„Kannski snýst þessi spurning meira um veru okkar í EES og kannski snýst hún líka um það hvort við viljum leggja sæstreng eða ekki og hver er þá afstaða okkar almennt til orkuframleiðslu á Íslandi.“
Þetta sagði Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra í viðtali við Þórð Snæ Júlíusson, ritstjóra Kjarnans, í sjónvarpsþættinum 21 á Hringbraut í vikunni þar sem þau ræddu þriðja orkupakkann og þær miklu deilur sem sprottið hafa upp um hann.
Hægt er að sjá stiklu úr þættinum hér að neðan:
Þingstörf síðustu viku snerust að stórum hluta um umræður um þriðja orkupakkann, en sex flokkar á Alþingi styðja innleiðingu hans á meðan að tveir, Miðflokkurinn og Flokkur fólksins, eru á móti. Auk þess hafa samtökin „Orkan okkar“ láti mjög til sín taka í umræðum um málið en þau eru á móti innleiðingu hans. Á meðal stofnenda þeirra félagasamtaka eru menn sem hafa leikið lykilhlutverk innan Vinstri grænna í gegnum tíðina á borð við Ögmund Jónasson, Jón Bjarnason og Hjörleif Guttormsson.
[adspot]Aðspurð um hvort málið sé erfitt innan hennar flokks sagðist Katrín ekki telja það vera svo. „Þetta er ekkert erfitt mál að mínu viti, en það breytir því ekki að þessi afstaða þarf ekkert að koma á óvart hjá mínum góðu félögum; Ögmundi, Jóni og Hjörleifi, vegna þess að Vinstri græn voru auðvitað á móti innleiðingu fyrst og annars orkupakkans sem fól í sér þess uppskiptingu á raforkumarkaði og markaðsvæðingu okrunnar á Íslands.“
Katrín sagðist spyrja sig hvort að þriðji pakkinn feli í sér frekari markaðsvæðingu orkufyrirtækja en orðið sé. Hennar svar sé nei. Framsal valdheimilda komi fyrst og síðast til vegna hans ef Ísland tengist meginlandi Evrópu í gegnum sæstreng. Búið sé að ganga þannig frá málinu að hálfu ríkisstjórnarinnar að ákvörðun um að leggja slíkan streng verði aldrei tekin án aðkomu Alþingis. Ekkert í þriðja orkupakkanum sé heldur þannig að Landsvirkjun verði seld og að aðrir en íslensk stjórnvöld geti tekið ákvörðun um lagningu sæstrengs til landsins.
[links]Katrín sagðist þó hafa fullan skilning á því að fólki sé annt um orkuauðlindina á Íslandi. „Við vitum það alveg að þar hefur oft verið hart tekist á.“ Það sé ein mesta gæfa Íslendinga að eiga um 40 prósent af landinu í þjóðlendum og samfélagsleg orkufyrirtæki eins og Landsvirkjun, Rarik og Orkubú Vestfjarða. „Það er eitthvað sem mínir kollegar í útlöndum segja að sé stórkostleg gæfa okkar.“
Hún telur að EES-samstarfið hafi verið Íslendingum hagfellt og mikilvægt. Það sé hins vegar mikilvægt að gæta hagsmuna okkar gegn EES. „Allt eru þetta fullvalda þjóðir sem eru að taka þátt í EES-samstarfi. En auðvitað erum við með alþjóðlegu samstarfi að framselja einhverskonar valdheimildir. Við erum ekki með skýr ákvæði um það í stjórnarskrá svo dæmi sé tekið, sem ég hef lengi talað fyrir.“
Öll umræðan minni hana á það hversu mikilvægt það sé að ná saman um ákvæði um eignarhald á auðlindum og skýrt afmörkuð framsalsákvæði í stjórnarskrá.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.


















































Athugasemdir