Íslendingar endurvinna minnst á Norðurlöndunum

Magn heim­il­is­úr­gangs á hvern íbúa hér á landi hefur auk­ist með hverju ári frá hruni og náði magnið nýju hámarki árið 2017 með rúm­lega 650 kílóum á hvern íbúa. Jafn­framt end­ur­vinna Íslend­ingar minnst af heim­il­issorpi af öllum Norð­ur­lönd­unum.

Sterk tengsl eru milli hag­sældar og neyslu­mynsturs hér á landi en magn heim­ilsúr­gangs á hvern íbúa hefur auk­ist gíf­ur­lega á síð­ustu árum og náði hámarki árið 2017 í rúmum 650 kílóum. Þá lækk­aði hlut­fall heim­il­issorps sem rataði í end­ur­vinnslu skarpt árið 2017 en mun minna af heim­ilsúr­gangi endar í end­ur­vinnslu hér á landi sam­an­borið við hin Norð­ur­löndin. Í aðgerða­á­ætlun rík­is­stjórn­ar­innar í loft­lags­málum er áætlað að koma á urð­un­ar­skatti og bann við urðun líf­ræns úrgangs á næsta ári.

Rúmlega 650 kíló á hvern íbúa

Í nýrri skýrslu for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins um hag­sæld og lífs­skil­yrði kemur fram að árið 2017 var magn heim­il­is­úr­gangs á hvern íbúa lands­ins meira en árið 2008, sem var metár fram til þessa eða rúm­lega 650 kíló á hvern íbúa. [adspot]

Jafn­framt segir í skýrsl­unni að þó að fleiri en ein breyta hafi vafa­lítið áhrif á myndun heim­il­is­úr­gangs, þar á meðal fjöldi ferða­manna sem heim­sækir landið, þá sýni þessi þróun glögg­lega hversu sterk tengsl eru á milli hag­sældar og neyslu­mynsturs þjóð­ar­innar ann­ars vegar og hins vegar magns þess heim­il­is­úr­gangs sem fellur til. 

Endurvinnsluhlutfallið minnkaði um tæplega 10 prósent milli ára

Fyrsta áherslan í með­höndlun úrgangs er að koma í veg fyrir myndun hans en síðan að tryggja að sá úrgangur sem til fellur sé end­urunn­inn á við­eig­andi hátt. Mest af því sem almenn­ingur notar dags dag­lega er hægt að end­ur­vinna og mest af því sem fer óflokkað í rusla­tunnur heim­il­anna endar á einn eða annan hátt úti í nátt­úr­unni.

Eftir að end­ur­vinnslu­hlut­fall heim­il­anna hafði auk­ist tölu­vert á und­an­förnum árum þá lækk­aði hlut­fall­iðnokkuð skarpt á milli áranna 2016 og 2017 og fór niður í rúm 25 pró­sent.

Í áætlun Umhverf­is­stofn­unar um með­höndlun úrgangs fyrir árin 2010 til 2022 er eitt af mark­mið­unum að árið 2020 verði að lág­marki 50 pró­sent af pappír, málmi og plati og gleri frá heim­ilum end­ur­notað, end­ur­unnið eða end­ur­nýtt með einum eða öðrum hætti. Auk þess er mark­mið um að líf­rænn heim­il­is­úr­gangur sem berst til urð­un­ar­staða hafi,miðað við þann líf­ræna heim­il­is­úr­gang sem féll til árið 1995, minnkað niður í 35 pró­sent af heild­ar­magni árið 2020.

Endurvinnum minnst af Norðurlöndunum

Af öllum Norð­ur­lönd­unum er Ísland með minnsta hlut­fallið af heildar heim­ilsúr­gangi sem end­ar­til end­ur­vinnslu, sam­kvæmt tölum Eurostat frá 2017.

Danmörk, Áland, Finnland, Noregur og Svíþjóð hafa öll bannað urðun líf­ræns úrgangs og sett upp skatt á urðun. Danmörk og Svíþjóð hafa einnig bannað urðun á brenn­an­legum úrgangi. Umhverfis- og auð­lind­ar­ráðu­neytið gaf út aðgerð­ar­á­ætlun í loft­lags­málum í fyrra fyrir árin 2018- 2030 þar sem meðal ann­ars er áætlað að koma á urð­un­ar­skatti og bann við urðun líf­ræns úrgangs árið 2020. Á hverju ári eru tæp­lega 220 þús­und tonn af sorpi urðuð hér á landi

Umhverfisvænna að flytja sorpið úr landi til brennslu í stað urðunar

[links]Í nýrri skýrslu sem ráð­gjaf­ar­fyr­ir­tækið ReSource International vann að beiðni Íslenska gáma­fé­lags­ins er fjallað um kosti þessa að hætta urðun úrgangs og umhverf­isá­vinn­ing sem ólíkar leiðir að því marki hafa í för með sér.

Í skýrsl­unni segir að nokkuð ljóst sé og í raun hefur aldrei verið vafi á því að urðun er með því verra sem við gerum við með­höndlun úrgangs umhverf­is­lega séð. Leggja þurfi áherslu á að auka end­ur­vinnslu og nýta líf­rænan úrgang til moltu­gerðar í stað­inn fyrir urðun eða brennslu. Skýrslu­höf­undar segja að með því að gera betur í þeim efnum þá minnki veru­lega það magn sem þurfi að fara í förgun en þó þurfi að ákveða hvað skal gera við þann úrgang sem þarf að farga.

Ein slík lausn er að fara með þann úrgang sem hefur vana­lega verið urð­aður í brennslu til orku­nýt­ingar. Rætt hefur verið um að setja upp nýja brennslu­stöð hér á landi til orku­nýt­ingar en einnig hefur verið rætt um að flytja allt sorp utan til orku­nýt­ingar. Í skýrsl­unni eru þessar tveir mögu­leikar bornir saman.

Nið­ur­staða skýrsl­unnar er að sorp­brennsla til orku­nýt­ingar sé tölu­vert væn­legri kostur en urðun þegar litið er til koltví­sýr­ingslos­unar. Útreikn­ingar skýrsl­unnar gefa einnig til kynna minni koltví­sýr­ingslosun fylgir því að senda úrgang­inn til landa í Evrópu til orku­nýt­ingar sem stað­geng­ill kola til orku­öfl­unar sam­an­borið við orku­fram­leiðslu frá sorp­brennslu á Íslandi. Tekið er þó fram í skýrsl­unni að marga þætti mætti bæta við útreikn­inga skýrsl­unnar en að ólík­legt þykir að það muni leiða til mik­illar breyt­ingar á megin nið­ur­stöð­inni.

Íslenska gáma­fé­lagið leiðir nýtt átak, Hættum að urða– Finnum lausnir, þar sem fólk hvatt til að skrifa undir áskorun til stjórn­valda um að finna leiðir til að hætta urðun og í lok sept­em­ber verður áskorun og und­ir­skrifta­list­inn afhendur stjórn­völd­um.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár