Landfærnisráð mikilvægt fyrir fjórðu iðnbyltinguna

Hópur á vegum vel­ferð­ar­ráðu­neyt­is­ins telur ráðu­neytið eiga að stofna land­færn­is­ráð til að meta stöðu og færni íslensks vinnu­afls til langs tíma.

Ásmundur Einar Daðason félags-og jafnréttismálaráðherra.
Ásmundur Einar Daðason félags-og jafn­rétt­is­mála­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Sér­fræð­inga­hópur um færni- og mennt­un­ar­þörf á íslenskum vinnu­mark­aði leggur til að land­færn­is­ráð verði stofnað til að greina færni vinnu­afls hér á landi. Íslend­ingar séu eft­ir­bátar ann­arra þjóða í slíkri grein­ingu, en ráðið yrði mik­il­vægt til að meta áhrif fjórðu iðn­bylt­ing­ar­innar. Þetta kom fram á fundi vel­ferð­ar­ráðu­neyt­is­ins í morgun.

Nokkuð um of- og vanmenntun

Á fund­inum birtu Hag­fræði­stofnun Háskóla Íslands og sér­fræð­inga­hóp­ur­inn nið­ur­stöður úr skýrslum sínum um mat á færni vinnu­afls á Íslandi. Samkvæmt skýrslu Hag­fræði­stofn­unar er mennt­un­ar­stig vinnu­afls á Íslandi nokkuð lægra en á hinum Norð­ur­lönd­unum, en hlut­fall vinnu­afls með grunn­skóla­próf eða minna hefur þó lækkað á síð­ustu árum og er nú á pari við með­al­tal OECD-ríkja.

Hag­fræði­stofnun taldi einnig nokkuð vera um bæði of- og van­menntun í ýmsum störfum á Íslandi, mest væri um ofmenntað vinnu­afl í fisk­veiðum og vann­mentun var sér­stak­lega sýni­leg í sér­fræði­störfum í eðlis-, verk-og stærð­fræði. Sömu­leiðis benti Sigurður Björns­son, starfs­maður Hag­fræði­stofn­unnar, á að ríf­lega 60% kenn­ara­mennt­aðra starfi við kennslu eða upp­eld­is­fræði, en það hlut­fall hefur hald­ist nokkuð jafnt síðan 2008.

Ísland eftirbátur annarra ríkja

Karl Sig­urðs­son, sviðs­stjóri hjá Vinnu­mála­stofnun, birti nið­ur­stöður skýrslu sér­fræð­inga­hóps­ins þar sem fjallað er um þörf þess að fram­kvæma svo­kall­aða færnispá fyrir íslenska vinnu­mark­að­inn. Með henni yrði kerf­is­bundið mat lagt á færni-, mennt­unar-og mann­afla­þörf á vinnu­mark­aði til lengri tíma, en sam­kvæmt Karli er Ísland eft­ir­bátur ann­arra ríkja í þessum efnum.

Meðal til­lagna hóps­ins er að skoðað verði hvort Hagstofa Íslands eigi að fá form­legt hlut­verk við færnispá­gerð til langs tíma auk þess sem starfs­greina­nefnd fái form­legt ráð­gef­andi hlut­verk í spá­ferl­inu. Einnig var lagt til að svo­kallað land­færn­is­ráð yrði stofnað, en fyr­ir­mynd þess yrði sótt til Írlands og Finn­lands.

Færnispár yrðu mik­il­vægar fyrir stefnu­mótun ríkis, sveita­fé­laga og mennta­stofn­anna hér á landi, sér­stak­lega í ljósi þeirra örra tækni­breyt­inga sem átt hafa sér stað á síð­ustu árum og gjarnan eru kenndar við fjórðu iðn­bylt­ing­una. Samkvæmt sér­fræð­inga­hópnum kallar aukin óvissa, hrað­ari tækni­breyt­ingar og flók­ari sam­setn­ing efna­hags­lífs­ins á breyttar áherslur í atvinnu-, mennta og vinnu­mark­aðs­málum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

velferðarráðuneyti

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár