Mikilvægt að kveðið sé á um náttúruauðlindir og umhverfismál í stjórnarskrá

Lands­menn sam­mæl­ast um að mikil þörf sé á því að ákvæði séu um nátt­úru­auð­lindir í stjórn­ar­skrá Íslands í nýrri könnun for­sæt­is­ráð­herra. Rúmlega 70 pró­sent telja að breyt­ingar á stjórn­ar­skránni ættu alltaf að bera undir þjóð­ina.

Níu af hverjum tíu Íslend­ingum finnst mik­il­vægt að kveðið sé á um nátt­úru­auð­lindir í stjórn­ar­skrá Íslands. Þá telja 84 pró­sent lands­manna að mik­il­vægt sé að ákvæði séu um umhverf­is­mál í stjórn­ar­skrá. Þetta er á meðal þess sem fram kemur í nið­ur­stöðum ítar­legrar könn­unar félags­vís­inda­stofn­unar Háskóla Íslands um við­horf almenn­ings til stjórn­ar­skrár­inn­ar.

For­sæt­is­ráð­herra hefur nú þegar lagt fram drög að stjórn­ar­skrár­á­kvæðum um auð­lindir nátt­úru Íslands sem og umhverf­is­vernd. Skiptar skoð­anir eru þó um ákvæðin ef marka má umsagnir um drögin í sam­ráðs­gátt stjórn­valda.

Ákvæði um náttúruauðlindir til skoðunar

[links]Í stjórn­ar­sátt­mála núver­andi rík­is­stjórnar sem birt var þann 30. nóv­em­ber 2017 segir að rík­is­stjórnin vilji halda áfram heild­ar­end­ur­skoðun stjórn­ar­skrár­innar í þverpóli­tísku sam­starfi með aðkomu þjóð­ar­innar og nýta meðal ann­ars til þess aðferðir almenn­ings­sam­ráðs. Í kjöl­farið stofn­aði for­sæt­is­ráð­herra nefnd um end­ur­skoðun stjórn­ar­skrár­innar með öllum for­mönnum flokka sem eiga full­trúa á Alþingi.

Í minn­is­blaði for­sæt­is­ráð­herra um fyr­ir­hug­aða end­ur­skoðun stjórn­ar­skár­innar kemur fram að nefndin skuli hafa til hlið­sjónar þá miklu vinnu sem lögð hafi verið í end­ur­skoðun á und­an­förnum árum, sam­an­ber þjóð­fund, stjórn­laga­nefnd og stjórn­laga­ráð auk starfa stjórn­ar­skrár­nefnda.

Með það fyrir augum gæti nefndin unnið að breyt­ing­ar­til­lögum sem lagðar yrðu fyrir Alþingi hverju sinni í breiðri sátt að und­an­gengnu víð­tæku sam­ráði.

Vinnan við end­ur­skoð­un­ina er áfanga­skipt og á tíma­bil­inu 2018 til 2021 taka for­menn flokk­ana meðal ann­ars fyrir þjóð­ar­eign á nátt­úru­auð­lind­um, umhverf­is- og nátt­úru­vernd og þjóð­ar­at­kvæða­greiðslur að frum­kvæði hluta kjós­enda eða minni­hluta þings.[adspot]

Í maí síð­ast­liðnum lagði for­sæt­is­ráð­herra síðan fram tvö frum­varps­drög er varða breyt­ingar á stjórn­ar­skránni til umsagnar í sam­ráðs­gátt stjórn­valda. Ann­ars vegar er um að ræða frum­varp um umhverf­is­vernd og hins vegar frum­varp um auð­lindir í nátt­úru Íslands. Yfir þrjá­tíu umsögnum var skilað inn um drögin.

Hægri-sinnaðir ánægðari með núgildandi stjórnarskrá

Fyrir helgi kynnti Katrín Jak­obs­dóttir sam­ráð stjórn­valda við almenn­ing um end­ur­skoðun stjórn­ar­skrár­innar. Þar á meðal var skoð­ana­könnun sem fram­kvæmd var af Háskóla Íslands frá júlí til sept­em­ber á þessu ári að beiðni for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins

Markmið könn­un­ar­innar var að draga fram sam­eig­in­leg grunn­gildi íslensku þjóð­ar­innar, kanna við­horf hennar til til­lagna sem komið hafa fram á und­an­förnum árum að breyt­ingum á stjórn­ar­skrá lýð­veld­is­ins og kort­leggja sýn almenn­ings á við­fangs­efni stjórn­ar­skrár­innar eins og þau eru útli­stuð í minn­is­blaði for­sæt­is­ráð­herra um fyr­ir­hug­aða end­ur­skoðun stjórn­ar­skrár. Vert er að taka fram að ekki var spurt um til­lögur stjórn­laga­ráðs í könn­un­inni.

Í nið­ur­stöð­u­m könn­un­ar­innar kemur fram að 37 pró­sent svar­enda segj­ast ver­a á­nægð ­með­ nú­gild­andi stjórn­ar­skrá Íslands, 36 pró­sent svara hvorki né og 27 pró­sent segj­ast vera frekar eða mjög óánægð með stjórn­ar­skránna.

Tölu­verður munur er þó á afstöðu til stjórn­ar­skrár­innar eftir því hvar fólk stað­setur sig á vinstri og hægri skal­anum. Af þeim sem stað­setja sig til vinstra segj­ast 45 pró­sent vera óánægð með núgild­andi stjórn­ar­skrá en alls 21 pró­sent ánægð með stjórn­ar­skránna. Til sam­an­burður segj­ast 64 pró­sent þeirra sem stað­setja sig meira til hægri vera ánægð með núgild­andi stjórn­ar­skrá en aðeins 9 pró­sent segj­ast vera óánægð með stjórn­ar­skránna.

Í nið­ur­stöðum könn­un­ar­innar kemur jafn­framt fram að meiri­hluti lands­manna hefur litla eða enga þekk­ingu á stjórn­ar­skránni eða alls 58 pró­sent. Þá segj­ast 42 pró­sent hafa mikla eða nokkra þekk­ingu á stjórn­ar­skránni.

Mikil þörf á ákvæði um náttúruauðlindir

Í könn­un­inni var jafn­framt spurt um hversu mikil þörf væri á ákvæðum um ákveðin atriði sem ekki eru í núgild­andi stjórn­ar­skrá. Alls telja um 90 pró­sent svar­enda að mjög mikil eða frekar mikil þörf sé á að ákvæði um nátt­úru­auð­lindir í stjórn­ar­skrá. Þá segj­ast 84 pró­sent að mik­il­vægt sé að ákvæði séu um umhverf­is­mál í stjórn­ar­skrá.

Þá telja rúm­lega 70 pró­sent að þörf sé á ákvæði um lýð­ræð­is­legt frum­kvæði almenn­ings og ákvæði um íslenska tungu. 

Jafn­framt kemur fram í nið­ur­stöð­unum að 70 pró­sent svar­enda að mikil þörf sé á því að ákvæði um dóm­stóla verði end­ur­skoðuð í stjórn­ar­skrá sem og mann­rétt­inda­á­kvæði. Jafn­framt telja meiri­hluti svar­enda, um 65 pró­sent, að ákvæði um kjör­dæma­skipan og atkvæða­vægi ættu að vera end­ur­skoðuð sem og hlut­verk rík­is­stjórnar og ráð­herra.

Meirihluti hlynntur öðru fyrirkomulagi við breytingar á stjórnarskrá

Enn fremur kemur fram í nið­ur­stöðum könn­un­ar­innar að meiri­hluti svar­enda, 65 pró­sent, séu þeirra skoð­unar að taka ætti upp annað fyr­ir­komu­lag við breyt­ingar á stjórn­ar­skrá, til dæmis að halda ætti frekar þjóð­ar­at­kvæða­greiðslur eða krefj­ast auk­ins meiri­hluta á þingi.

Aðspurð um skoðun sína á fyr­ir­komu­lagi um breyt­ingar á stjórn­ar­skrá svör­uðu 73 pró­sent að breyt­ingar á stjórn­ar­skrá skuli ávallt bera undir þjóð­ar­at­kvæði. Þá segj­ast 16 pró­sent að skoðun þeirra væri að breyt­ingar á stjórn­ar­skrá mætti sam­þykkja á þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu ef mik­ill meiri­hluti þing­manna sé þeim sam­þykkur. Þá segj­ast 11 pró­sent vera hlynnt núver­andi fyr­ir­komu­lagi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár