Eigandi Hvals hf. bað ráðherra um breytingu á reglugerð

Sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra breytti reglu­gerð um vinnslu og heil­brigð­is­eft­ir­lit með hvala­af­urðum tíu dögum eftir tölvu­póst frá Krist­jáni Lofts­syni eig­anda Hvals hf. þar sem hann bað um að reglu­gerð­inni yrði breytt.

Kristján Loftsson, forstjóri og einn stærsti eigandi Hvals hf.
Kristján Loftsson, for­stjóri og einn stærsti eig­andi Hvals hf. Mynd: Flickr

Kristján Loftsson eig­andi Hvals hf. sendi Krist­jáni Þór Júl­í­us­syni sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra tölvu­póst þann 15. maí 2018 þar sem Kristján óskaði eftir því að ráð­herra myndi breyta reglu­gerð um vinnslu og heil­brigð­is­eft­ir­lit með hvala­af­urðum. Frá þessu er greint í Frétta­blað­inu í dag.

Tíu dögum síðar skrif­aði ráð­herra undir breyt­ingu á reglu­gerð­inni. Í henni fólst meðal ann­ars að 10. gr í reglu­gerð­inni var breytt á þann veg að ekki var lengur gerð krafa um að skera hval á yfir­byggðum skurð­ar­fleti.

Reglum um hvalskurð var aldrei fylgt

Árið 2009 tók gildi reglu­gerð um vinnslu og heil­brigð­is­eft­ir­lit með hvala­af­urðum. Í henni var kveðið á um að hval­skurður skuli hefj­ast um leið og hvalur er kom­inn á land og að skurð­ar­flöt­ur­inn skuli vera inn­an­dyra eða undir yfir­byggðum fleti. Það ákvæði kom þó ekki til áhrifa fyrr en ári seinna, árið 2010. Frétta­blaðið greindi frá því í ágúst síð­ast­liðnum að reglum um hval­skurð hefði aldrei verið fylgt af félag­inu Hvalur hf. þar sem aldrei var byggður yfir­byggður skurð­ar­flötur hjá Hval hf. eins og reglu­gerð­inni sagði til um.

[adspot]

10 dögum síðar samþykkti ráðherra breytingu á 10 grein

Í bréfi Krist­jáns Lofts­sonar eig­anda Hvals hf., sem Frétta­blaðið hefur undir hönd­unum, segir að reglu­gerð um vinnslu og heil­brigð­is­eft­ir­lit með hvala­af­urðum frá 28. maí 2009 inni­haldi ýmis ákvæði sem séu „úr sér gengin“ og segir að fyr­ir­tækið hafi þróað og notað aðferðir í mörg ár með miklu betri árangri en mælt sé fyrir í reglu­gerð­inni.

Kristján segir jafn­framt að hann hafi farið fram á að reglu­gerð­inni yrði breytt við nokkra af for­verum ráð­herra í starfi. Hann sendi með tölvu­póst­inum til­lögur sínar um breyt­ingar á reglu­gerð­inni en hann segir það von­laust að sækja um vinnslu­leyfi nema reglu­gerð­inni sé breytt. „Eins og þetta er í pott­inn búið tel ég von­laust að sækja um vinnslu­leyfi fyrir kom­andi ver­tíð með reglu­gerð­ina óbreytta. Vísa ég þar sér­stak­lega til 10 [sic] gr. reglu­gerð­ar­innar,“ stendur í bréfi for­stjór­ans.

Í þeirra grein kvað á um að skurður á hvölum skuli fram­kvæmdur inn­an­dyra eða undir yfir­byggðum skurð­ar­fleti verk­un­ar­stöðva, „Ákvæði 2. mgr. 10. gr., þar sem kveðið er á um að skurður á hvölum skuli fram­kvæmdur inn­an­dyra eða undir yfir­byggðum skurð­ar­fleti verk­un­ar­stöðva, koma þó eigi til fram­kvæmda fyrr en 1. júní 2010.“

Þann 25. maí 2018 sam­þykkir Kristján Þór Júlísson breyt­ingu um reglu­gerð um vinnslu og heil­brigð­is­eft­ir­lit með hvala­af­urðum þar sem fram kemur að 10. grein reglu­gerð­ar­innar hafi verið breytt á þann hátt að hval­skurður skal gerður á skurð­ar­fleti með við­eig­andi vörnum. „1. máls. 2. mgr. 10. gr. reglu­gerð­ar­innar verður svohljóð­andi: Hval­skurður skal haf­inn eins fljótt og auðið er eftir að hvalur er kom­inn á land á skurð­ar­fleti með við­eig­andi vörnum sem koma í veg fyrir mengun afurða sam­kvæmt áhættu­mati sem rekstr­ar­að­ili gerir.“

Samþykkti áframhaldandi hvalveiðar

[links]Í síð­ustu viku sam­þykkti Kristján Þór að heim­ila áfram­hald­andi veiðar á lang­reyði og hrefnu næstu fimm árin. Nær ákvörð­unin til veiða jafn lengi og fyrri reglu­gerð gerði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

sjávarútvegsmál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár