Yfirlýsing frá Kjarnanum miðlum

Stjórn og stjórn­endur Kjarnans standa, og hafa staðið, 100 pró­sent á bak við starfs­mann fyr­ir­tæk­is­ins sem var í sumar þol­andi áreitni þing­manns.

[links]Hegðun hans var niðr­andi, óboð­leg og hafði víð­tækar afleið­ingar fyrir þann sem varð fyrir henni. Afleið­ingar sem eru bæði per­sónu­legar og fag­legar.

Stjórn og stjórn­endur Kjarnans gerðu þol­anda ljóst frá upp­hafi að hann réði ferð­inni í þessu máli og til hvaða aðgerða hann taldi rétt­ast að grípa. Eftir að fyrir lá við­ur­kenn­ing ger­anda á því sem átti sér stað, en eng­inn sýni­legur vilji til að bregð­ast við hegðun sinni með öðrum hætti, þá ákvað þol­andi að koma vit­neskju um áreitn­ina á fram­færi við stjórn­mála­flokk­inn sem ger­and­inn situr á þingi fyrir. Þar var mál­inu beint í far­veg nýstofn­aðrar trún­að­ar­nefndar.

[adspot]Sú nefnd komst að þeirri nið­ur­stöðu 27. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn að þing­maður flokks­ins hefði brotið gegn tveimur siða­reglum hans. Þing­mað­ur­inn hafi auk þess, með fram­komu sinni, snið­gengið stefnu flokks­ins gegn ein­elti og áreitni og bakað með því félögum sínum í flokknum tjóni. Fyrir þessi brot, gegn starfs­manni Kjarnans, sætti þing­mað­ur­inn áminn­ingu trún­að­ar­nefndar.

Þegar sú nið­ur­staða lá fyrir var það ákvörðun stjórn­mála­flokks­ins að ákveða hvað hann vildi gera með hana. Sú nið­ur­staða liggur nú fyrir.

Þol­and­inn í þessu máli, líkt og öllum öðrum áreitni- og ofbeld­is­málum, á að hafa fullan rétt yfir því hvort, hvenær og hvernig hann tjáir sig um þau atvik sem hann verður fyrir. Fjöl­miðlar sem og aðrir eru beðnir um að virða þau mörk.

Með vin­semd og virð­ingu,

Hjálmar Gíslason, stjórn­ar­for­maður Kjarnans miðla.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár