Fyrirhugað frumvarp sagt skerða rétt þungaðra einstaklinga

Tals­verðar athuga­semdir hafa verið gerðar við fyr­ir­hugað frum­varp Vel­ferð­ar­ráðu­neyt­is­ins um þung­una­rof.

Vel­ferð­ar­ráðu­neytið kynnti drög að frum­varpi til laga um þung­un­ar­rof í sept­em­ber síð­ast­liðnum. Stefnt er að því að frum­varp til nýrra laga um þung­un­ar­rof verði lagt fram á yfir­stand­andi þingi. Í frum­varp­inu er lagt til að konur geti ákveðið að rjúfa með­göngu að lokum 18. viku í stað 16. viku. Hulda Hjart­ar­dóttir, yfir­læknir fæð­ing­ar­þjón­ustu á Land­spít­al­anum, sagði í sam­tali við Rúv að í frum­varp­inu væri bæði verið að rýmka og þrengja rétt kvenna til þung­un­ar­rofs.

Í núver­andi lögum geta konur rofið með­göngu að lokum 16.viku en einnig er hægt að óska eftir því að enda með­göngu ef í ljós kemur við 20 vikna ómskoðun að eitt­hvað alvar­legt er að en þá þarf und­ir­skrift lækna og sam­þykki úrskurð­ar­nefndar. Í nýja frum­varp­inu er tekið fyrir þennan mögu­leika. Þar segir í 4. grein að eftir lok 18. viku sé þung­un­ar­rof ein­ungis heim­ilt ef lífi konu er stefnt í hættu eða fóstur telst ekki líf­væn­legt.

Umsagnir við frumvarpið

Í umfjöllun Frétta­blaðs­ins í dag kemur fram að fag­fólk í heil­brigð­is­geir­anum gerir tals­verðar athuga­semdir við fyr­ir­hugað frum­varp um þung­un­ar­rof. Stærstur hluti umsagna fag­fólks um frum­varps­drögin snýr að því að fyr­ir­hugað frum­varp skerði rétt kvenna frá því sem nú gildir.

Frum­varps­drögin voru kynnt í Sam­ráðs­gátt rík­is­stjórn­ar­innar í sept­em­ber síð­ast­liðnum en frestur til umsagna rann út fyrir viku. Umsagn­irnar voru ekki birtar í gátt­inni en Frétta­blaðið fékk aðgang að þeim í krafti upp­lýs­inga­laga. Drögin byggja á vinnu starfs­hóps um efnið sem skil­aði af sér í nóv­em­ber 2016. Sá munur er þó á að í nið­ur­stöðum hóps­ins var lagt til að þung­un­ar­rof yrði heim­ilt fram til 22. viku með­göngu ef engar lækn­is­fræði­legar ástæður mæltu gegn því. Í drög­unum er hins vegar gert ráð fyrir því að þung­un­ar­rof verði heim­ilt fram á 18. viku en eftir það ein­göngu ef lífi þung­aðrar konu er stefnt í hættu eða ef fóstur telst ekki „líf­væn­legt“ til fram­búðar.

Þungunarof fram á 22. viku

Í umsögn ljós­mæðra kemur fram að alvar­legir fæð­ing­argallar grein­ist yfir­leitt ekki fyrr en eftir tutt­ugu vikna sónar. Breyt­ingin feli í sér að ákvörð­un­ar­réttur þung­aðs ein­stak­lings skerð­ist þar sem gerð er krafa um að fóstur sé ólíf­væn­legt. Í fæstum til­vikum sjá­ist strax hvort fóstur sé líf­væn­legt þó merki um alvar­lega fötlun sjá­ist. Ein­stak­lingar og fjöl­skyldur séu mis­vel í stakk búin til að eiga barn með alvar­lega fötlun og frum­varps­drögin loki fyrir það að fólk sem telur sig ekki ráða við það geti tekið ákvörðun um slíkt. Kveður við svip­aðan tón hjá Félagi íslenskra fæð­ingar- og kven­sjúk­dóma­lækna (FÍFK), Land­spít­al­ans (LSH) og í umsögnum lækna sem ýmist starfa við kven­sjúk­dóma-, barna- eða fæð­ing­ar­lækn­ingar. Umræddir aðilar leggja til að tímara­mm­inn fyrir þung­un­ar­rof verði lengdur fram til 22. viku með­göngu.

Skertur réttur þungaðs einstaklings

Þá var í nokkrum umsögnum, þar á meðal frá umboðs­manni barna, sett út á það að lögin tryggðu ekki sjálfs­á­kvörð­un­ar­rétt ein­stak­linga undir sextán ára til þung­un­ar­rofs. Í lög­unum er ekk­ert um slík til­vik og myndu því ákvæði laga um rétt­indi sjúk­linga gilda um slík til­vik.„Ef frum­varpið verður sam­þykkt í núver­andi mynd má því færa rök fyrir því að verið sé að þrengja enn að sjálfs­á­kvörð­un­ar­rétti barna að þessu leyti og kveða á um að for­sjárað­ilar fái ávallt vit­neskju um fyr­ir­hugað þung­un­ar­rof, óháð aðstæðum hverju sinni,“ segir í umsögn umboðs­manns.

Í fyr­ir­hug­uðum lögum er kveðið á um að þung­un­ar­rof skuli vera gjald­frjálst „sjúkra­tryggðum konum“. Í einni umsögn var vakin á því athygli að hingað til lands kæmu ósjúkra­tryggðir ein­stak­lingar, þar á meðal hæl­is­leit­endur, sem settir væru í bága stöðu af þessum sökum. Þá var í nokkrum umsögnum, þar á meðal umsögn LSH, vikið að því að frum­varpið gerði aðeins ráð fyrir þung­uðum konum en ekki öðrum ein­stak­lingum, til að mynda trans­mönnum. Frá þessu er greint í Frétta­blað­inu

Heimildir til þungunarofs byggð á fötlun fósturs afnumin

Í grein­ar­gerð með frum­varps­drög­unum er bent á að samn­ingur Sam­ein­uðu þjóð­anna um rétt­indi fatl­aðs fólks hafi verið skoð­aður við gerð frum­varps­ins. Þar segir að Ísland hafi full­gilt samn­ing­inn og ber því að tryggja að íslensk lög séu í sam­ræmi við hann. Eft­ir­lits­nefnd samn­ings­ins hafi gert athuga­semdir við lög­gjöf í ríkjum þar sem heim­ildir til þung­un­ar­rofs byggj­ast á fötlun fóst­urs­ins og því hafi sá grein­ar­munur verið afnum­inn.

Í sam­eig­in­legri yfir­lýs­ing frá Lands­sam­tök­unum Þroska­hjálp, Félagi áhuga­fólks um Downs-heil­kenni, Áhuga­fé­lagi um hrygg­rauf/klof­inn hrygg, Rann­sókn­ar­setri í fötl­un­ar­fræðum við Háskóla Íslands og Öryrkja­banda­lagi Íslands eru ummæli yfir­læknis fæð­ing­ar­þjón­ustu LSH gagn­rýnt. Yfir­læknir sagði í sam­tali við RÚV að hún leggi til að hafa sjálfs­á­kvörð­un­ar­rétt kon­unnar fullan upp að 22 vikum án skil­yrða. Til­greinir hún það mik­il­vægt vegna þess að ýmis vanda­mál ýmis vanda­mál eins og klof­inn hryggur, vatns­höfuð, dverg­vöxtur og ákveðin til­vik litn­ingagalla, t.d. downsheilkenni, finn­ast oft ekki fyrr en við 20 vikna ómskoðun. Hulda segir það þau mörk eru þess eðlis að ef að barn fæð­ist eftir 22 vikur þá er það flokkað sem lif­andi fætt barn undir þeim mörkum að þá er það fóstur.

En í ofan­greindri yfir­lýs­ing­unni eru ummæli yfir­læknis fæð­ing­ar­þjón­ustu LSH sögð á skjön við nútíma­hug­myndir og skiln­ing á fötlun og fötl­uðu fólki. Þar er kraf­ist ný lög um þung­un­ar­rof eigi ekki að mis­muna á grund­velli fötl­unar, hvorki beint né óbeint.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

velferðarráðuneyti

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár