Vandi Boeing teygir sig af þunga til Íslands

Kyrr­setn­ing á Max vélum Boeing hefur veru­leg áhrif á flug­fé­lög sem gerðu ráð fyrir vél­unum í leiða­kerfum sínum. Icelandair er eitt þeirra. Ljóst er að félagið er í kappi við tím­ann, um að útvega vélar sem geta leyst Max af hólmi.

Flug­slysin í Indónesíu, 29. októ­ber, og í Eþíópíu, 13. mars síð­ast­lið­inn, hafa dregið mik­inn dilk á eftir sér fyrir flug­iðn­að­inn sem ekki sér fyrir end­ann á ennþá. Allir um borð í 737 Max vélum Lion Air og Ethi­opian Airlines, sem hröp­uðu lét­ust. Samtals 346.

Banda­ríski flug­véla­fram­leið­and­inn Boeing er nú að glíma við verstu og erf­ið­ustu vanda­mál sem félagið hefur glímt við í seinni tíma sögu fyr­ir­tæk­is­ins, sem spannar 103 ár. Fram­leiðslan hjá Boeing er í Renton í útjaðri Seattle, þar sem félagið var stofnað.

Hjá fyr­ir­tæk­inu starfa tæp­lega 80 þús­und starfs­menn á svæð­inu og er talið að með marg­feld­is­á­hrifum félags­ins á svæð­inu séu allt að 250 þús­und störf tengd starf­semi Boeing. Það er stærsti vinnu­veit­and­inn og skákar þar 56 þús­und manna her­stöð, og síðan risa­vöxnum höf­uð­stöðvum Amazon og Microsoft, þar sem í dag starfa sam­tals yfir 90 þús­und manns.

Alvarleg staða

Frum­nið­ur­stöður í rann­sóknum á flug­slys­unum benda til þess að galli hafi verið í hug­bún­aði í vél­unum, sem teng­ist svo­nefndu MCAS-kerfi, sem á að sporna gegn ofrisi.

Flug­mála­yf­ir­völd í Indónesíu kynntu frum­nið­ur­stöður - með fyr­ir­vara um að rann­sókn væri ekki lokið - í síð­ustu viku, og kom þá fram að flug­menn hefðu brugð­ist rétt við, og reynt að vinna gegn því að flug­vélin hefði tog­ast niður. Allt kom fyrir ekki.

Þrátt fyrir að Boeing telji sig vita hvað kom upp, og hafi upp­fært hug­búnað og sé með fram­leiðslu­ferla til ítar­legrar skoð­unar, þá er komin upp veru­lega alvar­leg staða fyrir öll félög sem not­ast við Boeing vélar.

Í stuttu máli lýsir vand­inn, sem kom­inn er upp sér svona:

- Flug­slysin hafa leitt til þess að Boeing er til rann­sóknar, meðal ann­ars af alrík­is­lög­regl­unni FBI og banda­ríska dóms­mála­ráðu­neyt­inu. Kafað er ofan í minnstu smá­at­riði í fram­leiðslu­ferl­inu, sem gætu hafa leitt til þess að vél­arnar hröp­uðu. Meðal ann­ars er nú verið að rann­saka skoðun á vél­unum á starf­stöð í Flórída, en þar gæti eitt­hvað hafa mis­farist, sam­kvæmt skjölum sem flug­mála­yf­ir­völd í Indónesíu hafa birt, sem leiddi til þess­ara hörmu­legu slysa.

- Alvar­leg­ustu hlið­ar­verk­anir slysanna - fyrir utan dauðs­föllin og áhrif á aðstand­endur þeirra sem lét­ust - er mikið högg í fram­leiðslu hjá Boeing. Þegar mest var í fyrra, þá komu 57 vélar úr fram­leiðslu­kerfum Boeing í mán­uði þar sem Max vél­arnar urðu til, en fram­leiðslan er nú komin niður í 42. Ástæðan er bann við notkun á Max vél­unum og kyrr­setn­ing þeirra, og óvissa um hvenær (og hvort) Max vél­arnar geti kom­ist í notkun hjá flug­fé­lögum. Mörg flug­fé­lög hafa veðjað á Max vél­arnar í sínum leiða­kerfum, og er Icelandair meðal ann­ars eitt þeirra.

- Vonir standa til þess að Max vélar geti kom­ist í notkun síðar á árinu, og að banni verði aflétt, en það er óvissa sem ríkir um það. Þetta þýðir að flug­fé­lög þurfa að leita ann­arra leiða til að fylla upp í flota sinn. Mikil eft­ir­spurn hefur mynd­ast eftir leigu­vélum og fyr­ir­sjá­an­legt að hún muni vaxa mikið á næstu mán­uðum. Þannig eru mörg flug­fé­lög í kappi við tím­ann, um að útvega vélar í flota sína til að geta staðið við þjón­ust­una sem í boði er sam­kvæmt skipu­lögðu leiða­kerfi.

- Boeing stendur frammi fyrir því að geta ekki afhent vélar, eins og um hefur verið samið, við fjölda flug­fé­laga. Hvort félagið muni þurfa að greiða bætur vegna þessa, á eftir að koma í ljós. Fyrir hag­kerfi þar sem ferða­þjón­usta er stór atvinnu­vegur, sem jafn­vel hefur kerf­is­lægt mik­il­vægi, þá getur þessi vandi Boeing verið veru­legt áhyggju­efni. Á Íslandi er ferða­þjón­usta langstærsti útflutn­ings­geir­inn með um 43 pró­sent gjald­eyr­is­tekna, og ljóst að mik­il­vægt verður fyrir Icelandair að leysa úr þessum vanda sem upp er kom­inn.

Samdráttur - ekki sókn

Samkvæmt upp­færði flug­á­ætlun Icelandair miðar hún við að Boeing 737 MAX flug­vélar félags­ins verði kyrr­settar til 16. júní næst­kom­andi. Það verður að koma í ljós, hvort kyrr­setn­ing vél­anna mun falla úr gildi á þeim degi eða fyrr, en sú sviðs­mynd er allt eins lík­leg að vél­arnar verði kyrr­settar lengur. Vandi er um slíkt að spá.

Í til­kynn­ingu félags­ins frá því í gær, segir að „með þeim mót­væg­is­að­gerðum sem gripið hefur verið til með því að bæta leigu­vélum við flota félags­ins hefur tek­ist að tak­marka áhrifin á leið­ar­kerfið veru­lega.“

Félagið gekk frá leigu á tveimur Boeing 767 breið­þotum sem til­kynnt var um þann 1. apríl síð­ast­lið­inn, og til­kynnti síðan um leigu á þriðju vél­inni af gerð­inni 757-200, en hún er 184 sæta. Hún verður í rekstri frá 15. maí fram í lok sept­em­ber 2019.

Á tíma­bil­inu 1. apríl – 15. júní mun félagið fella niður um 3,6% af flug­ferðum sínum sem sam­svarar rúm­lega 100 ferðum á tíma­bil­inu, en rekja má þennan sam­drátt til vand­ans sem skap­ast hefur vegna Max vél­anna.

„Í flestum til­fellum er um að ræða flug til áfanga­staða þar sem fleiri en eitt flug eru í boði sama dag. Þrátt fyrir þessar ráð­staf­anir helst sæta­fram­boð félags­ins nán­ast óbreytt þar sem not­ast verður við Boeing 767 flug­vélar sem eru stærri en Boeing 737 MAX vél­arnar. Af þeim sökum er gert ráð fyrir óveru­legum áhrifum á heild­ar­fjölda fluttra far­þega á tíma­bil­inu,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Þá hefur Icelandair ákveðið að hætta við flug til Cleveland í Banda­ríkj­unum og Halifax í Kanada á þessu ári. Það skýrist að hluta til af kyrr­setn­ingu MAX vél­anna en jafn­framt hafði áhrif á ákvörð­un­ina að stór hluti far­þega á fram­an­greinda staði eru skiptifar­þegar sem eru að ferð­ast milli N-Ameríku og Evrópu. Ákveðið var að færa fram­boðið yfir á áfanga­staði þar eft­ir­spurn er meiri eftir ferðum til og frá Íslandi, segir í til­kynn­ingu félags­ins frá því í gær.

Veðjað á Max vélarnar - Verður Airbus inn í myndinni?

Icelandair hefur miðað sína þjón­ustu við notkun á Boeing vélum, og segir meðal ann­ars á vef­síðu félags­ins, að Max vél­arnar falli vel að skipu­lagn­ingu félags­ins. „Eftir að 16 737 MAX 8 og 9 vélar bæt­ast í hóp­inn – en þær fyrstu munu koma til lands­ins snemma árs 2018 – verður flug­floti Icelandair sér­stak­lega vel til þess fall­inn að þjón­usta bæði Evrópu og Norður-Ameríku um ein­staka stað­setn­ingu okkar á Íslandi,“ segir á vef félags­ins.

Icelandair er að vissu leyti í kappi við tím­ann um að útvega vélar til að geta staðið við þá þjón­ustu sem félagið selur, miðað við leiða­kerfið. Þó Boeing og Icelandair hafi lengi átt í far­sælu við­skipta­sam­bandi, þá gæti verið komin upp staða, þar sem félagið þarf að horfa annað - og þá helst til Airbus - eftir flug­vélum.

Í til­kynn­ingum Icelandair til kaup­hallar sést að félagið er að reyna að leysa úr þessum vanda sem upp er kom­inn, eftir slysin hörmu­legu í Indónesíu og Eþíópíu, með aðeins fimm mán­aða milli­bili.

Í lok árs í fyrra var eigið fé Icelandair um 55 millj­arðar króna en heild­ar­skuldir námu rúm­lega 900 millj­ónum Banda­ríkja­dala, eða um 110 millj­örðum króna. Mark­aðsvirði Icelandair hefur sveifl­ast mikið, frá degi til dags, á und­an­förnum mán­uðum, en það nemur nú um 46 millj­örðum króna.

Boeing er risi í banda­rísku efna­hags­lífi, en mark­aðsvirði þess nemur nú um 207 millj­örðum Banda­ríkja­dala, eða sem nemur um 25 þús­und millj­örðum króna. Til sam­an­burðar nemur heild­ar­virði alls íslenska hluta­bréfa­mark­að­ar­ins um 1.200 millj­örðum króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár