljós kom að mun færri leigj­endur telja sig búa við húnsæð­is­ör­yggi en hús­næð­is­eig­endur. Nið­ur­stöð­urnar sýndu að ein­ungis 51 pró­sent leigj­enda var sam­mála full­yrð­ing­unni sam­an­borið við 94 pró­sent þeirra sem búa í eigin hús­næði.

Auk þess sýna nið­ur­stöð­urnar að nokkuð áber­andi munur er á afstöðu fólks til hús­næð­is­ör­yggis eftir stöðu á vinnu­mark­aði. Þá töldu öryrkjar sig búa við mark­tækt minna hús­næð­is­ör­yggi en aðrir hópa, 64 pró­sent öryrkja töldu sig búa við hús­næð­is­ör­yggi sam­an­borið við 86 pró­sent laun­þega í fullu starfi.

Þá kom einnig fram munur á afstöðu fólks eftir aldri, óháð öðrum breytum. Fólk á aldr­inum 25 til 34 ára telur sig búa við minnst hús­næð­is­ör­yggi og ald­urs­hóp­ur­inn 65 ára og eldri mest.

Þeir svar­endur sem töldu sig ekki búa við hús­næð­is­ör­yggi voru beðnir að nefna helstu ástæð­una fyrir því. Algeng­asta ástæðan var sú að fólk hefði ekki efni á leigu eða verðið væri of hátt. Næstal­geng­asta orsökin var að um tíma­bund­inn leigu­samn­ing væri að ræða eða eig­and­inn væri að selja hús­næðið.

16 prósent fullorðinna á leigumarkaði

Við­horfskann­anir sem Íbúða­lána­sjóður hefur gert síð­ustu ár benda til þess að um 16 pró­sent full­orð­inna ein­stak­linga séu nú á leigu­mark­aði. Þá er ungt fólk hlut­falls­lega lík­legra til þess að vera á leigu­mark­aði en 33 pró­sent fólks á aldr­inum 18 til 24 ára eru á leigu­mark­aði sam­an­borið við til að mynda 18 pró­sent fólks á aldr­inum 35 til 44 ára. [adspot]

Þegar horft er til stöðu á vinnu­mark­aði má sjá að náms­menn og öryrkjar eru hlut­falls­lega lík­legri en aðrir hópar til þess að vera á leigu­mark­aði. Þá eru 27 pró­sent öryrkja á leigu­mark­aði og 33 pró­sent náms­manna sam­an­borið við 15 pró­sent laun­þega í fullu starfi.

Tæplega þriðjungur leigj­enda telja núver­andi hús­næði ekki upp­fylla þarf­ir

Þrátt fyrir vís­bend­ingar um aukið fram­boð af leigu­hús­næði telja aðeins 10 pró­sent þjóð­ar­innar að það sé mikið fram­boð af íbúð­ar­hús­næði til leigu sem henti sér og sinni fjöl­skyldu. Þá telja 13 pró­sent þjóð­ar­innar að núver­andi hús­næði upp­fylli ekki allar helstu þarfir og helsta ástæðan var sú að íbúðin væri ekki nógu stór eða með nógu mörgum her­bergjum. Alls voru það 29 pró­sent leigj­enda sem töldu að núver­andi hús­næði upp­fyllti ekki þarfir sam­an­borið við 8 pró­sent þeirra sem búa í eigin hús­næði.

Enn­fremur telur meiri­hluti þjóð­ar­innar að það sé óhag­stætt að leigja um þessar mundir eða alls 92 pró­sent. Samkvæmt könn­un­inni er fjár­hags­staða heim­il­is­ins mark­tækt verri hjá leigj­endum en þeim sem búa í eigin hús­næði. Yfir 20 pró­sent þeirra sem eru á leigu­mark­aði segj­ast safna skuldum eða nota sparifé til þess að ná endum saman sam­an­borið við ein­ungis 7 pró­sent þeirra sem búa í eigin hús­næði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár