Spá samdrætti í hagvexti

Óvissa í ferða­þjón­ustu og kjara­málum ógna helst hag­vexti á Íslandi. Þetta kemur fram í leið­andi hag­vísi Analytica.

Leiðandi hag­vísir Analytica fyrir mars síð­ast­lið­inn lækkar um tæp fjögur pró­sent miðað við mars í fyrra. Þetta er fjórt­ándi mán­uð­ur­inn í röð sem vísi­talan lækkar og segir í inn­gangi hag­vís­is­ins að það beri vott um hæg­ari vöxt lands­fram­leiðslu og sam­drátt framundan. Upp­leitni lands­fram­leiðslu, sé litið til lengri tíma, er þó sögð vera sterk.

Hag­vísir­inn, sem er ætlað að gefa vís­bend­ingar um efna­hags­um­svif að sex mán­uðum liðnum, er reikn­aður út frá sex und­ir­þáttum. Þessir þættir eru afla­magn, debet­korta­velta, ferða­manna­fjöldi, heims­vísi­tala hluta­bréfa, vænt­inga­vísi­tala Gallup og inn­flutn­ingur. Allir sex und­ir­þætt­irnir lækka á milli ára, en fjórir af sex lækka á milli mán­aða.

Óvissa í ferðaþjónustu ógnar hagvexti

Samkvæmt hag­vís­inum er óvissa í ferða­þjón­ustu og kjara­málum helst sögð ógna lands­fram­leiðslu til lengri tíma litið. Í tölum um ferða­manna­fjölda er í hag­vís­inum miðað við komur ferða­manna um Kefla­vík­ur­flug­völl.

Staðan í alþjóða­stjórn­málum er sögð vera sá ytri áhættu­þáttur sem helst gæti ógnað hag­vexti á Íslandi. Yngvi Harð­ar­son, hag­fræð­ingur hjá Analytica, segir í sam­tali við Kjarnann að þar sé verið að vísa til almennrar óvissu í alþjóða­stjórn­málum í dag. Við­skipta­deila Banda­ríkj­anna við Kína vegi þó þungt og staða Brexit-deil­unnar hjálpi ekki til.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár