Kemur í ljós hversu mikil áhrif almenningssamráðið mun hafa

Í kvöld lýkur marg­hátt­uðu almenn­ings­sam­ráði um stjórn­ar­skrána. Mark­miðið með sam­ráð­inu er að tryggja að rödd almenn­ings fái að hjóma í nefnd­ar­vinnu for­manna þing­flokk­anna um end­ur­skoðun stjórn­ar­skrár­innar.

Rúmlega þús­und manns hafa tekið þátt í umræðum á sam­ráðsvefnum Betra Ísland þar sem almenn­ingi gefst kostur á að koma á fram­færi eigin hug­myndum um stjórn­ar­skrár­breyt­ingar og afla þeim stuðn­ings.

Sam­ráðsvef­ur­inn er hluti af almenn­ings­sam­ráði um end­ur­skoðun stjórn­ar­skrár­innar og um helg­ina fór jafn­framt fram rök­ræðukönnun um nokkur ákvæði stjórn­ar­skrár­innar. Nið­ur­stöður sam­ráðs­ins verða kynntar fyrir for­manna­nefnd allra flokka á Alþingi sem vinna nú að end­ur­skoðun stjórn­ar­skrár­innar.

Ákveðin áskorun að vekja áhuga fólks á stjórnarskránni

[links]Háskóli Íslands (HÍ) og Betra Ísland standa saman að sam­ráð­inu en mark­mið þess er að styðja við end­ur­skoðun stjórn­valda á stjórn­ar­skránni og tryggja að rödd almenn­ings hafi vægi. Sam­ráð­inu lýkur á mið­nætti í dag, sunnu­dag­inn 10. nóv­em­ber.

Ein af þremur skrefum sam­ráðs­ins er sam­ráðsvefur Betra Íslands þar sem hægt er að setja fram hug­myndir um stjórn­ar­skrár­breyt­ingar, afla þeim stuðn­ings og rök­ræða þær frekar. Í frétta­til­kynn­ingu frá Betra Íslandi kemur fram að yfir 15.000 manns hafa heim­sótt vef­inn. Aftur á móti hafa aðeins rúm­lega þús­und manns skráð sig inn og tekið beinan þátt í rök­ræðum.

Róbert Bjarna­son, einn af stofn­endum Betra Íslands og fram­kvæmda­stjóri Íbúa ses, segir í sam­tali við Kjarnann að þau sem standi að verk­efn­inu hafi gert sér grein fyrir að það væri ákveðin áskorun að vekja áhuga fólks á stjórn­ar­skránni.

Til að mynda hafi komið fram í nið­ur­stöðum skoð­ana­könn­unar félags­vís­inda­stofn­unar Háskóla Íslands á við­horfum almenn­ings til stjórn­ar­skrár­innar, sem fram­kvæmd var í sumar, að aðeins 4 pró­sent telja sig hafa mikla þekk­ingu á stjórn­ar­skránni.

Róbert segir því að þátt­takan á sam­ráðsvefnum stand­ist nokkuð vel vænt­ingar og svip­aðar tölur megi finna í öðrum sam­ráðs­vett­vöngum hjá stofn­un­inni. Róbert seg­ist jafn­framt vera ánægður með breidd­ina í þeim hug­myndum sem birt hafa verið á vefnum og að mikið af nýjum rökum með og á móti breyt­ing­ar­til­lög­unum hafi komið í ljós. 

Stjórnarskrárleikur og rökræðufundur

Til við­bótar við sam­ráðsvef­inn hefur HÍ og Betra Ísland líka þróað stjórn­ar­skrár­leik sem hægt er að spila á net­inu sem heitir Þín eigin stjórn­ar­skrá. Markmið leiks­ins er að gera hönnun stjórn­ar­skrár að skilj­an­legu og skemmti­legu verk­efni.

Róbert segir að mikið af fólki þyki stjórn­ar­skráin flókin en að hans mati er stjórn­ar­skráin í raun með ein­fald­ari og hnit­mið­aðri lögum lands­ins. Með þessum nýjum skrefum í almenn­ings­sam­ráði sé því von­ast eftir því að auka vit­und og skiln­ing almenn­ings, ekki síst yngra fólks um stjórn­ar­skrána og þau mik­il­vægu mál­efni sem hún fjallar um.

Þriðja skrefið í þessu almenn­ings­sam­ráði er rök­ræðu­fundur um breyt­ingar á stjórn­ar­skrá sem fór fram um helg­ina í Laug­ar­dals­höll á vegum For­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins og HÍ. Tekið var 300 manna úrtak úr þeim hópi sem tók þátt í skoð­ana­könn­un­inni í sumar og þeim boðið að taka þátt í rök­ræðukönn­un­inni.

Rök­ræðukönn­unin fer þannig fram að þátt­tak­endum er skipt í hópa sem ræða við­fangs­efni út frá rökum með og á móti ýmsum til­lögum undir stjórn umræðu­stjóra. Að loknum umræðum um hvert efni gefst þátt­tak­endum tæki­færi á sam­tali við sér­fræð­inga í pall­borðsum­ræðum. Við­horfskönnun fer fram í upp­hafi fundar og einnig í lok hans og þannig er kannað hvort breyt­ingar verði á við­horfum fólks við að taka þátt í rök­ræðukönn­un­inni.

Rök­ræðukönn­unin um helg­ina tók fyrir nokkur atriði sem byggð eru á minn­is­blaði for­sæt­is­ráð­herra. Það eru ákvæði um emb­ætti for­seta Íslands, þjóð­ar­at­kvæða­greiðslur og þjóð­ar­frum­kvæði, Landsdóm, breyt­ingar á stjórn­ar­skrá, kjör­dæma­skipt­ingu og atkvæða­vægi og alþjóða­sam­starf og fram­sal vald­heim­ilda.

Niðurstöðurnar kynntar fyrir formannanefndinni

Nið­ur­stöður sam­ráðsvefs­ins, rök­ræðu­fund­ar­ins og skoð­ana­könn­un­ar­innar verða síðan teknar saman og kynntar fyrir nefnd um end­ur­skoðun stjórn­ar­skrár­innar með öllum for­mönnum flokka sem eiga full­trúa á Alþing­i.

Sú nefnd vinnur nú að breyt­ing­ar­til­lögum sem lagðar verða fyrir Alþingi og í maí síð­ast­liðnum lagði for­sæt­is­ráð­herra fram tvö frum­varps­drög er varða breyt­ingar á stjórn­ar­skránni til umsagnar í sam­ráðs­gátt stjórn­valda. Ann­­ars vegar er um að ræða frum­varp um umhverf­is­vernd og hins vegar frum­varp um auð­lindir í nátt­úru Íslands.

Nú kemur að pólitíkusunum

Róbert segir að með þessum þremur mis­mun­andi sam­ráðs­leiðum sé verið að reyna koma rödd almenn­ings inn í nefnd­ar­vinnu for­mann­anna á Alþingi. Hann segir það hins vegar eiga eftir að koma í ljós hversu mikil áhrif nið­ur­stöður sam­ráðs­ins hafa á vinnu nefnd­ar­innar. „Nú kemur að póli­tíkus­unum að fara eftir þessum nið­ur­stöðum,“ segir Róbert.

Hann segir jafn­framt að ástæða þess að Betra Ísland og HÍ hafi ákveðið að taka þátt í þessu ferli hafi verið af því að allir stjórn­mála­flokk­arnir á þingi taki þátt í end­ur­skoð­un­inni. Hann segir að ef þetta hefði aðeins verið vinna rík­is­stjórn­ar­flokk­anna þriggja þá hefðu þeir eflaust ekki tekið þátt en þar sem for­menn allra flokk­anna séu að taka þátt þá sé þessi vinna lík­legru til árang­urs.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár