Boris Johnson nýr forsætisráðherra Bretlands

Tveir fram­bjóð­endur, Boris Johnson og Jeremy Hunt, börð­ust um emb­ætti for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands. Johnson mun taka við for­sæt­is­ráðu­neyt­inu af Theresu May sem mun leita til drottn­ingar í dag til að biðj­ast lausnar frá emb­ætti sínu.

Boris Johnson
Boris Johnson Mynd: EPA

Barist var um ráð­herra­stól­inn á milli tveggja fram­bjóð­enda, Boris Johnson og Jeremy Hunt. Boris Johnson hlaut kjörið og verður nýr for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands. Jeremy Hunt er núver­andi utan­rík­is­ráð­herra Bret­lands og Boris Johnson er for­veri hans. Tilkynnt var um kjörið á vef BBC. Fyrir úrslitin var Boris Johnson tal­inn lík­legri til að hreppa hnossið og verða for­sæt­is­ráð­herra.

Boris hlaut 92.153 atkvæði og Jeremy 46.656 atkvæði, alls kusu 87,4 pró­sent með­lima Íhalds­flokks­ins. Boris þakk­aði Theresu May fyrir starf sitt og Jeremy Hunt fyrir góða kosn­inga­bar­áttu. Hann sagði almenn­ing jafn­framt hafa trú á sér og Íhalds­flokknum að geta sam­eina landið, halda Brexit til streitu og sigra Jeremy Corbyn.

[adspot]Í dag er síð­asti dagur Theresu May sem for­sæt­is­ráð­herra og mun hún leita til drottn­ingar Bret­lands til að biðj­ast lausnar frá ráð­herra­emb­ætti sínu ásamt því að til­nefna hinn nýkjörna for­sæt­is­ráð­herra. Theresa óskaði Boris til ham­ingju með sig­ur­inn í færslu á Twitter. Hún sagði einnig að nú þurfi að vinna að því að halda Jeremy Corbyn frá rík­is­stjórn.

Þingmenn og ráðherrar segja af sér

Anne Hamilton, mennat­mála­ráð­herra Bret­lands og þing­maður Íhalds­flokks­ins, sagði af sér í dag, stuttu fyrir til­nefn­ingu nýs for­sæt­is­ráð­herra. Alan Duncan sagði af sér sem aðstoð­arutan­rík­is­ráð­herra Bret­lands í gær en hann hefur gagn­rýnt stefnu Borisar harð­lega.

Philip Hammond og David Gauke, þing­menn Íhalds­flokks­ins, hafa sagt munu segja af sér verði Boris Johnson kjör­inn for­sæt­is­ráð­herra þar sem þeir segj­ast ekki fylgj­andi harð­línu­stefnu Borisar í Brexit. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár