Leggur til að Bretland gerist tímabundið aðili að EES-samningnum

Formaður Mið­flokks­ins og fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra telur að Bretar muni blómstra eftir útgöngu úr Evr­ópu­sam­band­inu.

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins.
Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­maður Mið­flokks­ins. Mynd: Birgir Þór

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­maður Mið­flokks­ins og fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra, seg­ist ekki hafa neinar efa­semdir um að Bret­landi muni blómstra eftir að hafa yfir­gefið Evr­ópu­sam­bandið, hvort sem það muni fara úr því með eða án samn­ings. Frá þessu greinir hann í pistli á breska miðl­inum The Spectator í dag.

Hann seg­ist tala sem fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra Íslands – ríkis sem yfir­gaf Evr­ópu­sam­bandið áður en það fékk inn­göngu. Ríkis sem hélt áfram að dafna sem ann­ars hefði verið ómögu­legt ef umsóknin um aðild hefði náð fram að ganga. „Ég tel að Bretland geti lært af reynslu Íslands og fundið leið til að kom í veg fyrir meiri­háttar upp­lausn þegar 31. októ­ber rennur upp,“ skrifar hann.

Þá fjallar Sig­mundur Davíð um eft­ir­mála fjár­mála­hruns­ins hér á á landi árið 2008; þegar Ísland sótti um aðild að Evr­ópu­sam­band­inu árið 2009 og hvernig stjórn­völd, undir hans for­ystu, drógu umsókn­ina til baka sex árum seinna. „Ég komst að þeirri nið­ur­stöðu að aft­ur­köllun umsókn­ar­innar væri óhjá­kvæmi­leg til þess að við gætum gert þær ráð­staf­anir sem nauð­syn­legar væru til þess að end­ur­reisa hag­kerfið með góðum árangri.“

Finnst að ESB ætti ekki að refsa Bretum

Sig­mundur Davíð segir að ákvörðun rík­is­stjórnar hans um að aft­ur­kalla umsókn­ina um aðild að ESB hafi að sjálf­sögðu mætt and­stöðu hjá alþjóðasinnum – erlendum sem inn­lendum. Í hverju skrefi hefði stór­slysi verið spáð og líkir hann umræð­unni þá við umræð­una um Brexit nú.

Hann segir að vissu­lega muni verða nei­kvæðar skamm­tíma­af­leið­ingar fyrir Bretland að yfir­gefa ESB og veltir hann því fyrir sér hvað hægt sé að gera til að forð­ast þær afleið­ingar.

Hann leggur til að Bretland ger­ist aðili að EES-samn­ingnum tíma­bundið, ásamt Íslandi, Noregi og Liechtenstein og auð­vitað ESB. Sú aðild gæti varað í nokkur ár eða jafn­vel lengur. Hann rekur enn fremur afleið­ingar þess í grein­inni, kosti og galla.

Í lok grein­ar­innar segir Sig­mundur Davíð að ef ESB ætli að refsa einu aðild­ar­ríki sínu fyrir að fara úr sam­band­inu þá sé það ekki góð aug­lýs­ing fyrir ESB. „Ef svo verður, því fyrr sem Bretar fara úr ESB því betra,“ skrifar hann.

Hægt er að lesa grein­ina í heild sinni hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár