Einhverjar umfangsmestu húsnæðisframkvæmdir Íslandssögunnar

Aldrei áður hafa jafn­margir sótt um að fá að byggja eða kaupa íbúðir með stofn­fram­lagi rík­is­ins en í ár. Áætlað er að heild­ar­fjár­fest­ing í öruggu leigu­hús­næði fyrir almenn­ing muni nema á bil­inu 60 til 75 millj­örðum á tíma­bil­inu 2016 til 2024.

Aldrei hafa fleiri umsóknir borist Íbúða­lána­sjóði um stofn­fram­lög rík­is­ins til kaupa og bygg­ingar almennra íbúða en í ár. Alls bár­ust 44 umsóknar um þá rúm­lega þrjá millj­arða sem úthlutað verður á árinu 2019. Markmið stofn­fram­lag­anna er að bæta hús­næð­is­ör­yggi efna­minni fjöl­skyldna og ein­stak­linga með því að auka aðgengi að öruggu og við­eig­andi íbúð­ar­hús­næði til leigu. Íbúða­lána­sjóður áætlar að heild­ar­fjár­fest­ing í öruggu leigu­hús­næði fyrir almenn­ing muni nema á bil­inu 60 til 75 millj­örðum á árunum 2016 til 2024.

Leiguíbúðir fyrir almenning með stofnframlögum

Árið 2016 var haf­ist handa við að inn­leiða stofn­fram­lög sem nýtt form af opin­berum hús­næð­is­stuðn­ingi með það fyrir augum að slá á þann mikla hús­næð­is­vanda sem lág- og lægri milli­tekju­hópar hafa mátt stríða við síð­ustu ár. Stofn­fram­lög er hús­næði­lausn sem byggir á danskri fyr­ir­mynd og felur í sér að félaga­sam­tök, sveit­ar­fé­lög og aðrir aðilar sem upp­fylla ákveðin skil­yrði geta fengið eig­in­fjár­fram­lag frá ríki og sveit­ar­fé­lögum til að byggja og reka leigu­hús­næði þar sem íbúar öðl­ast rétt til öruggrar lang­tíma­leigu.

Til að eiga rétt á slíkri íbúð mega tekjur og eignir fólks ekki vera yfir ákveðnum mörkum. Til­gang­ur­inn með því að setja þessi skil­yrði er að tryggja að sá hluti almenn­ings sem mest hefur liðið fyrir háa húsa­leigu gangi fyrir í þessu kerfi. Mark­miðið er að fólk sem fær úthlutað öruggri leigu­í­búð þurfi ekki að verja meira en 25 pró­sent af tekjum sínum í leigu­greiðslur.

Frá árinu 2016 hefur Íbúða­lána­sjóður úthlutað 8,5 millj­örðum króna í stofn­fram­lög til bygg­ingar og kaupa á 1.592 öruggum leigu­í­búðum sem fólk í lág- og lægri milli­tekju­hópum á rétt á að leigja. Á síð­ustu þremur árum hefur hlut­falls­leg skipt­ing stofn­fram­laga á milli nýbygg­inga og keyptra íbúða, verið 82 pró­sent nýbygg­inga og 18 pró­sent kaup.

Sótt um sex milljarða króna

Umsóknum til stofn­fram­laga hafa auk­ist með hverju ári síð­ustu þrjú ár en í ár var met­að­sókn. Alls bár­ust alls 44 umsóknar um þá rúm­lega þrjár millj­ónir sem úthlut­aðir verða í ár. Sveit­ar­fé­lög á hverjum stað leggja einnig fram stofn­fram­lag í formi beins fjár­fram­lags, lóða eða nið­ur­fell­ingu opin­berra gjalda.

Sótt var um stofn­fram­lag vegna 915 íbúða, þarf af til bygg­ingar á 619 íbúðum og kaupum á 296 íbúðum sem stað­settar yrðu vítt og breitt um landið eða alls í 22 sveit­ar­fé­lögum. Heild­ar­fjár­hæð stofn­fram­laga rík­is­ins sem sótt er um er rúmir 6 millj­arða króna en heild­ar­fjár­hæð umsókna um stofn­fram­lag sveit­ar­fé­laga er tæpir fjórir millj­arðar króna. Íbúð­irnar eru ætl­aðar tekju- og eigna­minni leigj­endum, þar með talið náms­mönnum, öldruðum, fötl­uðu fólki og skjól­stæð­ingum félags­þjón­ustu sveit­ar­fé­laga. Heild­ar­fram­kvæmd­ar­kostn­aður verk­efn­anna er áætl­aður um 29,8 millj­arðar króna. [adspot]

Fjármagn sem veitt er til stofn­styrkja er ákveðið í fjár­lögum á hverju ári og ef ekki er unnt að sam­þykkja allar umsóknir metur Íbúða­lána­sjóður á hvaða svæði er brýn­ust þörf fyrir leigu­hús­næði fyrir leigj­endur undir tekju- og eign­ar­mörkum.

Ólafur Þór Þor­láks­son, fram­kvæmda­stjóri hús­næð­is­sviðs Íbúða­lána­sjóðs, segir í svari við fyr­ir­spurn Kjarnans að unnið sé að því að fara yfir umsókn­irnar og að næsta úthlutun sjóðs­ins muni fara fram í sumar. Hann segir jafn­framt að á næstu þremur árum er áætlað að úthluta sam­bæri­legum fjár­hæðum innan kerf­is­ins, eða rúm­lega 3 millj­örðum króna árlega og 1,5 millj­arði árlega tvö ár eftir það.

Ríkið getur auk þess veitt 6 prósent viðbótarframlag 

Stofn­fram­lag rík­is­ins getur numið 18 pró­sent af stofn­verði íbúðar og getur verið í formi beins fram­lags eða vaxta­nið­ur­greiðslu. Framlag rík­is­ins er ígildi eigin fjár en fram­lag sveit­ar­fé­laga getur falist í beinu fram­lagi, úthlutun lóðar eða lækkun eða nið­ur­fell­ingu á gjöldum sem umsækj­anda ber að greiða til sveit­ar­fé­lags­ins vegna íbúð­anna.

Ríkið getur auk þess veitt 6 pró­sent við­bót­ar­fram­lag og sveit­ar­fé­lag 4 pró­sent við­bót­ar­fram­lag til svæða þar sem skortur er á leigu­hús­næði og bygg­ing íbúða hefur verið í lág­marki á svæð­inu eða sér­stök vand­kvæði hafa verið í fjár­mögnun á almennum mark­aði.

Einnig getur ríkið veitt 4 pró­sent við­bót­ar­fram­lag vegna íbúð­ar­hús­næðis á vegum sveit­ar­fé­laga og vegna íbúð­ar­hús­næðis sem ætlað er náms­mönnum og öryrkjum.

Heildarfjárfestingin nemur allt að 75 milljörðum á tímabilinu

Ólafur segir að það megi áætla að heild­ar­fjár­fest­ing í öruggu leigu­hús­næði fyrir almenn­ing muni nema á bil­inu 60 til 75 millj­örðum króna á árunum 2016 til 2024. Í þeirri tölu er með­talið fram­lag bygg­ing­ar­að­il­anna sjálfra sem byggja munu rúm­lega þrjú þús­und íbúðir á tíma­bil­inu.

Hann segir að af heild­ar­fjár­fest­ingu munu stofn­fram­lög rík­is­ins nema á bil­inu 22 til 23 millj­örðum króna en að enda­leg tala muni þó ráð­ast af sam­setn­ingu verk­efna og þróun bygg­ing­ar­kostn­aður. „Endanleg tala ræðst af sam­setn­ingu verk­efna og þróun bygg­ing­ar­kostn­aðar en óhætt er að full­yrða að um sé að ræða­ein­hverjar umfangs­mestu hús­næð­is­fram­kvæmdir í Íslands­sög­unni,“ segir Ólafur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár