Áhrifa dóma Mannréttindadómstólsins gætir víða hér á landi

Í vik­unni hefur Mann­rétt­inda­dóm­stóll Evrópu og þýð­ing dóma hans fyrir íslenskt rétt­ar­kerfi verið til umræðu. Á síð­ustu árum hafa sífellt fleiri Íslend­ingar leitað réttar síns til dóm­stóls­ins en ýmsar rétt­ar­bætur hér á landi má rekja til dóm­stóls­ins.

Mannréttindadómstóll Evrópu
Mann­rétt­inda­dóm­stóll Evrópu Mynd: EPA

Mikil umræða skap­að­ist um Mann­rétt­inda­dóm­stól Evrópu í lið­inni viku í kjöl­far nið­ur­stöðu dóm­stóls­ins í Land­rétt­ar­mál­inu svo­kall­aða. Sigríður Andersen, fyrrum dóms­mála­ráð­herra, sagði af sér í kjöl­far dóms­ins en lýsti á sama tíma yfir áhyggjum af fram­sali valds til túlk­unar á íslenskum lögum til erlendra dóm­stóla. Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra tók í svip­aðan streng og sagði það umhugs­un­ar­efni um hvort dóm­stól­inn væri að „stíga yfir lín­una.“ Í kjöl­farið hafa aðrir þing­menn komið dóm­stólnum til varnar og kallað eftir því að tekin sé skýr afstaða með dóm­stólnum í kjöl­far þess að ráð­herrar hafi ráð­ist á trú­verð­ug­leika hans.

Mann­rétt­inda­dóm­stóll Evrópu var stofn­aður á grund­velli mann­rétt­inda­sátt­mála Evrópu en dóm­stólnum er ætlað að tryggja að aðild­ar­ríki Evr­ópu­ráðs­ins virði þau rétt­indi sem kveðið er á um í sátt­mál­anum. Hér á landi var sátt­mál­inn lög­festur árið 1994 en í annarri grein lag­anna er kveðið á um að úrlausnir Mann­rétt­inda­dóm­stóls­ins séu ekki bind­andi að íslenskum lands­rétti. Engu að síður hafa ákveðnir dómar dóm­stóls­ins haft víð­tæk áhrif á íslenska lög­gjöf og fært Íslend­ingum fjölda rétt­ar­bóta. Þá sér­stak­lega í kjöl­far inn­leið­ingar sátt­mál­ans en einnig er aðskiln­aður umboðs­valds og dóms­valds í íslenskum lögum rak­inn til dóm­stóls­ins.

Mannréttindadómstólinn farinn að stíga yfir línuna

[links]Á mánu­dag­inn var nið­ur­staða Mann­rétt­inda­dóm­stóls­ins birt í Lands­rétt­ar­mál­inu. Nið­ur­staða dóm­stóls­ins var að Ísland hefði brotið gegn 6. grein mann­rétt­inda­sátt­­mála Evr­­ópu, sem fjallar um rétt til rétt­látrar máls­­með­­­ferðar fyrir dómi, í máli gegn manni sem dæmdur var í 17 mán­aða fang­elsi í Lands­rétti. Ástæðan er sú að mað­­ur­inn fékk ekki rétt­láta máls­­með­­­ferð fyrir Lands­rétti vegna þess að Arn­­fríður Ein­­ar­s­dótt­ir, sem er dóm­­ari við rétt­inn, hafi ekki verið skipuð í hann með lög­­­mætum hætt­i.

Í kjöl­far nið­ur­stöðu dóms­ins sköp­uð­ust umræður í sam­fé­lag­inu um þýð­ingu dóms­ins fyrir íslenskt rétt­ar­far og hlut­verk dóm­stóls­ins. Jón Steinar Gunn­laugs­son, fyrr­ver­andi hæsta­rétt­ar­dóm­ari, lýsti dómi dóm­stóls­ins sem „árás á full­veldi Íslands“ í skoð­ana­grein á vef lög­fræði­stofu hans. Í grein sinni skorar hann á Íslend­inga að taka saman höndum og hrinda „þess­ari aðför sem Ísland hefur nú sætt frá erlendri stofnun sem blygð­un­ar­laust sækir sér vald sem hún fer alls ekki með.“

Sigríður Andersen véfengdi einnig hlut­verk dóm­stóls­ins þegar hún til­kynnti afsögn sína á blaða­manna­fundi á mið­viku­dag­inn. „Ég mun ekki láta það átölu­laust að dóm­stólar séu not­aðir í póli­tískum til­gangi,“ sagði hún á fund­inum. Auk þess sagði hún heldur ekki ætla að láta það átölu­laust að íslenskir dóm­stólar „fram­selji vald til túlk­unar á íslenskum lögum til erlendra dóm­stóla.“

Flokks­maður hennar Bjarna Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra og for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, tók í svip­aðan streng á blaða­manna­fundi eftir til­kynn­ingu Sigríðar. Hann sagði að nið­­ur­­staða Mann­rétt­inda­­dóm­stóls Evr­­ópu í Lands­rétt­ar­mál­inu hefði komið honum í „opna skjöldu“ og það væri umhugs­un­ar­efni hvort dóm­stól­inn væri far­inn að „stíga yfir línu“ með þeirri gagn­rýni á íslenska stjórn­­­sýslu sem birt­ist í dómn­­um. Hæst­i­­réttur væri æðsti dóm­­stóll Íslands, ekki Mann­rétt­inda­­dóm­­stóll Evr­­ópu. [adspot]

Jafn­framt sagði hann nið­ur­stöður dóm­stóls­ins hafa í gegnum tíð­ina oft verið mjög umdeildar.„ Þannig er í mörg ár lif­andi umræða í Bret­landi um hvort þeir vilji segja sig frá dóm­stólnum, í Danmörku hefur einnig verið færð fram gríð­ar­lega mikil gagn­rýni, “ sagði Bjarni. Í kjöl­farið sagð­ist hann aðspurður ekki vera að boða það að Ísland ætti að segja sig frá dóm­stólnum. Hann væri að vekja athygli á því að starf­semi dóm­stóls­ins væri ekki yfir gagn­rýni hafin og það fælist ekki nein yfir­lýs­ing um að grafa undan dóm­stól með því að áfrýja nið­ur­stöðu hans, ekki frekar en að þegar dómur fellur í hér­aði og honum er áfrýjað.

Ummæli ráð­herr­anna um dóm­stól­inn vöktu hörð við­brögð nokk­urra þing­manna. Þar á meðal var Þór­hildur Sunna, þing­flokks­for­maður Pírata, en í stöðu­upp­færslu á Facebook sagði hún dóm­stóll­inn vera ein dýr­mætasta rétt­ar­verndin sem Íslend­ingar eiga. „Það er grafal­var­legt ef ráð­herrar Íslands ætla sér að ráð­ast að honum með dylgjum, sam­sær­is­kenn­ingum og ósann­indum eins og Sigríður Andersen og Bjarni Bene­dikts­son gerð­ust upp­vís að í gær,“ sagði hún í færsl­unni. Jafn­framt sagði hún að það væri eitt að finn­ast rétt að áfrýja málin en að það væri með öllu óásætt­an­legt að ætla að gera Mann­rétt­inda­dóm­stól­inn að „blóra­böggli fyrir póli­tískar skip­anir Sjálf­stæð­is­flokks­ins í dóm­stóla.“

Stendur vörð um réttindi einstaklinga

Mann­rétt­inda­dóm­stóll Evrópu var stofn­aður árið 1959 á grund­velli mann­rétt­inda­sátt­mála Evrópu sem und­ir­rit­aðar var á ráð­herra­fundi Evr­ópu­ráðs­ins í Róm árið 1950. Honum var ætlað að virða þau rétt­indi sem kveðið er á um í sátt­mál­anum en sátt­mál­inn skyldar aðild­ar­ríkin til að tryggja öllum ein­stak­lingum á þeirra yfir­ráða­svæði þau rétt­indi og frelsi sem eru skil­greind í sátt­mál­anum og við­aukum við hann, svo sem rétt til lífs og frelsis, til rétt­látrar máls­með­ferðar fyrir dómi, bann við pynd­ingum, frið­helgi einka­lífs og tján­ingar-, trú- og félaga­frelsi svo dæmi séu tekin.

Ein­stak­lingar geta leitað til dóm­stóls­ins ef þeir telja ríki hafa brotið gegn þeim rétt­indum sem kveðið er á um það að ákveðnum skil­yrðum upp­fylltum. Dóm­stóll­inn tekur ekki mál til með­ferðar nema kær­andi hafi fyrst tæmt inn­lend rétt­ar­úr­ræði, í því felst að oft­ast þarf að vera búið að fara með málið fyrir inn­lenda dóm­stóla.

Ísland und­ir­rit­aði sátt­mál­ann árið 1950 og full­gilti hann árið 1953. Sátt­mál­inn var síðan loks lög­festur hér á landi árið 1994. Í kjöl­farið var mann­rétt­inda­kafla stjórn­ar­skrár Íslands breytt árið 1995 til að koma til móts við skuld­bind­ingar Íslands. Í lögum um sátt­mál­ann segir í annarri grein lagan að úrlausnir Mann­rétt­inda­nefndar Evrópu, Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evrópu og Ráð­herra­nefndar Evr­ópu­ráðs­ins séu ekki bind­andi að íslenskum lands­rétti, sam­kvæmt sátt­mál­anum.

Nauðsynlegt að íslenskir dómstólar taki mið af dómum MDE

Róbert R. Spanó tók til starfa sem dóm­ari við Mann­rétt­inda­dóm­stól Evrópu í nóv­em­ber 2013. Í við­tali við Frétta­blaðið í októ­ber 2014 sagði Róbert að þær breyt­ingar sem urðu á íslenskum lögum með lög­fest­ingu sátt­mál­ans og breyt­ing­unum á mann­rétt­inda­á­kvæðum stjórn­ar­skrár­innar árið 1995 væru tví­mæla­laust ein mesta rétt­ar­bót sem Ísland hefur inn­leitt. Hann benti jafn­framt á að í fram­hald­inu hefði Ísland séð afleið­ing­arnar af þessum breyt­ingum í dóma­fram­kvæmd og einnig hefði þetta haft áhrif á þjóð­fé­lags­um­ræð­una. Að hans mati hafði inn­leið­ing sátt­mál­ans haft áhrif á hvernig borg­arar skilji og skil­greini sinn rétt.

Í við­tal­inu benti Róbert á að ljóst væri að dómar Mann­rétt­inda­dóm­stóls­ins væru ekki bind­andi íslenskum rétti en aftur á móti væri mann­rétt­inda­sátt­mál­inn bind­andi þjóð­rétt­ar­samn­ingur fyrir íslenska ríkið. „Það leiðir af ákvæðum lag­anna um Mann­rétt­inda­sátt­mála Evrópu. Á hinn bóg­inn er ekki nóg með að sátt­mál­inn sé lög­festur, hann er bind­andi þjóð­rétt­ar­samn­ingur fyrir íslenska ríkið. Það er við­ur­kennd lög­skýr­ing­ar­að­ferð í íslenskum rétti að við túlkum lands­rétt til sam­ræmis við þjóða­rétt,“ sagði Róbert.

Því sagði hann að til þess að tryggja að lands­réttur væri túlk­aður til sam­ræmis við þjóð­ar­rétt væri nauð­syn­legt að íslenskir dóm­stólar tækju mið af og tækju til­lit til dómafor­dæma Mann­rétt­inda­dóm­stóls­ins þegar þeir túlk­uðu mann­rétt­inda­sátt­mál­ann.

Hættuleg þróun

Margrét Stein­ars­dóttir, fram­kvæmda­stjóri Mann­rétt­inda­skrif­stofu, tekur í sama streng og Róbert í sam­tali við Kjarnann. Hún segir að mann­rétt­inda­sátt­mál­inn hafa haft mikil áhrif hér á landi sem og alls staðar í Evrópu. Að hennar mati ættu dómar Mann­rétt­inda­dóm­stóls­ins að vera for­dæm­is­gef­andi hér á landi í ljósi þess að Ísland inn­leiddi sátt­mál­ann í lands­lög. Hún segir jafn­framt að þegar mann­rétt­inda­kafl­anum í stjórn­ar­skránni var breytt hafi mann­rétt­inda­sátt­mál­inn verið hafður til hlið­sjónar. Því hafi sumir fræði­menn haldið því fram að mann­rétt­inda­sátt­mála­lögin hafi því stjórn­ar­skrárí­gildi.

Margrét segir að það sé gríð­ar­lega mik­il­vægt að standa vörð um mann­rétt­indi. Hún bendir á að und­an­farin ár hafi verið til umræðu í nokkrum löndum að und­an­skilja lög frá áhrifum Mann­rétt­inda­dóm­stóls­ins. „Að heim­ur­inn sé að stefna í þá átt að mann­rétt­indum verði meira og meira ýtt til hliðar, það finnst mér vera hættu­leg þróun,“ segir Margrét.

Dómur mannréttindadómstólsins leiddi til aðskilnaðar dómsvalds og umboðsvalds

Margrét segir það jafn­framt ótví­rætt að dómar Mann­rétt­inda­dóm­stóls­ins hafi haft áhrif á lög­gjöf hér á landi og knúið fram ýmsar rétt­ar­bætur. Nefnir hún þar sér­stak­lega mál Jón Krist­ins­sonar sem leiddi til aðskiln­aðar dóms­valds og umboðs­valds og þá dóma sem hafa fallið um tján­ing­ar­frelsi.

Fyrsti Íslend­ing­ur­inn sem leit­aði réttar síns hjá Mann­rétt­inda­dóm­stólnum var Jón Krist­ins­son. Árið 1984 var hann sak­felldur fyrir umferð­ar­laga­brot í Sakadómi Akur­eyrar. Jón undi ekki dóm­n­um og benti á að sami maður hafði sinnt mál­inu í umboði lög­reglu­stjóra, fram­kvæmda­valds, ann­ars veg­ar og bæj­ar­fóg­eta, dóms­valds, hins veg­ar. Full­yrti hann að með því væri rétt­lát máls­með­ferð ekki tryggð. Eft­ir að dóm­urinn hafði verið stað­fest­ur í Hæsta­rétti leit­aði Jón til Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evr­ópu sem ákvað að veita hon­um áheyrn fyrst­um Íslend­inga.

Nið­ur­staða MDE var að máls­með­ferð í kjöl­far meints umferð­ar­laga­brots Jóns Krist­ins­son­ar braut í bága við 6. grein Mann­rétt­inda­sátt­mála Evr­ópu um rétt­láta dóms­með­ferð fyr­ir dóm­stól­um. Í kjöl­farið varð umbylt­ing á rétt­ar­fari hér á landi með gild­is­töku laga um aðskilnað dóms­valds og umboðs­valds í hér­aði. Í því fólst að dóms­valdið var flutt frá sýslu­mönnum og bæj­ar­fó­getum til hér­aðs­dóm­stóla í því skyni að koma á full­kominni þrí­grein­ingu rík­is­valds hér á landi. Fram­kvæmda­vald og dóms­vald var áður sam­einað í höndum sýslu­manna og bæj­ar­fó­geta á lands­byggð­inni en sú rétt­ar­fars­skipan stang­að­ist á við ákvæði Mann­rétt­inda­sátt­mála Evrópu um dóms­með­ferð fyrir óháðum, óhlut­drægum dóm­stólum, að mati Mann­rétt­inda­dóm­stóls­ins.

Blaðamenn ekki ábyrgðir fyrir ummælum viðmælenda sinna

Mann­rétt­inda­dóm­stól­inn er einnig tal­inn hafa gegnt veiga­miklu hlut­verki í að tryggja tján­ing­ar­frelsi og fjöl­miðla­frelsi hér á landi. Fyrir rúmum þrjá­tíu árum kærði Þorgeir Þor­geirs­son dóm Hæsta­réttar til Mann­rétt­inda­dóm­stóls­ins. Hann hafði verið sak­felldur vegna skrifa hans um störf lög­reglu­manna í Morg­un­blað­inu. Þorgeir leit­aði til Mann­rétt­inda­dóm­stóls­ins en hann taldi að brotið hefði verið á rétti sínum þar sem dóm­ari í máls­með­ferð hans hafði ítrekað tekið sér stöðu ákæru­valds þegar sak­sókn­ari var fjarri. Hann væri því ekki hlut­laus sem dóm­ari en það væri á skjön við 6. grein Mann­rétt­inda­sátt­mála Evrópu. Auk þess taldi Þorgeir að með dómnum hefði verið brotið á rétti hans til tján­ing­ar­frelsis. Um kæruna til Mann­rétt­inda­dóm­stóls­ins sagði Þorgeir í Þjóð­vilj­anum sama ár: „Ég kæri ekki til mann­rétt­inda­nefnd­ar­innar út af neinum smá­at­riðum, heldur er ég í raun að kæra allt íslenska rétt­ar­kerfið sem ég álít mein­gallað og vart sæm­andi nokkru lýð­ræð­is­ríki.“

Mann­rétt­inda­dóm­stóll­inn komst ein­róma að þeirri nið­ur­stöðu að brotið hefði verið gegn Þorgeiri, í 10. grein um tján­ing­ar­frelsi. Samkvæmt dómi dóm­stóls­ins hafði dómur Þorgeirs ekki falið í sér brot á íslenskum lögum heldur verið í sam­ræmi við 108. grein hegn­ing­ar­laga og dóma­hefð á land­inu. Samkvæmt dóm­stólnum voru lögin því ekki í sam­ræmi við mann­rétt­inda­sátt­mál­ann en ekki dóm­ur­inn gegn Þorgeiri einn og sér.

Mál Þorgeirs og dómur Mann­rétt­inda­dóm­stóls­ins eru talin hafa haft veru­leg áhrif á íslenskt rétt­ar­far en árið 1995 var 108. grein hegn­ing­ar­laga felld úr lögum. Enn fremur var mann­rétt­inda­sátt­máli Evrópu lög­festur hér á landi árið 1994 en með honum voru ýmis mann­rétt­indi og borg­ar­lega rétt­indi lög­fest. Þar má nefna rétt til lífs, skoð­ana­frelsi og tján­ing­ar­frelsi, félaga­frelsi, trú­frelsi, rétt til bóta vegna rangrar sak­fell­ingar og svo fram­vegis.

Á seinni árum hafa fleiri málum verið áfrýjað til Mann­rétt­inda­dóm­stóls­ins vegna skerð­ingar á tján­ing­ar­frelsi þar sem íslenskir dóm­stólar gerðu blaða­menn per­sónu­lega ábyrga fyrir ummælum við­mæl­enda sinna og dæmt þá bóta­skylda. Ein þeirra er Erla Hlyns­dóttir en dóm­stól­inn hefur þrisvar sinnum dæmd henni í hag og kom­ist að því að íslenska ríkið hafi brotið gegn 10. grein mann­rétt­inda­sátt­mála Evrópu með því að dæma Erlu fyrir meið­yrði fyrir ummæli sem hún hafði eftir við­mæl­endur sína. Íslenska rík­inu var gert að greiða Erlu skaða­bætur. Mann­rétt­inda­dóm­stól­inn komst einnig að sömu nið­ur­stöðu í máli ann­arrar blaða­konu, Bjarkar Eiðs­dótt­ur, sem dæmd hafði verið fyrir meið­yrði vegna ummæla sem höfð voru eftir við­mæl­anda.

Þurfti að fella niður fjölmörg mál

Annar nýlegur dómur Mann­rétt­inda­dóm­stóls­ins sem hefur haft víð­tækar afleið­ingar hér á landi er dómur dóm­stóls­ins í máli Jón Ásgeirs Jóhann­es­sonar. Þann 18. maí 2017 komst Mann­rétt­inda­dóm­stóll Evr­ópu að þeirri nið­ur­stöðu að íslenska ríkið hefði brotið gegn Jóni Ásgeiri Jóhann­essyni og Tryggva Jóns­syni þegar þeir voru dæmdir í skil­orðs­bundið fang­elsi fyrir skatta­laga­brot í rekstri Baugs og fjár­fest­inga­fé­lags­ins Gaums árið 2013, ásamt Krist­ínu Jóhann­es­dótt­ur. Þeir kærðu þann dóm til Mann­rétt­inda­­dóm­stóls­ins á þeim for­­sendum að þeir hefðu þegar hlotið dóm fyrir sömu brot. Þeir höfðu verið dæmdir til að greiða álag ofan á end­ur­á­kvörðun skatta af yfir­­skatta­­nefnd árið 2007. Málin tvö hefðu verið byggð á sama grunn­i. Og því væri verið að refsa þeim tví­vegis fyrir sama brot­ið.

Fram að þeim tíma hafði það tíðkast hér­lendis að þeir sem sviku stór­fellt undan skatti skyldu greiða hátt álag ofan á þá van­goldnu skatta sem þeir skyldu end­ur­greiða. Ef um meiri­háttar brot var að ræða þá var við­kom­andi einnig ákærður fyrir meiri háttar skatta­laga­brot, en við slíkum brotum liggur allt að sex ára fang­elsi auk þess sem við­kom­andi þarf að að greiða sekt. Þegar Mann­rétt­inda­dóm­stóll­inn hafði kom­ist að nið­ur­stöðu þá þurfti að falla dómur í Hæsta­rétti um sam­bæri­legt efni til að fram komi hver áhrif nið­ur­stöð­unnar verði á íslenska dóma­fram­kvæmd. Sá dómur féll í lok sept­em­ber 2017.

Nið­ur­staðan hafði áhrif á fjöl­mörg önnur mál og varð til þess að hér­aðs­sak­sókn­ari þurfti að fella niður að að minnsta kosti 66 mál þar sem grunur var um að ein­stak­lingar hefðu framið skatt­svik. Stór hluti mál­anna sner­ist um ein­stak­linga sem geymdu fjár­muni utan Íslands til að kom­ast hjá skatt­greiðslum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár